Víkurfréttir - 08.03.2012, Qupperneq 12
12 FIMMTUdagUrInn 8. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Nú hefur mikil umræða farið af
stað um Kölku. Ljóst er að fjár-
hagsvandi hefur verið verulegur
frá byggingu stöðvarinnar árið
2004. Hver er staða fyrirtækisins?
Það voru ærin verkefni sem biðu
nýrrar stjórnar þegar hún tók við í
ágúst 2010. Söluferli stöðvarinnar
hafði siglt í strand og allt það ferli
staðið í vegi fyrir endurskipulagn-
ingu í rekstrinum. Þá var einmitt
um að ræða erlenda aðila sem
ætluðu sér að flytja inn spilliefni til
brennslu. Maður spyr sig: Hvar var
umræðan þá? Heildarskuldir námu
um 1,3 milljörðum og eigið fé nei-
kvætt upp á um 600 milljónir. Ljóst
var að uppsafnaður vandi frá upp-
hafi reksturs í Helguvík var mikill.
Frá því að rekstur hófst hafði verið
samfellt tap í 6 ár. 2004 var tap
ársins um 4 milljónir. 2005 var
tap ársins um 66 milljónir. Árið
2006 var tap ársins um 202 millj-
ónir. 2007 var tap ársins um 50
milljónir. 2008 var tap ársins um
597 milljónir. 2009 var tap ársins
um 101 milljón. Og rekstrartapið
hljóp á tugum milljóna meira og
minna allt tímabilið. Þannig að
staðan var mjög erfið og margir
lausir endar í félaginu. Þess verður
þó að geta að erlendar skuld-
bindingar stöðvarinnar hækkuðu
um tæplega 460 milljónir króna
á milli áranna 2007 og 2008.
Hrunið hafði sitt að segja um
skuldastöðuna en hvernig
hefur verið tekið á fjármálum
og stjórn fyrirtækisins?
Verkefnið var og er að endurskipu-
leggja starfsemina með það að
markmiði að bæta rekstrarafkomu
og fjárhagsstöðu. Mikil vinna
hefur farið fram og stendur enn
yfir. Búið er að fara í miklar
hagræðingaraðgerðir þar sem
kostnaður hefur lækkað töluvert
og tekjur aukist, breyta skipuriti
stöðvarinnar, sameina stöðugildi
og ný yfirstjórn hefur tekið til
starfa. Búið er að færa yfirstjór-
nina alla út í Helguvík en áður var
sú starfsemi á tveimur stöðum og
auka nýtingarhlutfall stöðvarinnar
sem er í dag um 80% – brennd
voru um 9.800 tonn 2011. Sam-
vinna við lánardrottna hefur
gengið mjög vel og skuldir hafa
lækkað þó nokkuð í samræmi við
árangur endurskipulagningarfer-
ilsins. Fjármagnskostnaður hefur
lækkað og búið er að semja um
erlendar skuldbindingar félags-
ins. Niðurstaðan er skýr – það er
búið að hreinsa til og árangurinn
má lesa út úr uppgjörstölum
Kölku: Hagnaður fyrir afskriftir
og fjármagnsliði árið 2010 var
45 milljónir og hagnaður ársins
44 milljónir. Hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði árið 2011
var um 85 milljónir og hagnaður
ársins um 225 milljónir. Skuldir
hafa lækkað úr um 1.300 millj-
ónum niður í um 950 milljónir
og neikvætt eigið fé hefur lækkað
um meira en helming. Þannig að
það má segja að endurskipulagn-
ingarferlið sé meira en hálfnað.
En betur má ef duga skal. Það
þarf að breyta neikvæðu eigin fé
í jákvætt. Markmiðið er vitanlega
að reksturinn verði sjálfbær.
Nú tók nýr framkvæmdastjóri
við á síðasta ári – hvernig
hefur hann staðið sig?
Jón Norðfjörð tók til starfa í
júlí á síðasta ári og hefur komið
mörgum góðum breytingum til
leiðar sem hafa skilað sér í betri
afkomu. Helstu áhersluatriði
stjórnar við mat á hæfnisþáttum
í ráðningarferli framkvæmda-
stjóra voru reynsla af stjórnun og
fyrirtækjarekstri ásamt reynslu
af breytingastjórnun eða endur-
skipulagningu fyrirtækja. Jón
er hokinn af reynslu á þessum
vígvelli eins og flestir þekkja og
hefur það nýst fyrirtækinu afar vel.
