Vestfirðir - 12.02.2015, Blaðsíða 4
4 12. Febrúar 2015
VESTFIRÐIR
3. TBL. 4. ÁRGANGUR 2015
ÚTGEFANDI: Fótspor ehf., Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. ÁBYRGÐARMAÐUR: Ámundi
Ámundason, AUGLÝSINGASTJÓRI: Ámundi Ámundason sími 824-2466, netfang
amundi@fotspor.is. AUGLÝSINGAR: Sími: 578-1190 & netfang: auglysingar@fotspor.is.
RITSTJÓRI: Kristinn H. Gunnarsson, sími: 8927630 og netfang : kristinn@kristinn.is. UMBROT:
Prentsnið. PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja, 3.000 eintök. DREIFING: Íslandspóstur.
FRÍBLAÐINU VESTFIRÐIR ER DREIFT Í 3.000 EINTÖKUM
Á ÖLL HEIMILI OG FYRIRTÆKI Á VESTFJÖRÐUM
Þeir ríku verða ríkari með hverju árinu sem líður. Þeir sem eiga erfitt að veita sér sómasamleg lífskjör fer fjölgandi á sama tíma.Tiltölulega fámennir hópar í þjóðfélaginu hafa sótt sér hærri kauphækkun en
almennir kjarasamningar hafa kveðið á um. Enn er þessi þróun í gangi,
nú síðast með verkfalli og stórfelldum kauphækkun lækna. Verkafólki er í
kjölfarið vísað á 3-4% dyrnar og gert ábyrgt fyrir efnahagslegum stöðugleika
í þjóðfélaginu.
Síðustu 20 árin hefur þróunin verið meira og minna stöðugt í þessa átt.
Skattar á háar tekjur og eignir hafa verið lækkaðir og eru ákaflega hóflegar
svo ekki sé fastar að orði kveðið. Skattar á lágar tekjur og engar eignir eru
óhóflegir. Aldraðir, veikir og sjúkir hafa mátt upplífa að að hafa verið ýtt til
hliðar og er gert að lifa af litlu og taka upp veskið hvenær sem bankað er upp
á hjá heilbrigðiskerfinu. Afleiðingin er stöðug og vaxandi gliðnun í íslensku
þjóðfélagi sem lýsir sér í harðnandi deilum milli þjóðfélagshópa og minnkandi
trausti og trú á lykilstofnanir þjóðfélagsins.
Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga lýsir því
í viðtali við blaðið Vestfirðir að launin eru orðin svo lág að einstæðir for-
eldrar hrekjast úr starfi og leiti á náðir atvinnuleysisbóta eða örorkubóta
til þess að reyna að bæta ömurleg kjör sín lítilsháttar. Atvinnufyrirtæki
landsins borga þúsundum launamanna svo lág laun að fyrirtækjunum er til
skammar. Kauptaxtar verkafólks eru frá 201.000 - 238.000 kr fyrir dagvinnuna
á mánuði. Útvistun verkefna er örugg leið til launalækkunar fyrir verkafólk.
Ræstingarfólkið á Landsspítalanum fær ekki læknakauphækkun heldur er
gert að vinna meira og hraðar fyrir minna fyrir uppskafninganna sem maka
krókinn sem verktakar. Bílstjórar í ferðaþjónustu fatlaðra eru reknar vegna
útvistunar og aðrir ráðnir á lægri launum og þeir leggja niður vinnu strax
fyrsta mánuðinn sem þeir sjá launaseðilinn. Fólkið í frystihúsinum fær um
300 þúsund krónur þegar allt er talið, bónusar og yfirvinna á árum metgróða
af rekstri sjávarútvegsfyrirtækja. Á nokkurra ára tímabili var útborgaður arður
um 80 milljarðar króna í sjávarútvegi.
Andstæðan við láglaunastefnuna í þjóðfélaginu er hágróðastefnan. Hún lýsir
sér í því að þeir ríku verða stöðugt ríkari. Ríkasta 1% landsmanna, um 1900
fjölskyldur áttu 2012 hvorki meira né minna en nærri fjórðungs alls auðs
landsmanna. Hlutur þessa hóps hafði aukist úr 17% í 23% á aðeins 10 árum.
Það er hvorki meira né minna en þriðjungs aukning á hreinni eign þessa hóps.
Hver fjölskylda í þessum hópi á 244 milljónir kr að meðaltali. Eignaaukning
hennar á síðustu 10 árum eru nærri 60 mkr. Misskiptingin er orðin svo alvar-
leg að fjölskylda sem er í miðjunni á nánast ekkert. Meirihluti þjóðarinnar á
lítið sem ekkert og hagur hans batnar ekki. Þvert á móti verður þessi hópur
af fullum þunga fyrir stöðugum niðurskurði í bótakerfinu, menntakerfinu
og í heilbrigðiskerfinu.
