Víkurfréttir - 08.03.2012, Síða 10
10 FIMMTUdagUrInn 8. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Höfum við ekki öll lent í að vera vitur eftir á - eða finnast það sem okkur
langar til að segja ekki nógu frambærilegt til að segja það upphátt! Hafa
ekki flestir lent í uppákomum þar sem þeir hafa
sagt eitthvað eða gert sem hefur annað hvort verið
óviðeigandi eða heimskulegt og á þeirri stundu óskar
maður einskis heitar en jörðin muni opnast og gleypa
mann með húð og hári. Hvort ég lendi oftar í þessu
en aðrir ætla ég ekkert að fullyrða um hér en þrátt
fyrir að út úr mér hafi komið endemis vitleysa þá hef
ég lært með tímanum að þrátt fyrir að ég segi eitt-
hvað heimskulegt þá þýðir það ekki að ég sé heimsk.
Það fer aftur á móti alveg eftir því hvernig mér líður
þá stundina hvaða tilfinningar ég set í atburðinn. Ef
ég er óörugg og líður ekki vel með sjálfa mig þá túlka ég allt á versta veg.
Á móti kemur að þegar öryggið er til staðar og mér líður vel þá get ég mun
frekar séð spaugilegu hliðarnar á aðstæðum og tek ekki lífið og sjálfa mig
eins alvarlega.
Þetta gerðist fyrir rúmum 18 árum síðan. sonur minn var veikur í eyrunum og
fór ég með hann til sérfræðings. Ég fer inn til læknisins og sest á móti honum
með son minn í fanginu þegar hann segir ,,við skulum byrja á því að kíkja
vinstra megin, snúðu honum“. Ég verð eitthvað óörugg og spyr ,,ertu að tala um
vinstra megin út frá þér eða út frá mér“ (duh - hann sat á móti okkur). Læknirinn
horfði forviða á mig og hefur örugglega verið að hugsa á sama tíma hvort hann
ætti að láta yfirvöld vita í hvaða höndum blessað barnið væri. Ég fór að afsaka
mig og útskýra fyrir honum hvernig maður gæti ruglast á vinstra og hægra
eyra. Þá segir hann þessa ógleymanlegu setningu ,,bara svo að það sé alveg á
hreinu að þá er sonur þinn bara með eitt vinstra eyra“ síðan tók hann upp svona
eyrnaskópíu, sneri syni mínum snöggt og kíkti inn í vinstra eyrað. doktorinn
var frekar fámáll þegar hann kvaddi mig og mér leið hræðilega. sá hann fyrir
mér með erindi á norrænni læknaráðstefnu ,,nu ved de ikke hvad er venstre
og højre“. Ég hugsaði um fátt annað það sem eftir lifði dags og dró sjálfa mig
niður: þú ert nú meiri vitleysingurinn, HVEr segir svona og hvað varstu eiginlega
að hugsa. Var ekki lengi að finna líka allt að þessum lækni, þeim fúla manni sem
ætti ekki skilið að halda læknaleyfinu. Þegar ég lagðist á koddann þetta kvöld
var það ekki bara ég sem var heimsk heldur var læknirinn orðinn ömurlegur í
ofanálag, óhæfur í mannlegum samskiptum og stéttinni til skammar.
