Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.07.2012, Síða 14

Víkurfréttir - 05.07.2012, Síða 14
FIMMTUDAGURINN 5. júlí 2012 • VÍKURFRÉTTIR14 „Veistu Anna Lóa, stundum hugsa ég með mér, er ég virkilega að gera þetta“. Þetta voru orð fyrrverandi nemanda míns sem er að upplifa drauminn um að mennta sig. Þrátt fyrir efasemdir og ótta hefur hún tekið mikilvæg skref síðustu ár og er að uppskera eftir því. Orð hennar eru góð áminning um þá ábyrgð sem við berum sjálf á lífi okkar. Ég man eins og það hafi gerst í gær – fyrsti „stóri“ fyrirlesturinn var framundan og skipti mig miklu máli að allt gengi vel. Ég ofhugsaði alla hluti: þetta verður að vera fullkominn fyrirlestur, góð og skýr framsögn, glærurnar óaðfinnanlegar, fatnaður við hæfi, röddin mjúk og brosið á sínum stað!! Ég ætla að ná salnum, byrja á að segja eitthvað fyndið svo ég hrífi alla með mér, vera afslöppuð, hlýleg, og með útgeislun sem gerir rafmagnsljósin óþörf. Svo mætti ég á staðinn og fann allt í einu hvernig hjartað var komið upp í háls, óþægilegur þurrkur í hálsinum, sá ekki punktana mína fyrir móðu, litur á fatnaði alls ekki við hæfi þar sem svitablettirnir spruttu fram og eina sem virtist vera í lagi voru glærurnar. Þegar ég byrjaði að tala var stressið búið að ná yfirhöndinni sem gerði það að verkum að ég talaði allt of hratt og hátt og frussaði í stíl við það. Það var vægast sagt óhugnanleg lífsreynsla að upplifa að mér hafði tekist að frussa á einn hlustandann og athyglin beindist öll að því hvort hann mundi ganga út eða kalla yfir hópinn „er einhver með regnhlíf“ (sem hann gerði ekki – TAKK). Brandarinn sem ég ætlaði að nota í byrjun náði ekki tilætluðum áhrifum þar sem engum fannst hann fyndinn nema mér og ég óskaði þess af heilum hug að jörðin mundi opnast og gleypa mig. Eftir fyrirlesturinn sagði ég við sjálfa mig „þetta geri ég aldrei aftur“. En auðvitað gerði ég þetta aftur og með tímanum og æfingunni kom þetta, eins og allt annað sem við leggjum okkur fram við. Lífið þarf ekki að vera svona flókið en við erum flest sérfræðingar í að flækja það. Ef ég finn fyrir stressi í dag áður en ég á að halda fyrirlestur, reyni ég að hugsa: hvað er það versta sem getur gerst? ....að þeim líki ekki við mig eða það sem ég hef að segja. Get ég lifað með því – já það get ég og svo get ég líka skoðað hverju ég get breytt svo ég lendi ekki í sömu pyttunum aftur og aftur. Ég er hætt að taka sjálfa mig svona alvarlega og get hlegið af svona uppákomum í dag. Það er alveg sama hvað við tökum okkur fyrir hendur – ef við höfum ekki gert það áður þá er líklegt að við gerum einhver mistök. Flestir sem eru góðir í einhverju hafa verið duglegir að æfa sig en ekki endilega fæðst ótrúlega hæfileikaríkir. Ég heyrði afreksmann í íþróttum segja: „æfingin skapar ekki meistarann, en það gerir auka æfingin“. Við þurfum að hafa þetta í huga þegar við tökumst á við nýja hluti og gefa sjálfum okkur tækifæri til að æfa okkur þar til verðum betri. Ef við ætlum að bíða með að takast á við nýja hluti þar til verðum 100% klár á öllu, gætum við þurft að bíða alla ævi. Drifkrafturinn og öryggið kemur með framkvæmdinni – þú verður að leggja af stað í ferðina til að byrja æfingaferlið. Það eru ekki bara einhverjir útvaldir sem ná árangri – það eru þeir sem eru tilbúnir í auka æfinguna og halda af stað þrátt fyrir efasemdir og ótta. Þeir nemendur sem ég hef fylgt úr hlaði eru svo sannarlega sönnun þess. Vona að þú leyfir þér að eiga drauma og takir skref í átt að þeim. Nú ef þú skyldir hafa áhuga á að koma á fyrirlestur hjá mér þá hefur „frussið“ stór lagast en svona til öryggis þá er ég alltaf með nokkrar regnhlífar meðferðis! Þangað til næst – gangi þér vel. Anna Lóa Fylgstu með mér - http://www.facebook.com/Hamingjuhornid Frussandi fyrirlesari! Í kjölfar endurvinnslu gamalla frétta af hruni Sparisjóðsins í Keflavík og frágangi á yfirtöku Landsbankans á Sparisjóðnum hafa að undan- förnu spunnist upp alls kyns sögur og rang- færslur um málefni tengd Sparisjóðnum. Vissulega