Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.03.2012, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 08.03.2012, Blaðsíða 16
Fjörutíu og eitthvað Lífsklukkuna má nánast stilla að nýju upp úr fertugu. Það fer eitt-hvað að gefa sig. Flestir verða varir við að sjónin fer að daprast og enn annað að hanga eða slappast. Ég kvartaði nokkrum sinnum til áskriftardeildar Morgunblaðsins um að letrið væri að minnka og greinarnar að versna. Mogginn er reyndar orðinn hundgamall og ætti að vera löngu farinn að lýjast en ég var verulega ósáttur að geta ekki einu sinni orðið lesið íþróttafréttirnar. Frúin benti mér mæðuleg á svip að það fengjust ódýr gleraugu í apótekinu, í öllum styrkleikum og þættu bara nokkuð móðins. Og hættu svo að kvarta og kveina! Það var nokkuð til í þessu hjá henni og ég varð að bíta í það súra. Skokkaði niður á Tjarnargötu og keypti mér garma á nefið. Þúsund kall var ekki mikill peningur þá fyrir gjörð með gleri. Faldi mig heima til að byrja með, stalst öðru hvoru með þau í vinnuna og þegar egóið brast, leitaði ég loks til augnlæknis. Dró það í nokkur ár að viðurkenna að ég þurfti alvöru gleraugu. Ekki um annað að ræða en að heilsa upp á Kjartan og hans fólk. Ekkert nema þægilegheit og þjónusta. Mætti loks gal- vaskur í mátun á Ljósanótt 2008 og úrvalið var framar vonum. Töluvert betra en á Tjarnargötunni og með góðum afslætti að auki. Fyrstu gleraugun voru eins og að eignast fjórða barnið, sem reyndar aldrei kom. Taumlaus gleði og táraflóð. Númeraplötur á bílum vinanna urðu skýrari og ég gat loks farið að vinka þeim aftur. Áttaði mig á því að það er félagslegt atriði að sjá almennilega. Kjartan benti mér á að skrifstofukall eins og ég þyrfti auðvitað tvískipt gleraugu, rýnandi á skjáinn allan liðlangan daginn. Sé ekki eftir þeim ráðlegg- ingum. Hóf nýtt líf en var skíthræddur um að geta ekki notið þess að fara í golf og missa allt fjarlægðarskyn. Það lá ekki á svari á þeim bænum. Daglinsur í kallinn á svoleiðis dögum og sáraeinfalt að setja þær í. Mér leið eins og kóngi. Lausnir við öllu. Nú rúmum þremur árum síðar þarf meiri styrk og svo langar mig svakalega í nýja umgjörð. Mér var sagt að mæta og taka frúna með! Sennilega af fenginni reynslu og fyrri tregðu. Heimta samt nýja mynd með næsta pistli. vf.is Fimmtudagurinn 8. mars 2012 • 10. tölublað • 33. árgangur auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 FIMMTUDAGSVALS VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr 15 kr. afsláttur af lítranum í 10. hvert skipti sem þú dælir 25 lítrum eða meira með ÓB-lyklinum. Sjálfvirk talning hefst frá og með deginum í dag og gildir fyrir virka ÓB-lykla á öllum ÓB- og Olís-stöðvum. Sæktu um ÓB-lykil núna á ob.is. PI PA R \T BW A - S ÍA - 12 07 00 1. Sérafslættir (-10 kr. í fyrsta skipti, -10 kr. á afmælisdaginn og -15 kr. í 10. hvert skipti) koma ekki til viðbótar við aðra afslætti eða önnur viðskiptakjör. Nánar á ob.is. 2. Til að safna Vildarpunktum Icelandair þarf lykillinn að vera tengdur við Visa eða American Express Vildarkort Icelandair. Einnig er hægt að tengja lykilinn Viðskiptakorti Olís og safna Vildarpunktum. Punktasöfnun er 1,5% af upphæð, sem gerir um 3,75 kr. í formi Vildarpunkta Icelandair. Mikil tónlistarveisla var haldin á Garð-skaga um sl. helgi. Þar komu saman margar skærar stjörnur úr tónlistarlífi landsins fyrr og nú. Meðal þeirra sem komu fram voru Guðrún Gunnarsdóttir (söngur) og Gunnar Gunn- arsson (píanó), Gunnar Þórðarson, hinn eini sanni Keflvíkingur, Elín Ey, einn efnilegasti trúbador yngri kynslóðarinnar, Valgeir Guð- jónsson Stuðmaður með meiru, Nordisk Knock-Out, frábært vísnatríó frá Skandinavíu, Of Monsters and Men, stolt Garðsins og bráðum Íslands alls. Kynnir var Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson. Menningarveisla

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.