Ég get hlegið að þessu í dag - því það eru ekki aðstæður og atvik sem skipta
öllu máli heldur okkar eigin viðhorf til þeirra. Læknirinn er heldur ekki alsaklaus
í þessu máli. Það fyrsta sem maður lærir þegar maður ætlar að starfa við mann-
leg samskipti er að mæta skjólstæðingnum á þeim stað sem hann er staddur
hverju sinni. Hefði hann ekki getað séð húmorinn í þessu og sagt t.d.: skil þig
vel, er sjálfur alltaf að lenda í þessu. Hefur þér ekki dottið í hug að merkja eyrun
á syni þínum! Við hefðum hlegið í kjölfarið og málið dautt. nú hvað ef ég er ein
af þeim sem ruglast á hægri og vinstri, á ég þá að þurfa að mæta fordómum
sem þessum þegjandi og hljóðalaust. Ég velti mér upp úr því hvað lækninum
fannst um mistök mín vegna þess að ég var óörugg og í kjölfarið fylgdi hugsunin
,,ég er heimsk“ og mér leið illa. Það má vel vera að honum hafi fundist það
(og jafnvel fleirum) en sú hugsun hjálpar mér ekkert og er hvorki uppbyggileg
né skapandi. sá sem gerir engin mistök gerir aldrei neitt. Við höfum öll gott af
því að skoða hvers konar hugsanir eiga greiðan aðgang að okkur og við hvaða
aðstæður. Eru hugsanir okkar raunsæjar og eiga þær við rök að styðjast, ef
ekki þá ættum við að reyna að skipta þeim út fyrir aðrar og jákvæðari. Það er
mikilvægt fyrir andlega líðan að leyfa sér að líða vel með sjálfum sér, kostum og
göllum. Það hvernig við hugsum um okkur sjálf hefur áhrif á samskipti okkar
við aðra og það er svo mikilvægt að við leyfum okkur að koma til dyranna eins
og við erum klædd. Þegar við hættum að taka lífinu of alvarlega og beitum ekki
dómhörku þegar okkur verður á, sjáum við það broslega við aðstæður eins og
þær sem ég lýsi hér að ofan.
Ég mundi bregðast allt öðruvísi við svona aðstæðum í dag. Ég mundi leyfa lækn-
inum að klára skoðunina, þakka honum fyrir í lokin, en áður en ég gengi út frá
honum mundi ég horfa einbeitt í augu hans, pota svo frekjulega með fingrinum
inn í vinstra eyrað ,,hans“ og segja um leið: það má vel vera að hér sé vinstra
eyrað á þér og þínum en þannig er það bara aLLs EKKI þaðan sem ég kem!
ganga svo hnarreist og ákveðin út, ánægð með sjálfa mig.
Þangað til næst - gangi þér vel
Anna Lóa
Sonur þinn er bara
með eitt vinstra eyra!
Melkorka Rós Hjartardóttir er 16 ára stúlka úr Vogunum
sem gerði sér lítið fyrir og sigr-
aði Söngkeppni félagsstöðva um
síðastliðna helgi. Hún söng lagið
Your song úr smiðju Elton John
en Bríet Sunna Valdimardóttir
og Gísli Þór Þórarinsson sömdu
íslenskan texta við lagið.
Melkorka hefur verið að syngja
síðan hún var tveggja ára gömul en
hún kemur úr fjölskyldu sem fæst
töluvert við tónlist. Hún er miðju-
barn í hópi sjö systkina en eldri
systir hennar syngur líka og faðir
hennar spilar á píanó. Í stofunni á
heimili fjölskyldunnar í Vogunum
er flygillinn þakinn nótum og á gólf-
inu liggur magnari og við hann er
tengdur hljóðnemi. „Við systurnar
syngjum reglulega hérna og pabbi
spilar jafnvel undir, hér er oft mikið
um að vera,“ segir Melkorka en þær
systur gerðu m.a. geisladisk fyrir
síðustu jól sem gefinn var vinum
og vandamönnum í jólagjöf. Um
12-13 ára aldur byrjaði Melkorka
svo að koma fram í skólanum. „Þar
sungum við vinkona mín á sam-
verustundum og fólk hrósaði mér
fyrir sönginn,“ við það jókst sjálfs-
traust hennar og hún byrjaði að
æfa sig heima fyrir. Hún segist ekki
hafa verið feimin við að koma fram
í gegnum tíðina og hana langar að
læra söng í nánustu framtíð. „Það
er bara svo dýrt,“ segir hún en hún
er sjálflærð enn sem komið er. Hún
hefur leitað til annarrar söngkonu
úr Vogunum, Bríetar Sunnu Valdi-
marsdóttur, og hún hefur leiðbeint
henni í söngnum. „Hún hjálpaði
mér mjög mikið sem og fyrrum
textílkennarinn minn, en hún var
sífellt að hvetja mig áfram og sagði
að ég væri fædd til þess að syngja.“
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem
Melkorka tekur þátt í söngkeppni
Samfés en í ár var hennar þriðja
framlag í keppninni. Fyrstu tvö
skiptin komst hún í undanúrslit
en aldrei í lokakeppnina sjálfa.
Hún tók einnig þátt í jólastjörnum
Björgvins Halldórssonar á síðasta
ári og komst þar í 15 manna úrslit.
