Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.03.2012, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 08.03.2012, Blaðsíða 10
10 FIMMTUdagUrInn 8. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR Höfum við ekki öll lent í að vera vitur eftir á - eða finnast það sem okkur langar til að segja ekki nógu frambærilegt til að segja það upphátt! Hafa ekki flestir lent í uppákomum þar sem þeir hafa sagt eitthvað eða gert sem hefur annað hvort verið óviðeigandi eða heimskulegt og á þeirri stundu óskar maður einskis heitar en jörðin muni opnast og gleypa mann með húð og hári. Hvort ég lendi oftar í þessu en aðrir ætla ég ekkert að fullyrða um hér en þrátt fyrir að út úr mér hafi komið endemis vitleysa þá hef ég lært með tímanum að þrátt fyrir að ég segi eitt- hvað heimskulegt þá þýðir það ekki að ég sé heimsk. Það fer aftur á móti alveg eftir því hvernig mér líður þá stundina hvaða tilfinningar ég set í atburðinn. Ef ég er óörugg og líður ekki vel með sjálfa mig þá túlka ég allt á versta veg. Á móti kemur að þegar öryggið er til staðar og mér líður vel þá get ég mun frekar séð spaugilegu hliðarnar á aðstæðum og tek ekki lífið og sjálfa mig eins alvarlega. Þetta gerðist fyrir rúmum 18 árum síðan. sonur minn var veikur í eyrunum og fór ég með hann til sérfræðings. Ég fer inn til læknisins og sest á móti honum með son minn í fanginu þegar hann segir ,,við skulum byrja á því að kíkja vinstra megin, snúðu honum“. Ég verð eitthvað óörugg og spyr ,,ertu að tala um vinstra megin út frá þér eða út frá mér“ (duh - hann sat á móti okkur). Læknirinn horfði forviða á mig og hefur örugglega verið að hugsa á sama tíma hvort hann ætti að láta yfirvöld vita í hvaða höndum blessað barnið væri. Ég fór að afsaka mig og útskýra fyrir honum hvernig maður gæti ruglast á vinstra og hægra eyra. Þá segir hann þessa ógleymanlegu setningu ,,bara svo að það sé alveg á hreinu að þá er sonur þinn bara með eitt vinstra eyra“ síðan tók hann upp svona eyrnaskópíu, sneri syni mínum snöggt og kíkti inn í vinstra eyrað. doktorinn var frekar fámáll þegar hann kvaddi mig og mér leið hræðilega. sá hann fyrir mér með erindi á norrænni læknaráðstefnu ,,nu ved de ikke hvad er venstre og højre“. Ég hugsaði um fátt annað það sem eftir lifði dags og dró sjálfa mig niður: þú ert nú meiri vitleysingurinn, HVEr segir svona og hvað varstu eiginlega að hugsa. Var ekki lengi að finna líka allt að þessum lækni, þeim fúla manni sem ætti ekki skilið að halda læknaleyfinu. Þegar ég lagðist á koddann þetta kvöld var það ekki bara ég sem var heimsk heldur var læknirinn orðinn ömurlegur í ofanálag, óhæfur í mannlegum samskiptum og stéttinni til skammar. Ég get hlegið að þessu í dag - því það eru ekki aðstæður og atvik sem skipta öllu máli heldur okkar eigin viðhorf til þeirra. Læknirinn er heldur ekki alsaklaus í þessu máli. Það fyrsta sem maður lærir þegar maður ætlar að starfa við mann- leg samskipti er að mæta skjólstæðingnum á þeim stað sem hann er staddur hverju sinni. Hefði hann ekki getað séð húmorinn í þessu og sagt t.d.: skil þig vel, er sjálfur alltaf að lenda í þessu. Hefur þér ekki dottið í hug að merkja eyrun á syni þínum! Við hefðum hlegið í kjölfarið og málið dautt. nú hvað ef ég er ein af þeim sem ruglast á hægri og vinstri, á ég þá að þurfa að mæta fordómum sem þessum þegjandi og hljóðalaust. Ég velti mér upp úr því hvað lækninum fannst um mistök mín vegna þess að ég var óörugg og í kjölfarið fylgdi hugsunin ,,ég er heimsk“ og mér leið illa. Það má vel vera að honum hafi fundist það (og jafnvel fleirum) en sú hugsun hjálpar mér ekkert og er hvorki uppbyggileg né skapandi. sá sem gerir engin mistök gerir aldrei neitt. Við höfum öll gott af því að skoða hvers konar hugsanir eiga greiðan aðgang að okkur og við hvaða aðstæður. Eru hugsanir okkar raunsæjar og eiga þær við rök að styðjast, ef ekki þá ættum við að reyna að skipta þeim út fyrir aðrar og jákvæðari. Það er mikilvægt fyrir andlega líðan að leyfa sér að líða vel með sjálfum sér, kostum og göllum. Það hvernig við hugsum um okkur sjálf hefur áhrif á samskipti okkar við aðra og það er svo mikilvægt að við leyfum okkur að koma til dyranna eins og við erum klædd. Þegar við hættum að taka lífinu of alvarlega og beitum ekki dómhörku þegar okkur verður á, sjáum við það broslega við aðstæður eins og þær sem ég lýsi hér að ofan. Ég mundi bregðast allt öðruvísi við svona aðstæðum í dag. Ég mundi leyfa lækn- inum að klára skoðunina, þakka honum fyrir í lokin, en áður en ég gengi út frá honum mundi ég horfa einbeitt í augu hans, pota svo frekjulega með fingrinum inn í vinstra eyrað ,,hans“ og segja um leið: það má vel vera að hér sé vinstra eyrað á þér og þínum en þannig er það bara aLLs EKKI þaðan sem ég kem! ganga svo hnarreist og ákveðin út, ánægð með sjálfa mig. Þangað til næst - gangi þér vel Anna Lóa Sonur þinn er bara með eitt vinstra eyra! Melkorka Rós Hjartardóttir er 16 ára stúlka úr Vogunum sem gerði sér lítið fyrir og sigr- aði Söngkeppni félagsstöðva um síðastliðna helgi. Hún söng lagið Your song úr smiðju Elton John en Bríet Sunna Valdimardóttir og Gísli Þór Þórarinsson sömdu íslenskan texta við lagið. Melkorka hefur verið að syngja síðan hún var tveggja ára gömul en hún kemur úr fjölskyldu sem fæst töluvert við tónlist. Hún er miðju- barn í hópi sjö systkina en eldri systir hennar syngur líka og faðir hennar spilar á píanó. Í stofunni á heimili fjölskyldunnar í Vogunum er flygillinn þakinn nótum og á gólf- inu liggur magnari og við hann er tengdur hljóðnemi. „Við systurnar syngjum reglulega hérna og pabbi spilar jafnvel undir, hér er oft mikið um að vera,“ segir Melkorka en þær systur gerðu m.a. geisladisk fyrir síðustu jól sem gefinn var vinum og vandamönnum í jólagjöf. Um 12-13 ára aldur byrjaði Melkorka svo að koma fram í skólanum. „Þar sungum við vinkona mín á sam- verustundum og fólk hrósaði mér fyrir sönginn,“ við það jókst sjálfs- traust hennar og hún byrjaði að æfa sig heima fyrir. Hún segist ekki hafa verið feimin við að koma fram í gegnum tíðina og hana langar að læra söng í nánustu framtíð. „Það er bara svo dýrt,“ segir hún en hún er sjálflærð enn sem komið er. Hún hefur leitað til annarrar söngkonu úr Vogunum, Bríetar Sunnu Valdi- marsdóttur, og hún hefur leiðbeint henni í söngnum. „Hún hjálpaði mér mjög mikið sem og fyrrum textílkennarinn minn, en hún var sífellt að hvetja mig áfram og sagði að ég væri fædd til þess að syngja.“ Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Melkorka tekur þátt í söngkeppni Samfés en í ár var hennar þriðja framlag í keppninni. Fyrstu tvö skiptin komst hún í undanúrslit en aldrei í lokakeppnina sjálfa. Hún tók einnig þátt í jólastjörnum Björgvins Halldórssonar á síðasta ári og komst þar í 15 manna úrslit. Melkorka er uppalin í Vogunum en þangað fluttist hún þegar hún hóf nám í grunnskóla. Hún ætlar sér að hefja nám í FS næsta haust en hún er frekar heimakær og vill ekki vera í skóla sem er of langt í burtu. Hún segist ekki hafa verið stressuð þegar hún stóð á sviðinu með kynn- unum en fyrir keppnina örlaði fyrir smá kvíða. „Þegar ég var komin vel inn í lagið þá byrjaði ég að nötra og að því loknu kom nett spennu- fall.“ Á keppninni, sem haldin var í Laugardalshöll, voru líklega staddir á bilinu 2-3000 unglingar en Mel- korka segir að henni finnist það auðveldara að syngja fyrir svona fjölda heldur en eina manneskju. Hræðilegur hljóðfæraleikari Ég heyrði lagið í Moulin Rouge og var búin að heyra það í flutningi Elton John en ég féll fyrir því þegar ég heyrði Elle Goulding syngja það. „Ég var löngu búin að velja þetta lag og byrjuð að æfa það fyrir nokkru síðan. Melkorka segist hafa tekið þátt til þess að hafa gaman af, og til þess að vera með. „Líka til að láta ljós mitt skína en ég fæ töluvert út úr því að koma fram og syngja. Það bætir t.d. sjálfstraustið mikið þegar að fólk hrósar manni.“ Hana langar til þess að semja eigin tónlist en að eigin sögn er hún hræðilegur hljóðfæraleikari. Hún semur eigin texta en gafst ekki tími til þess að semja texta við lagið sem færði henni sigurinn. Hún tekur sjálfa sig upp og fer yfir það sem betur má fara og því má segja að hún sé sinn mesti gagn- rýnandi og þannig segist hún læra hvað mest. Hún segist pæla lítið í fyrirmyndum eða slíku, hún reynir bara að vera hún sjálf og vera já- kvæð. Hún segist fá smá athygli eftir sigur- inn og vel var tekið á móti henni í Vogunum við heimkomuna. Einnig biðu hennar fjöldi vinabeiðna og tilkynninga á facebook. Þetta kom fjölskyldu hennar töluvert á óvart en þau horfðu á keppnina heima í sjónvarpinu. „Marín, eldri systir mín hoppaði um af gleði og allir misstu sig af gleði. Þegar ég kom svo heim fékk ég eitt stórt hópknús og haldin var veisla um kvöldið.“ En getur Melkorka lýst tilfinning- unni þegar tilkynnt var um sigur- vegara? „Ég var að horfa í kringum mig þegar sigurvegarinn var til- kynntur því mig langaði að sjá svip- inn á þeim sem hefði unnið keppn- ina. Ég var ekkert að búast við því að ég ynni. Svo var búið að tilkynna nafnið og ég heyrði öskur frammi í sal og svo veit ég ekki fyrr en byrjað er að ýta við mér fram á svið. Þá átta ég mig og gjörsamlega spring af gleði, ég er enn að reyna að átta mig á þessu,“ segir þessi efnilega söngkona og blaðamaður hvetur fólk til að leggja nafnið Melkorka Rós Hjartardóttir á minnið, eflaust á eftir að heyrast meira frá henni í framtíðinni. n ›› Samfestingurinn, Söngkeppni Samfés: af gleðiSprakk Melkorka rós Hjartardóttir úr félagsmiðstöðinni Borunni í Vogum Samfestingurinn, Söngkeppni Samfés, var haldinn með pompi og prakt laugardaginn 3. mars. Þrjátíu atriði frá 30 mismunandi félagsmiðstöðvum sem öll voru sínum félagsmið- stöðvum til sóma. En fremst á meðal jafningja var Melkorka Rós Hjartardóttir úr félagsmið- stöðinni Borunni í Vogum á Vatnsleysuströnd en hún söng fallegt lag Elton John, Your song, sem útleggst á íslensku sem Eilíf ást. Í öðru sæti varð svo önnur Suðurnesjamær, Sólborg Guðbrandsdóttir úr Fjörheimum, Reykjanesbæ og því má segja að Suðurnesjamenn hafi sannarlega átt keppnina í ár.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.