Víkurfréttir - 29.03.2012, Side 23
23VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 29. Mars 2012
útspark Ómar JÓhannsson
Ómar Jóhannsson, markvörður og
starfsmaður í Fríhöfninni sparkar
pennanum fram á ritvöllinn.
af hverJu
markmaður?
Undirbúningstímabil eru ekki alltaf skemmtilegasti tími fótbolta-
manna. Það segir sig eiginlega í sjálfu orðinu að þetta er bara
undirbúningur fyrir eitthvað meira og skemmtilegra. Ég ætla
alls ekki að gera lítið úr mikilvægi góðs undirbúnings. Það var
heimskur maður sem byggði hús á sandi. Það er samt á þriðju-
dögum núna í vetur sem ég er minntur á einn af kostunum við að
spila í marki. Á þriðjudögum hlaupum við. Hring eftir hring eftir
hring og svo framvegis. Maður lætur sig hafa það en ég viðurkenni
fúslega að þetta er ekki í uppáhaldi. Ég sem endaði í öðru sæti í
hinu víðfræga Landsbankahlaupi á sínum tíma. Þá æfði ég líka
bæði fótbolta og handbolta og ef ég var ekki að æfa þá fór maður
niður í Myllubakkaskóla í körfu eða rugby á slökkviliðslóðinni
(skotleikir á netinu voru ekki til þá). Í dag er ég sáttur við að vera
bara markmaður og langhlaup eru ekki í starfslýsingunni.
Mörgum finnst markmenn vera skrítið fólk, ég vil reyndar meina
að við séum eðlilegir en allir hinir skrítnir. Markmenn eru í það
minnsta ekki alveg eins og allir hinir. Í fyrsta lagi fáum við öðru-
vísi búning til að undirstrika það að við erum ekki eins og hinir.
Oftast eru þessir búningar líka í skærum litum svo allir taki eftir
okkur. Við erum þeir einu sem mega taka boltann með höndum.
Maradona gerði það reyndar einu sinni en þegar hann frétti að
hann mátti það ekki sagði hann bara að guð hefði gert það og þá
voru allir sáttir. Flest betri fótboltalið í dag hafa líka sérstakan
markmannsþjálfara sem passar upp á að þeir fái rétta þjálfun.
Það er nokkuð til í því hjá þeim sem segja að markmenn spili ekki
alveg sömu íþrótt og útileikmennirnir. Þarna stöndum við sem-
sagt fyrir framan markið í trúðabúningunum okkar og þvælumst
fyrir á meðan allir hinir reyna að skora.
Maður á það til að vera örlítið öfundsjúkur þegar sóknarmenn-
irnir baða sig í dýrðarljómanum eftir að hafa fengið boltann í sig
og inn á síðustu mínútu. Það er nefnilega þannig að sóknarmaður
sem klúðrar fullt af færum en skorar svo sigurmarkið á síðustu
mínútu er hetja. Markmaður sem ver fullt af skotum en missir
svo eitt í gegnum klofið á síðustu sekúndu er skúrkur. Ef ég væri
ekki í marki þá væri ég frammi, það er engin önnur staða sem
kæmi til greina. Bakvörður er síðasta staðan sem kæmi til greina,
endalaus hlaup og skora aldrei. Miðvörður er önnur staða sem er
ekki spennandi fyrir mér. Einu skiptin sem þeir fá að fara fram
er í hornum og aukaspyrnum, bara til þess að þurfa að bruna til
baka blótandi þeim sem tóku spyrnuna. Til að toppa þetta þurfa
þeir svo að skalla boltann um það bil 10 sinnum í leik eftir 60
metra spyrnu frá hinum markmanninum.
Nú má ekki misskilja þessi skrif og halda að ég væri ekki góður
útileikmaður. Eins og allir markmenn hef ég gríðarlega trú á hæfi-
leikum mínum sem útileikmaður sem fá því miður allt of sjaldan
að njóta sín. Í þau fáu skipti sem ég öfunda útileikmennina er
ég samt fljótur að minna mig á kostina við að hanga í markinu.
Ég þarf ekki að hlaupa út um allan völl, skallandi boltann hægri
vinstri og er í miklu flottari búning. Svo hef ég minn eigin þjálfara
á æfingum. Ætli það sem heilli ekki samt mest á endanum sé
ekki einfaldlega að fá að vera öðruvísi en hinir. Kannski eru það
skrítnir menn sem velja það að fara í markið. Kannski verður
maður skrítinn á því að hanga í markinu í mörg ár. Ég ætla samt
að halda mig við skýringuna að við séum eðlilegir, það eru allir
hinir sem eru skrítnir.
Ómar.
Atvinna
Verkalýðs- og sjómannafélag Keavíkur og nágrennis, Verkalýðs- og sjómannafélag
Sandgerðis, Verkalýðafélag Grindavíkur og Félag iðn og tæknigreina óska eftir að ráða
tvo starfsmenn í fullt starf á sviði vinnumiðlunar, náms- og starfsvals. Tilgangurinn er
sá að miðla félagsmönnum lausum störfum og eftir þörfum að aðstoða þá með að aa
sér þekkingu og hæfni sem eykur möguleika til ráðningar í starf. Um er að ræða mjög
kreandi störf með þátttöku í mótun og uppbyggingu verkefnisins.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu Verkalýðs- og sjómannafélags Keavíkur og
nágrennis að Krossmóa 4, 260 Reykjanesbæ.
Umsóknarfrestur er til 16. apríl 2012.
Hópstjóri
Helstu verkefni hópstjóra verða:
Menntunar og hæfniskröfur:
Vinnumiðlari
Helstu verkefni vinnumiðlara verða:
Menntunar og hæfniskröfur:
Verkalýðs- og sjómannafélag
Sandgerðis
Verkalýðafélag
Grindavíkur
Íslandsmótið í taekwondo var haldið um síðastliðna helgi
á Ásbrú í Reykjanesbæ. Tíu fé-
lög sendu keppendur á mótið,
en rúmlega 70 keppendur voru
skráðir til leiks. Mótið þótti ganga
vel og voru flestir ánægðir með
breytingar á dómsfyrirkomulagi.
Bardagi mótsins var bardagi
á milli Jóns Levy (Afturelding)
og Jóns Steinars Brynjarssonar
(Keflavík), en Jón Steinar var
jafnframt valinn bardagamaður
mótsins í karlaflokki.
Í heildarstigakeppninni sigraði
Keflavík þriðja árið í röð með 66
stigum og heldur því Íslandsmeist-
aratitlinum. Selfoss hafnaði í öðru
sæti með 47 stig.
Keflvíkingar vörðu Íslands-
meistaratitilinn í teakwondo
– Jón Steinar bardagamaður mótsins
Öll úrslit frá Íslandsmótinu í Taekwondo eru á vef Víkurfrétta
og þar er einnig video sem m.a. sýnir bardaga mótsins.