Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.07.2012, Side 12

Víkurfréttir - 05.07.2012, Side 12
FIMMTUDAGURINN 5. júlí 2012 • VÍKURFRÉTTIR12 Nú þegar grill- tímabilið stendur sem hæst er upplagt að deila með ykkur léttum og heilsusam- legum uppskriftum að sósum með grillmatnum. Þær má nota með grilluðu grænmeti, fiski, kjúkling og kjöti eftir smekk hvers og eins. Þessar sósur eru afskaplega einfaldar og fljót- legar og auðvitað reynum við að hafa þær í hollari kantinum og fullar af góðri næringu! Graslaukssósa: 1 dós sýrður rjómi 5% 1-2 hvítlauksrif pressuð 3 msk saxaður graslaukur 1 msk sítrónusafi Salt/pipar *Öllu blandað saman í skál. Agúrku raita sósa: 1 agúrka ½ dós grísk jógúrt 1 hvítlauksrif ½ tsk kumin duft 1-2 vorlaukar saxaðir Fersk mynta söxuð Salt/pipar *Agúrkan rifin gróft niður á rifjárni, þá er hún söltuð og látin standa í nokkrar mín. Hinu blandað saman og svo agúrku bætt saman við. Satay hnetusósa: 125 gr gróft lífrænt hnetusmjör 1 fínt saxaður skalottulaukur 1 tsk saxað engifer 1 kjarnhreinsaður rauður chili pipar 300 ml kókósmjólk eða sýrður rjómi Safi úr 1/2 lime 1 tsk pálmasykur 1 tsk tamari sojasósa ¼ búnt ferskt kóríander *Allt sett í matvinnslu- vél eða blandara. Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/ grasalaeknir.is www.facebook.com/grasalaeknir.is ›› Bragi Einarsson skrifar um skólamál í Garði: ÝMISLEGT Tek að mér allskonar viðgerð- ir á bílum, sláttuvélum. Er með greiningartölvu til að bilanagreina margar tegundir bíla. Vanur mað- ur, 20 ára reynsla, sanngjarnt verð! Uppl. S: 864 3567. ÓSKAST Bráðvantar íbúð! Er ekki einhver sem getur leigt mér 3ja herbergja íbúð? Ég er 100% leigjandi, með mjög góð með- mæli. Nota ekki áfengi né tóbak. Öruggar greiðslur. Upplýsingar í síma 897 2570 . Óskum eftir 3-4 herbergja íbúð til langtímaleigu helst í Ytri- Njarðvík. Upplýsingar í síma 691 1745 eða 690 1745. 2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0000 NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS TIL LEIGU D.IBSEN ehf. bÍlastofa davÍÐs ALLAR ALMENNAR BÍLAVIÐGERÐIR Grófin 7 e-mail: dibsen@mitt.is Sími: 421-1415 SUÐURNES Helguvík - Berghólabraut 27 Komdu með öll raftæki, brotajárn og málma til okkar í Helguvík! Við borgum þér fyrir flesta málma. - Skilum betur til baka Fáðu pening fyrir gamla bílinn þinn. Farðu með hann til Bílastofu Davíðs, Grófinni 7 eða hringdu í 421-1415 og við sækjum hann. Hringrás smáauglýsing 1a.indd 1 5/30/12 2:36:11 PM TIL SÖLU Combi camp Combi camp vagn 94 árgerð. 7 manna vagn af stærri gerðinni. Uppl. í 772 1728 og 898 0170. Lítið hjólhýsi Hjólhýsi til sölu, svefnpláss fyr- ir 3. Ný gasmiðstöð. Árgerð 88. Upplýsingar í síma 864 2313. Volkswagen Polo Árg. 1998, til sölu, keyrður 181.000 km. Nýskoðaður. Góður bíll. Nýleg heilsársdekk. Tilboð óskast. Sími 866 8098. 