Víkurfréttir - 05.07.2012, Qupperneq 10
FIMMTUDAGURINN 5. júlí 2012 • VÍKURFRÉTTIR10
Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.isH e l l u h r a u n i 1 2 • H a f n a r fj ö r ð u r • 5 4 4 5 1 0 0 • w w w . g r a n i t h u s i d . i s
Sendum frítt
hvert á land sem er
Leikvöllurinn við Brekkustíg í Sandgerði hefur nú verið endurnýj-aður og var hann formlega vígður í vikunni. Leikvöllurinn er búinn
nútíma leiktækjum og var öryggið haft í fyrirrúmi við endurnýjun hans
en m.a. eru gúmmíhellur við leiktæki til að koma í veg fyrir meiðsli á
börnum.
Það voru börn af leikskólanum Sólborg sem fengu það verkefni að vígja
leikvöllinn formlega. Klippt var á borða og börnin sungu eitt lag. Þau þáðu
síðan hressingu í boði bæjarstjóra. Frá þessu er greint á vef Sandgerðis-
bæjar.
Samkomulag í tengslum við fjárhagslega endurskipu-
lagningu á Eignarhaldsfélaginu
Fasteign var tekið fyrir í bæjar-
ráði Voga á dögunum. Bæjarráð
samþykkir framlagt samkomulag
og tillögu um greiðslu 18,5 millj-
ónir króna vegna viðhaldsmála
fasteigna í Vogum. Samkomu-
lagið var samþykkt með tveimur
atkvæðum.
Inga Sigrún Atladóttir situr hjá við
afgreiðslu málsins og leggur fram
svohljóðandi bókun:
„Samkvæmt samkomulaginu sem
nú liggur fyrir á leigutaki að yfir-
taka alla viðhalds- og endurbóta-
skyldu og á sú yfirtaka að miða
við núverandi ástand eigna. Ég tel
að rétt hefði verið að halda áfram
viðræðum við Fasteign um við-
haldsmálin á þeim forsendum sem
minnisblað lögfræðings sveitar-
félagsins frá 30. apríl 2012 gerði ráð
fyrir. Enn fremur tel ég rétt að láta
á það reyna hvort ekki sé hægt að
skoða betur þann möguleika sem
lögfræðingur EFF nefndi á hlut-
hafafundi þann 8. maí 2012 að
sveitarfélagið og EFF geti fengið
óháðan matsmann til að meta
áfallið viðhald á eignum sveitar-
félagsins.“
Gunnhildur Ása Sigurðardóttir garðyrkju-fræðingur, sem rekur gróðurstöðina
Glitbrá í Sandgerði, segir farir sínar ekki
sléttar á síðu fyrir Sandgerðinga á Facebook.
Gunnhildur Ása hefur undanfarin ár gróður-
sett tré í heiðinni fyrir ofan Sandgerði. Nú er
svo komið að trjám sem hún hefur gróðursett
í heiðinni hefur ítrekað verið stolið.
„Í gegnum tíðina hef ég plantað nokkrum trjám
á ári uppi í heiði til að leggja mitt af mörkum
við að græða landið, hefta moldrok, gera smá
skjól fyrir bæinn minn, til að fegra og bara mér
og vonandi öðrum einhvern tíma til ánægju,“
segir Gunnhildur Ása og bætir við: „Á hverju
ári verð ég fyrir gífurlegum vonbrigðum þar
sem ég sé auðar holur þar sem eitthvert tréð stóð
tignarlegt og allt upp í 1,5 m á hæð árið áður.
