Vestfirðir - 12.02.2015, Síða 15

Vestfirðir - 12.02.2015, Síða 15
Sólarkaffi Vestfirðinga á Suðurlandi Nokkrir Vestfirðingar, sem búa á Suðurlandi, boða til sólar-kaffis að hætti Vestfirðinga sunnudaginn 15. febrúar 2015 í Félags- heimilinu Stað á Eyrarbakka kl. 15: 00. Alsiða er í byggðum Vestfjarða að drekka sólarkaffi með pönnukökum þegar sólin sést aftur eftir skammdegið. Þessi siður hefur ekki verið á Suður- landi enda sést sól þar alla daga ársins. Með þessu vilja aðfluttir Vestfirðingar á Suðurlandi gefa sveitungum að vesta kost á að hittast í sólarkaffi og jafnframt kynna þennan góða sið fyrir Sunn- lendingum og öðrum hér um slóðir. Á sólarkaffinu verður Elfar Guðni Þórðarson listmálari á Stokkseyri með málverkasýningu á Stað sem nefn- ist -Frá Djúpi til Dýrafjarðar- Elfar Guðni hefur fimm sinnum á þessari öld dvalið á Sólbakka í Önundarfirði í samtals þrjá mánuði og málað mikið í vestfirskri náttúru. Hann segist hvergi utan heimaslóðar sinnar hafa orðið fyrir jafn sterkum áhrifum til listsköp- unar eins og vestra og má sjá þetta á sýningunni. Vestfirska forlagið að Brekku á Þingeyri fagnaði nýlega 20 ára af- mæli og mun í tilefni þess gleðja tuttugu þátttakendur í sólarkaffinu á Eyrarbakka með veglegum bóka- verðlaunum. Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir. elfar Guðni Þórðarson. Myndir: Björn Ingi Bjarnason. Frá þorrablóti Hnífsdælinga sem haldið var á laugardaginn 12. Febrúar 2015 15

x

Vestfirðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.