896 0364 Raflagnir & viðgerðir Þvottavélaviðgerðir Forvarnir með næringu STAPAFELL Hafnargötu 50, Keflavík NÝTT Opið alla daga fram á kvöld Studíóíbúð í miðbæ Keflavíkur, allur búnaður fylgir. Uppl. í síma 698 7626. Einbýlishús til leigu Einbýlishús til leigu í Innri- Njarðvík í göngufæri við Akurskóla og tvo leikskóla, í a.m.k. 1 ár. Gæludýr ekki leyfð. Upplýsingar í síma 891 6204. Raðhús í Innri Njarðvík til leigu 135 fm 4ra herbergja raðhús til leigu í Innri Njarðvík. Leiguverð er 150.000 kr. auk hita og rafmagns. Óskað er eftir bankaábyrgð sem nemur 3ja mánaða leigu. Húsið er laust til leigu. Frekari upplýsingar í síma 691 3318. HÚSAVIÐGERÐIR Tilboð óskast! Tilboð óskast í endurnýjun á neysluvatnslögnum að Brekkustíg 35b Njarðvík. Tilboð berist á net- fangið huldamar@visir.is fyrir 15. júlí 2012. Húsfélag Brekkustíg 35b. ALAFL ehf Alhliða málningarþjónusta, afslættir fyrir ellilífeyris­ þega og öryrkja. Fáðu fast verðtilboð þér að kostnaðarlausu. Ábyrgðir fylgja öllum verkum Haukur 779-0900 BOUTIQUE Hafnargata 54 Snyrtirvörur - Undirfatnaður - Sportfatnaður Í grein í VF þann 28. júní, kemur fyrrum formaður skólanefndar Gerðaskóla fram og talar um að undirritaður hafi í grein í Reykja- nesi „skautað“ léttilega framhjá staðreyndum sem koma fram í skýrslu Menntamálaráðuneytis um úttekt á Gerðaskóla. Í stóru máli og langri grein er ekki hægt að ætlast til að undirritaður fari í gegnum hvert einasta atriði sem kom þar fram í skýrslunni, bæði það sem kalla má neikvætt og það sem kalla má jákvætt, heitt og kalt, svart og hvítt. Greinin fjallaði ekki aðallega um það heldur það hugarástand sem samfélagið var komið í. Hins vegar hefur enginn starfs- maður skólans, mér vitanlega, þrætt fyrir það að Gerðaskóli sé laus við öll heimsins vandamál, langt í frá. Það sem ég benti á í grein minni sem birtist í Reykja- nesi fyrir hálfum mánuði, tók ég fram að téður fyrrum formaður skólanefndar og meirihluti bæjar- stjórnar, ákveða að reka skóla- stjóra, sem var að vinna vinnuna sína! Í tíð skólastjóra fór einelti úr 13% í 6% og rétt er að geta þess að í óformlegri könnun kennara skólans í vetur mældist einelti 5%. Það er samt of hátt en Guð má vita hvaða árangri hann hefði náð, hefði hann fengið frið til þess. Formaðurinn fyrrverandi kaus að „skauta“ framhjá þeirri staðreynd. Einnig kemur fram í sömu skýrslu að brottrekinn skólastjóri var mjög vinsæll meðal nemenda og starfs- fólks og að hann lagði sig fram við það að fylgjast vel með nemendum og starfsfólki og að þeim liði almennt vel. Formaðurinn fyrr- verandi kaus að „skauta“ fram hjá þeirri staðreynd. Af þeim sökum spurði ég mig þeirra spurninga í fyrra og í vetur: Hver var ástæðan fyrir því að reka skólastjóra sem sýndi það með óyggjandi hætti að starfsandi og líðan nemenda væri mjög góð í skólanum og hafði náð þessum árangri í eineltismálum? Spyr sá sem ekki veit, þrátt fyrir að kalla eftir þeim útskýringum. Ekki ætla ég að efast um að ásetningur manna hafi verið að vinna í þessum málum, en ég taldi þá að aðferðafræðin væri röng og stend við það! Ég spurði meirihluta bæjarstjórnar (bréflega) hvers vegna þeir fóru í þá aðför að skólanum á vordögum 2011, að fara að sameina skólana? Svörin voru á þá leið að það væri hagkvæmara þegar til lengri tíma er litið. Ok, rök út af fyrir sig en engin skýrsla eða úttekt lá fyrir því til sönnunar. Þegar bæjarbúar mótmæltu, var sú tillaga dregin til