Þetta er ekki tilviljun heldur árangur af pólitískri stefnu. Það er gegn þessari
stefnu sem verkalýðshreyfingin er nú að rísa. Starfsgreinasambandið ætlar
ekki að una þessum afarkostum í þjóðfélaginu. Þess vegna er farið gegn
láglaunastefnunni og þess krafist að launin verði að lágmarki orðin 300
þúsund krónur innan þriggja ára. Það mun draga á eftir sér viðmiðanir í
velferðarkerfinu sem ákvarð atvinnuleysisbætur, örorkubætur, ellilífeyri og
greiðsluþátttöku í opinberri heilbrigðisþjónustu.
Það er ólíklegt að kauphækkun á þennan lægsta hóp muni flæða yfir allan
vinnumarkaðinn. Þvert á móti. Vegna þess að láglaunahópurinn er fjölmennur
munu atvinnufyrirtæki ekki hafa svigrúm til þess að hækka hina sem mun
betur eru settir. Bætt kjör láglaunafólks setur hálaunafólkinu skorður. Það
mun ekki geta bæði fengið umframhækkun á sínum launum og setið klofvega
ofan á láglaunafólkinu og notið efnahagslegs stöðugleika.
Kjarabarátta verkafólks núna er krafa um meiri jöfnuð í þjóðfélaginu, krafa
um ábyrgð ríka fólksins á íslensku velferðarþjóðfélagi, krafa um að allir séu
um borð í sama báti og deili þar kjörum.
Kristinn H. Gunnarsson
Misskiptingin
klýfur þjóðina
Leiðari
VESTFIRSKA VÍSNAHORNIÐ
Síðasta vísnahorn endaði á vísu um
vonbrigði landans með árangur hand-
boltalandsliðsins á heimsmeistara-
mótinu í Katar. Indriði Aðalsteinsson
gaf þá skýringu að það vantaði Ólaf
Stefánsson. Aðalsteinn Valdimarsson á
Strandseljum er með annað sjónarhorn
sem skýrir vonbrigðin:
Íslendingar gera sjer alltaf góðar
vonir um árangur síns keppnisfólks í
útlöndum (fyrsta sætið lágmark):
Allvel mættu okkur duga
afrek landsins dætra og sona
en við stefnum hátt í huga
heimsmeistarar glæstra vona.
Skjaldfannarbóndinn hefur fengið að
kenna á rafmagnsleysinu undanfarn-
ar vikur og sendir Orkubúi Vestfjarða
frekar kaldar kveðjur:
Dagar lengjast, grundin grær
geislar sólar skína
en Okurbúið illskeytt flær
alla kúnna sína.
Eftir þetta held ég að Kristján Har-
aldsson, Orkubússtjóri þurfi að fara í
sumar í friðarför inn í Skjaldfannardal.
Indriði víkur svo að málefnum Hönnu
Birnu og leggur sitt mat á verk Innan-
ríkisráðherrans fyrrverandi:
Í pólitík ljót eru lýti
ef leyna þarf glöpum í flýti
að hugsa ekki kalt
hiklaust né snjallt
og sækja sér sjálfskaparvíti.
Nú er hraðlygna Hanna
heldur á milli tanna
þvermóðskufull
orðræðan bull
hjá þessum sjálega svanna.
Verk annars ráðherra Sjálfstæðisflokks-
ins er Aðalsteini á Strandseljum um-
hugsunarefni og hann óttast það sem
stefna kann í:
Nú er rætt á þinginu um að verð-
leggja fegurðina í náttúru landsins og
selja hana umfarendum:
Ekki lengur nú má njóta
náttúru frítt hjer á klakanum
og næst verður brýnt að ná að hljóta
náttúrupassa hjá makanum.
Forsætisráðherrann Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson gefur stundum á
sér höggstað og Indriði á Skjaldfönn
minnir á samstöðufund þjóðarleiðtoga
í París, sem Sigmundur sótti ekki:
Þó vinnumanna hafi her
og hvergi í launum spari
út til Frakklands ekki fer
okkar stórriddari.
Vel á minnst, stórriddarakrossinn sem
forsetinn hengdi á forsætisráðherrann í
kyrrþey kom í hug Indriða þegar hann
horfði á áramótaávarpið:
Sælukennd um sálu leið
sútin brott réð skunda
er stórriddarans bringan breið
blasti við á Munda.
Tónleikar Sunnukórsins í Neskirkju: