Vestfirðir - 12.02.2015, Blaðsíða 15
Sólarkaffi Vestfirðinga á Suðurlandi
Nokkrir Vestfirðingar, sem búa á Suðurlandi, boða til sólar-kaffis að hætti Vestfirðinga
sunnudaginn 15. febrúar 2015 í Félags-
heimilinu Stað á Eyrarbakka kl. 15: 00.
Alsiða er í byggðum Vestfjarða að
drekka sólarkaffi með pönnukökum
þegar sólin sést aftur eftir skammdegið.
Þessi siður hefur ekki verið á Suður-
landi enda sést sól þar alla daga ársins.
Með þessu vilja aðfluttir Vestfirðingar
á Suðurlandi gefa sveitungum að vesta
kost á að hittast í sólarkaffi og jafnframt
kynna þennan góða sið fyrir Sunn-
lendingum og öðrum hér um slóðir.
Á sólarkaffinu verður Elfar Guðni
Þórðarson listmálari á Stokkseyri með
málverkasýningu á Stað sem nefn-
ist -Frá Djúpi til Dýrafjarðar- Elfar
Guðni hefur fimm sinnum á þessari
öld dvalið á Sólbakka í Önundarfirði í
samtals þrjá mánuði og málað mikið í
vestfirskri náttúru. Hann segist hvergi
utan heimaslóðar sinnar hafa orðið
fyrir jafn sterkum áhrifum til listsköp-
unar eins og vestra og má sjá þetta á
sýningunni.
Vestfirska forlagið að Brekku á
Þingeyri fagnaði nýlega 20 ára af-
mæli og mun í tilefni þess gleðja
tuttugu þátttakendur í sólarkaffinu
á Eyrarbakka með veglegum bóka-
verðlaunum.
Allir hjartanlega velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
elfar Guðni Þórðarson. Myndir: Björn Ingi Bjarnason.
Frá þorrablóti Hnífsdælinga
sem haldið var á laugardaginn
12. Febrúar 2015 15