Melkorka er uppalin í Vogunum en
þangað fluttist hún þegar hún hóf
nám í grunnskóla. Hún ætlar sér að
hefja nám í FS næsta haust en hún
er frekar heimakær og vill ekki vera
í skóla sem er of langt í burtu.
Hún segist ekki hafa verið stressuð
þegar hún stóð á sviðinu með kynn-
unum en fyrir keppnina örlaði fyrir
smá kvíða. „Þegar ég var komin vel
inn í lagið þá byrjaði ég að nötra
og að því loknu kom nett spennu-
fall.“ Á keppninni, sem haldin var í
Laugardalshöll, voru líklega staddir
á bilinu 2-3000 unglingar en Mel-
korka segir að henni finnist það
auðveldara að syngja fyrir svona
fjölda heldur en eina manneskju.
Hræðilegur hljóðfæraleikari
Ég heyrði lagið í Moulin Rouge og
var búin að heyra það í flutningi
Elton John en ég féll fyrir því þegar
ég heyrði Elle Goulding syngja
það. „Ég var löngu búin að velja
þetta lag og byrjuð að æfa það fyrir
nokkru síðan. Melkorka segist hafa
tekið þátt til þess að hafa gaman af,
og til þess að vera með. „Líka til að
láta ljós mitt skína en ég fæ töluvert
út úr því að koma fram og syngja.
Það bætir t.d. sjálfstraustið mikið
þegar að fólk hrósar manni.“ Hana
langar til þess að semja eigin tónlist
en að eigin sögn er hún hræðilegur
hljóðfæraleikari. Hún semur eigin
texta en gafst ekki tími til þess að
semja texta við lagið sem færði
henni sigurinn.
Hún tekur sjálfa sig upp og fer yfir
það sem betur má fara og því má
segja að hún sé sinn mesti gagn-
rýnandi og þannig segist hún læra
hvað mest. Hún segist pæla lítið í
fyrirmyndum eða slíku, hún reynir
bara að vera hún sjálf og vera já-
kvæð.
Hún segist fá smá athygli eftir sigur-
inn og vel var tekið á móti henni í
Vogunum við heimkomuna. Einnig
biðu hennar fjöldi vinabeiðna og
tilkynninga á facebook. Þetta kom
fjölskyldu hennar töluvert á óvart
en þau horfðu á keppnina heima
í sjónvarpinu. „Marín, eldri systir
mín hoppaði um af gleði og allir
misstu sig af gleði. Þegar ég kom
svo heim fékk ég eitt stórt hópknús
og haldin var veisla um kvöldið.“
En getur Melkorka lýst tilfinning-
unni þegar tilkynnt var um sigur-
vegara? „Ég var að horfa í kringum
mig þegar sigurvegarinn var til-
kynntur því mig langaði að sjá svip-
inn á þeim sem hefði unnið keppn-
ina. Ég var ekkert að búast við því
að ég ynni. Svo var búið að tilkynna
nafnið og ég heyrði öskur frammi í
sal og svo veit ég ekki fyrr en byrjað
er að ýta við mér fram á svið. Þá
átta ég mig og gjörsamlega spring
af gleði, ég er enn að reyna að átta
mig á þessu,“ segir þessi efnilega
söngkona og blaðamaður hvetur
fólk til að leggja nafnið Melkorka
Rós Hjartardóttir á minnið, eflaust
á eftir að heyrast meira frá henni í
framtíðinni.
n
›› Samfestingurinn, Söngkeppni Samfés:
af gleðiSprakk
Melkorka rós Hjartardóttir
úr félagsmiðstöðinni Borunni í Vogum
Samfestingurinn, Söngkeppni Samfés, var haldinn með pompi og prakt laugardaginn 3.
mars. Þrjátíu atriði frá 30 mismunandi félagsmiðstöðvum sem öll voru sínum félagsmið-
stöðvum til sóma. En fremst á meðal jafningja var Melkorka Rós Hjartardóttir úr félagsmið-
stöðinni Borunni í Vogum á Vatnsleysuströnd en hún söng fallegt lag Elton John, Your song,
sem útleggst á íslensku sem Eilíf ást. Í öðru sæti varð svo önnur Suðurnesjamær, Sólborg
Guðbrandsdóttir úr Fjörheimum, Reykjanesbæ og því má segja að Suðurnesjamenn hafi
sannarlega átt keppnina í ár.