baka, bæði vegna andstöðu bæjar- búa og andstöðu innan meirihlut- ans! Það hefur komið fram áður í skrifum. Einmitt í þeirri orrahríð sem þá varð á milli manna, dró ég þá ályktun að eina ástæðan fyrir að sameina skólana væri að losna við skólastjórann og guð má vita hvaða skref bæjarstjórnin ætlaði sér að taka í kjölfarið. Það kom svo síðar í ljós með óyggjandi hætti! Hins vegar tek ég undir áhyggjur fyrrum formanns skólanefndar um þá stöðu sem skólinn mælist í PISA könnun um læsi og árangur þó ég sjái ekki hvað „kúlulán“ og afskriftir þeirra komi Gerða- skóla við, en fyrrum formaður skólanefndar veit kannski meira um það, tek undir áhyggjur hans varðandi „vandræðagemlinga“ eins og hann kýs að kalla, en bendi á að sjaldan veldur einn þegar tveir deila, og tek undir þá skoðun að eigi skal undan líta! Til þess að sporna við þessari þróun er ekki rétta aðferðin að valsa fram með einhverri leiftursókn, þar sem leysa átti málin fyrir kl. 10, heldur ætti að vinna að lausn þessara mála með virðingu fyrir skóla- samfélaginu og því góða fólki sem þar starfar og því frábæra unga fólki sem þar sækir vinnu sína, samvinnu með því m.a. að ráða til skólans sérkennara í íslensku og stærðfræði og leggja einnig áherslu á list-, tónmennt- og tæknigreinar, í stað þess að skera niður, og sjá svo árangurinn að einhverjum tíma liðnum. Því að árangur í skólastarfi mælist ekki í klukkustundum, heldur árum! Hefði þessi leið verið farin þyrfti bærinn ekki að borga starfs- lokalaun fyrir skólastjóra og bæjar- stjóra með ærnum tilkostnaði, því að með hluta af þeim peningum hefði verið hægt að skipuleggja hér gott skólastarf í virðingu, samvinnu og góðum árangri sem af því hlýst, í stað þess að setja sig í stellingar „við og þeir“. Það er orðin úldin aðferðafræði. Svo óska ég nýráðnum skóla- stjóra velfarnaðar í starfi og vona að samfélagið gefi honum og starfsfólki svigrúm til að vinna í friði fyrir öfgum og óbilgirni. Virðingarfyllst Bragi Einarsson, Garðbúi. Nokkrar góðar grillsósur „Á hÁlum ís“ Tafir á flugi til og frá landinu voru nær engar síðastliðnar tvær vikur. WOW air stóð sig best af íslensku félögunum. Frá þessu er greint á vefnum Túristi.is Rúmlega níu af hverjum tíu brottförum Icelandair, Iceland Express og WOW air stóðust áætlun á seinni hluta júnímánaðar. Í mínútum talið var seinkunin að jafnaði mjög stutt. Ferðasumarið fer því miklu betur af stað, þegar horft er til stundvísi á Keflavíkurflugvelli, en á síðasta ári. Í júní í fyrra voru t.a.m. aðeins 44,5 prósent brottfara á flugvellinum á tíma. Komutímar WOW air stóðust oftar en hjá hinum tveimur félögunum og nýliðarnir eru því stundvísasta félagið í Keflavík á seinni hluti júnímánaðar. Eins og áður er mikill munur á umsvifum félaganna þriggja. Icelandair flaug t.d. sjö sinnum oftar en Ice- land Express og ellefu sinnum oftar en WOW air til og frá landinu seinni tvær vikur júnímánaðar. WOW air stundvísast í Keflavík vf.is Víkurfréttir eru fluttar í Krossmóa 4 í Reykjanesbæ Krossmóa 4 • 4. hæð • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 0000

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.