Í kvöld (mánudagskvöld) fór ég í mína árlegu
gróðursetningarferð upp í heiði en þetta kvöld
kom ég með trén mín aftur heim. Ég plantaði
ekki mörgum trjám í fyrra, bara fjórum en þau
voru í stærri kantinum 3-4 ára tré og það er
búið að stela þeim. Ég get engan veginn skilið af
hverju þetta fær ekki að vera í friði? Ég var svo
vitlaus að halda að þetta væri greiði við okkur
öll! Vonandi kemur sá tími að við hættum að
hugsa bara um okkur sjálf og lærum að deila og
njóta,“ segir Gunnhildur Ása á Facebook-síðu
Sandgerðinga.
n
Í kjölfar úttektar mennta- og menningarmálaráðuneytis á
starfsemi Grunnskóla Grinda-
víkur í apríl síðastliðnum var að
tillögu fræðslunefndar skipaður
starfshópur til að vinna að tíma-
settri áætlun um umbætur.
Starfshópinn skipuðu Róbert
Ragnarsson, bæjarstjóri, Bryndís
Gunnlaugsdóttir, bæjarfulltrúi,
Halldóra Kr. Magnúsdóttir, skóla-
stjóri, Nökkvi Már Jónsson, sviðs-
stjóri félagsþjónustu- og fræðslu-
sviðs og Klara Halldórsdóttir for-
maður fræðslunefndar, auk Ben-
nýjar Óskar Harðardóttur, fulltrúa
kennara samkvæmt tilnefningu
grunnskólakennara og Ingvars Þórs
Gunnlaugssonar fulltrúa foreldra
samkvæmt tilnefningu foreldrafé-
lags Grunnskóla Grindavíkur.
Starfshópurinn skilaði umbóta-
áætlun til ráðuneytis í maí síðast-
liðnum. Starfsfólk ráðuneytis hefur
nú yfirfarið áætlunina og staðfest
hana. Framundan er skemmtileg
vinna við að gera góðan skóla enn
betri, segir á heimasíðu Grinda-
víkurbæjar.
›› FRÉTTIR ‹‹
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Þróttar í Vogum
Tinna Hallgrímsdóttir hefur verið ráðinn nýr fram-
kvæmdastjóri hjá Ungmenna-
félaginu Þrótti og mun hún hefja
störf í byrjun ágúst.
Starfshlutfall framkvæmdastjóra
hefur hingað til verið 30% en hefur
nú með nýrri ráðningu verið aukið
og verður eftirleiðis 50% starf.
Viðvera á skrifstofu verður meiri en
hefur verið áður og er ætlunin að
efla starfið til muna.
Tinna er með BA-gráðu frá Há-
skóla Íslands í Tómstunda- og
félagsmálafræðum og hefur mikla
reynslu af starfi með ungu fólki og
þekkja hana flestir sem hafa komið
í félagsmiðstöðina okkar hér í Vog-
unum, enda hefur hún starfað lengi
þar.
Tinna er auk þess heimamaður og
bindur stjórn UMFÞ miklar vonir
við hennar störf í framtíðinni.
Þakka vel
heppnaða Sól-
seturshátíð
Þakkir til Íþróttafélagsins Víðis og Björgunarsveitar-
innar Ægis fyrir vel heppnaða
Sólseturshátíð komu fram á fundi
bæjarráðs Garðs nú í vikunni.
„Bæjarráð þakkar þeim fjölmörgu
sem með samtakamætti sínum
lögðu sig fram um að gera Sól-
seturshátíðina sem glæsilegasta.
Sérstaklega ber að geta um ánægju
með fjölbreytta íþróttaviðburði á
hátíðinni, sem heppnuðust frábær-
lega og höfðuðu vel til íbúa“.
Greiða 18,5 milljónir í við-
hald fasteigna EFF í Vogum
Leikvöllur við Brekkustíg í
Sandgerði endurnýjaður
Hoppað í hafið við Njarðvíkurhöfn
Trjám stolið úr heiðinni ofan við Sandgerði
Umbótaáætlun
komin fram
Það var líf og fjör hjá Unglingadeildinni Kletti, sem starfar undir Björgunarsveitinni Suðurnes, við Njarðvíkur-
höfn í síðustu viku. Ungmennin klælddu sig upp í viðeigandi búninga og stukku svo í höfnina með viðeigandi
skvettum. Eins og sjá má á þessari mynd leyndi kátínan sér ekki hjá krökkunum.