er rétt að fall Spari- sjóðsins er samfélaginu dýrt – það er okkur löngu ljóst. Nú keppast menn hins vegar við að kenna hver öðrum um ástæðu þess mikla kostnaðar sem hrun sjóðsins leiðir af sér. Sem betur fer er verið að rannsaka þessi mál öll ofan í kjölinn og von- andi á sú rannsókn eftir að leiða í ljós hvað fór úrskeiðis ef það er ekki þegar ljóst. Heita má ljóst að mistök voru gerð á mis- tök ofan, fyrir og eftir hrun. Ef einhver hefur áhuga á minni útgáfu af sannleikanum þangað til annað kemur í ljós, þá fer hér á eftir pistill frá undirrituðum sem leikmanni og áhorfanda í ýmsu því sem haldið hefur verið fram um menn og málefni tengd Sparisjóðnum. Þetta er ekki skrifað til að gera lítið úr því sem tapaðist við hrun Sparisjóðsins, öðru nær. Tilgangurinn er frekar sá að benda á staðreyndir og leið- rétta rangfærslur sem vísvitandi er haldið fram, líklega í pólitískum tilgangi. Þið sem nennið að lesa þetta getið dæmt hvert fyrir sig hvort allt sem þið lesið í DV eða heyrið á RÚV sé akkúrat eins og þar er haldið fram. Svo geta menn velt fyrir sér tilganginum með því að halda fram fullyrðingum sem augljóslega eru rangar. Eitt af því sem mönnum hefur orðið tíðrætt um í kringum Spari- sjóðinn er hvernig sjálfstæðismenn – og þá sérstaklega bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og jafnvel núverandi framkvæmdastjóri flokksins – gengu um sjóðinn á skítugum skónum og ryksuguðu til sín þaðan fé að vild. Þeir sem um fjalla telja fólki trú um að þar sé að finna megin ástæðuna fyrir falli Sparisjóðsins. Þeir sem trúa því sem þeir heyra á RÚV og lesa í DV eru eðlilega miður sín og sumir ganga svo langt að biðja fólk afsökunar á því að hafa þekkt og unnið með þessum misyndis- mönnum. Allt er þetta gert í anda þess að axla ábyrgð og biðjast afsökunar á sínum þætti í hruninu. Mér er málið nokkuð skylt, haf- andi verið einn af bæjarfulltrúum flokksins á árunum 2002-2010, og hafandi starfað í stjórn sjóðsins eftir hrun frá 2009-2010. Ég hef þokkalega yfirsýn yfir það hvernig bæjarfulltrúar tengdust Sparisjóðnum og hvernig hann var rekinn gagnvart mér sem við- skiptamanni frá blautu barnsbeini. Það vita allir sem eitthvað komu nálægt Sparisjóðnum, eða áttu við hann viðskipti, að honum var STJÓRNAÐ af Sparisjóðsstjór- anum. Ég segi það með stórum stöfum, því þannig var það. Hann hafði sér til halds og tausts starfs- menn í bankanum, sem höfðu tak- markaðar heimildir til útlána, en hann gat tekið sjálfstæðar ákvarð- anir um lánveitingar sem námu allt að 15% af eigin fé sjóðsins eins og það var skráð á hverjum tíma. Þannig voru reglur sjóðsins og höfðu verið um árabil. Stjórn sjóðsins hafði í raun lítið með útlán sjóðsins að gera og kom að takmörkuðu leyti að ákvörðunum um útlán úr sjóðnum. Stjórn var hins vegar upplýst af Sparisjóðs- stjóra um það hverjum var lánað og hverjir voru stærstu innlánseig- endur sjóðsins á mánaðarlegum fundum. Þetta má að sjálfsögðu gagnrýna, og FME gerði það á árinu 2008! Þá hafði Sparisjóðnum verið stjórnað með þessum hætti í 101 ár og það bara með ágætum árangri lengi vel. Nú tæpum fjórum árum eftir að bankakerfið á Íslandi hrundi er auðvitað mjög auðvelt að sitja í dómarasæti og sjá allar vitleysurnar sem menn gerðu. Það sem er hins vegar verra er þegar misgóðir fréttamenn, með misgöfuga hagsmuni að leiðarljósi leggja upp í pólitíska vegferð til að reyna að gera menn, sjálfstæðis- menn sérstaklega, að gerendum í falli Sparisjóðsins. Stóra myndin er auðvitað sú að Sparisjóðurinn féll vegna þess að bankakerfið á Íslandi hrundi. Ekki vegna þess að stjórnendur sjóðsins kusu Sjálf- stæðisflokkinn, eða vegna þess að honum var stjórnað af bæjarfull- trúm flokksins. Annars má lesa ágæta greiningu á vanda Spari- sjóðsins hér: http://mbl.is/vid- skipti/pistlar/marmixa/1245120/ Ein af fullyrðingunum sem haldið er svo stíft fram, að hörðustu sjálf- stæðismenn eru farnir að trúa þeim, er að bæjarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins hafi farið að vild um