Selfoss - 12.02.2015, Blaðsíða 9

Selfoss - 12.02.2015, Blaðsíða 9
912. Febrúar 2015 Mörg móðirin hefir getað unnið sjer brauð „Ef við viljum að landið eignist góða syni og dætur, sem beri menn- ingarhugsjónir okkar fram til sig- urs, þá verð-um við fyrst að eignast góða foreldra. Foreldra, sem skilja hlutverk sitt og bera gæfu til að gera heimilin að vermireit þjóðmenn- ingar og hamingju. ... Sú hugsjón hefir jafnan vakað fyrir Sumargjöf, að koma upp dagheimili í borgar- jaðri. Þangað kæmu mæður börn- um að morgninum. Þar væru þau til kvölds og hefðu góðar máltíðir, leiki, hvíld og kenslu. Slíkir fósturskólar breiðast mjög út erlendis og gefast allra stofnana best. Barnið er altaf í sambandi við heimilið og móðurina, en þó undir fyrimyndar umsjá. Það eru ekki börnin ein, sem kent er á þessum stofnunum, það eru líka mæðurnar. Þær sækja þangað ráð um alla meðferð barnsins. Mörg móðirin hefir getað unnið sjer brauð, af því að hún gat komið barninu í fóstur- skóla að deginuni. Og margt barnið hefir fengið andlegan og líkamlegan þroska og orð- ið góður borgari, aðeins vegna þess, að fósturskólinn var til, og að það var svo heppið að komast þangað. Sumargjöfin mun koma upp slíkum fósturskóla við fyrsta tækifæri.“ (Sumargjöfin, 4. árgangur 1.tbl. 1928. S.A.) Vinnukona, dugleg og hirðusöm, vön barnapössun, innivinnu og mat- reiðslu, getur strax fengið vist í kaupstað. Nánari upplýsingar fást hjá hr. Jóni Norðmann, er semur um vistarráðin. (Vísir 22.5. 1897) Tvær stúlkur, önnur vön matreiðslu, en hin til þess að passa börn, geta feingið vist frá 14. maí Seyðisfirði. Stúlkur þser, er sæta vilja tilboði þessu, snúi sjer til herrra kaupmanns Kristjáns Þorgrímssonar, sem gefur nánari upplýsingar. (Ísland 22.3.1898) Meðan for­ eldrar þeirra stunda vinnu. „Bæjarstjórn beinir því til bæj- arráðs, að það í samráði við fræðslustjóra athugi möguleika á því að koma á fót, svo fljótt sem auðið yrði, dag- og tómsunda- heimili fyrir börn sex ára og eldri, sem ekki hafa samastað til náms og leikja meðan foreldrar þeirra stunda vinnu." Ókeypis dag­ vistun. „Við álítum, að stefna beri að því, að dagvistun barna verði í framtíðinni ókeypis fyrir alla á sama hátt og skólaganga, þ.e. að dagheimilin verði einskonar forskóli. Við teljum það og sjal- fsögð mannréttindi, að öll börn fái aðgang að dagvistunarstofnun og kostnaður vegna hennar hafi þar engin áhrif.“ (Forvitin rauð, maí 1974) Vegna fátækt­ ar foreldranna og þekk­ ingarskorts. „Ef vér lítum á ástandið í kaup- stöðum og kauptúnum landsins, munum vér þar víða geta séð börn, sem hafa mætt illri aðbúð, vegna fátæktar foreldranna og þekkingarskorts, og eru því hálf- gerðir aumingjar líkamlega, og oftast andlegir krypplingar um leið. »Það er sorglegt«, sagði ein góð og merk kona við mig, er við vorum að tala um hóp af börnum fátækra foreldra, »að sjá öll þessi börn verða að líkamlegum og and- legum beygjum, þegar er þau fara af brjósti, hversu efnileg og skýr sem þau virðast, meðan þau eru á fyrsta og öðru ári, eða meðan þau geta lifað á móðurmjólkinni; og það víst eingöngu af skorti og af vanþekkingu móðurinnar á að hlynna að þeim«.“ (Prestafélags- ritið 1. tbl. 1920) Eldri kona óskar eftir starfi við að passa börn. Afgr. vísar á. 1—2 kaupakonur óskast á áreiðanlega gott sveitaheimili. Uppl. á Hverfisg. 7. Drengur ellefu ára, óskar eft- ir að komast að snúningum nú þegar,upplýsingar í Bankastræti 6. (Auglýsingar í Vísi 1912)

x

Selfoss

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.