Sparisjóðinn og úthlutað sér og sínum lánum þaðan! Þessar fullyrðingar eru fjarri öllum sannleika. Það þykir hins vegar til óþurftar á Íslandi í dag að skemma góða frétt með sannleik- anum. Ég ætla samt að vera svo djarfur að upplýsa um viðskipti bæjarfulltrúa flokksins á árunum 2002-2010 eins og ég þekki þau. Það kann að vera að í einhverjum tilfellum gangi ég of langt, en þeir verða bara að eiga það við mig. 1. Árni Sigfússon – hann fékk eins og frægt er orðið erlent lán í Sparisjóðnum árið 2006 þegar hann byggði sér nýtt hús eins og fjölmargir aðrir gerðu á þeim tíma. Sömu reglur giltu um hann og alla aðra – ábyrgðir, húsið að veði o.s.frv. Þetta er allt löngu upplýst og þetta lán hefur að ég best veit verið meðhöndlað eins og önnur sambærileg lán og hefur aldrei verið í vanskilum. Um aðrar lán- veitingar var ekki að ræða til Árna, engar tug eða hundruð milljóna í hlutafjárbrask eins og oft hefur verið haldið fram og engin sérstök fyrirgreiðsla til hans umfram aðra. 2. Böðvar Jónsson – er eftir því sem ég best veit í viðskiptum við Íslandsbanka – man aldrei eftir honum í neinum sérstökum málum sem við komu Spari- sjóðnum. Hann stóð í einhverjum fasteignaviðskiptum í félagi við annan mann og tapaði örugglega á þeim eins og flestir aðrir. Þau viðskipti tengdust Sparisjóðnum ekki svo ég viti til, en ef þau gerðu það, þá hefur ekki verið um stórar upphæðir að ræða í því samhengi. 3. Þorsteinn Erlingsson – var stjórnarformaður í Sparisjóðnum árin fyrir hrun ásamt öðrum. Hlutverk þeirra var eins og lýst hefur verið hér að ofan. Eftir að FME gerði athugasemdir við starfshætti stjórnar, hafði Þor- steinn frumkvæði að því að breyta þeim í þá veru sem at- hugasemdirnar lutu að. Reynt hefur verið að gera tortryggilegt að Sparisjóðurinn greiddi fyrir flug Þorsteins frá Florida til Ís- lands og aftur til baka, þegar hann var kallaður heim úr sumarfríi skömmu eftir hrun til þess að mæta á krísufundi í stjórn sjóðs- ins. Það verður þó tæplega séð að manni sem kallaður er heim úr fríi til að sinna stjórnarsetu verði jafnframt gert að greiða ferða- kostnaðinn sem af ferðinni hlýst! n Þorsteinn á Saltver ehf. sem er útgerðarfyrirtæki í Reykjanesbæ, eitt örfárra sem eftir standa. Þor- steinn hefur verið manna fremstur í flokki á undanförnum árum í því að reyna að stuðla að atvinnuupp- byggingu í Reykjanesbæ. Hann hefur í þeirri viðleitni sinni keypt kvóta, byggt upp loðnu- vinnslu í Helguvík o.fl. allt án lánveitinga frá Sparisjóðnum. n Þorsteinn lagði ásamt sex öðrum aðilum (einn af þeim var Sparisjóðurinn) til hlutafé (áhættufé) í félagið Suður- nesjamenn, samtals 700 milljónir. Félagið var upphaflega stofnað ATVINNA Mamma Mía Í Grindavík óska eftir pizzubakara. Bæði í fullt starf og helgarvinnu. Reynsla og íslenskukunnátta skilyrði. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist til: mammamia@mammamia.is (algjörum trúnaði heitið). Vel borgað og skemmtilegt starf. Hægt er að hea störf strax. Að gefnu tilefni - staðreyndir um bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og fall Sparisjóðsins í Keflavík Frá átta til áttatíu ára í meistaramóti GS Meistaramót Golfklúbbs Suður-nesja hófst í vikunni en um 150 kylfingar eru skráðir til leiks á þessu stærsta innanfélagsmóti sumarsins. Ótrúleg þurrkatíð í byrjun sumars- ins hefur sett svip sinn á Hólmsvöll í Leiru sem sést vel á gulum brautunum en það er ekkert nýtt því undanfarin sumur hafa verið þurr. Flatirnar eru hins vegar fagurgrænar enda vökvaðar á hverjum degi og völlurinn í heild í flottu standi. Elsti keppandi er nærri 80 ára en yngsti keppandi í meistaramóti GS er hin pólska Kinga Korpak en hún hefur alist upp hér á landi og byrjaði ung að sækja golfvöllinn í Leiru. Kinga er 8 ára en verður 9 ára í lok árs. Hún hefur náð frábærum árangri í sumar og verið á verðlaunapalli í flokki 14 ára og yngri telpna á Áskorendamótaröð Golfsam- bands Íslands þrisvar sinnum í sumar og í eitt skiptið í efsta sæti.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.