Einnig vil ég bæta því við að starfs-
menn stöðvarinnar hafa staðið sig
virkilega vel og samstarfið í stjórn-
inni hefur verið með ágætum.
Nú kom mikil umræða um
Kölku í kjölfar tilboðs banda-
rískra aðila í stöðina. Hvernig
verður tilboðið afgreitt?
Okkur barst þetta tilboð frá
Triumvirate Environmental upp á
um 1.250 milljónir íslenskra króna
en bókfært virði stöðvarinnar er
um 640 milljónir. Þeir hafa látið
í veðri vaka að þeir vilji flytja inn
sambærilegt sorp og við erum að
brenna í dag – og þannig fylla upp
í nýtingarhlutfallið og jafnvel ráð-
ast í stækkun. Eðlilega verða þeir
að fylgja lögum og reglum og fá til-
skilin leyfi frá Umhverfisráðuneyti
og Umhverfisstofnun til þess að
svo megi verða. Stjórn Kölku situr
í nafni sveitarfélaganna á Suður-
nesjum sem eru eigendur stöðvar-
innar – okkar niðurstaða var því
einföld: Við vísuðum málinu til
sveitarstjórna í hverjum ranni fyrir
sig til umræðu og ákvarðanatöku.
Þetta tilboð hljómar ekki vel í
eyrum fólks. Að flytja sorp frá
Bandaríkjunum til brennslu
-viðsnúningur á rekstri sorpeyðingarstöðvarinnar sem gæti þó endað í eigu stórs
bandarísks fyrirtækis sem sérhæfir sig í sorpbrennslu
Tiltekt gengur vel í Kölku
á Íslandi. En hér koma miklir
peningar vissulega til skjalanna.
Fulltrúar Triumvirate Environ-
mental eru að tala um að brenna
sambærilegt sorp og við erum að
brenna í dag. Í þessu samhengi má
líka benda á að stöðin var byggð
að hluta til vegna Bandaríkjahers
og við brenndum bandarískt
sorp til fjölda ára. Ennfremur má
benda á að Bandaríkjamenn senda
sorp til margra Evrópulanda til
brennslu í dag. Við Íslendingar
sendum líka spilliefni úr landi til
förgunar og urðunar í Evrópu og
einnig má benda á að brennslur í
Skandinavíu hafa verið að kaupa
sorp í miklu magni frá Mið-
Evrópu sem hefur verið brennt til
orkuframleiðslu. Auðvitað verður
að skoða þetta í réttu samhengi
og ekki aðeins festa augun við eitt
sjónarhorn. Ef þessir aðilar fá leyfi
frá viðkomandi stofnunum og
fylgja vitanlega öllum lögum og
reglum og lækka mögulega sorp-
kostnað sveitarfélaganna er vert
að skoða málið. Það er í höndum
sveitarstjórna á Suðurnesjum.
Hvað með sorpbrennslu fyrir
svæðið ef ákveðið verður
að selja fyrirtækið?
Triumvirate hefur byggt sitt tilboð
á því að þeir brenni áfram sorpi
fyrir sveitarfélögin á svæðinu til
einhvers umsamins tíma. Jafnvel
er inni í myndinni að kostnaður
sveitarfélaganna gæti lækkað.
Aðlögunartíminn er væntanlega
samkomulagsatriði. Annars er
staðreyndin sú að í dag er urðun
mun ódýrari kostur fyrir sveitar-
félögin. En þetta er allt fljótt að
breytast – það stóð nú til á sínum
tíma að banna urðun í landinu.
Ef tilboði Bandaríkjamanna
verður ekki tekið, hvernig
sérðu þá fyrir þér rekstur
stöðvarinnar á næstu árum
með þennan skuldahala?
Við höldum þá áfram á sömu
braut. Þetta er fullkomnasta
brennslustöð landsins og býr yfir
mikilli sérstöðu. Við höfum leitað
leiða til að fylla upp í nýtingarhlut-
fallið með meira magni af úrgangi
sem falla undir hærri gjaldskrárliði
eins og t.d. spilliefni, mengaður
úrgangur, lífrænn úrgangur,
sjúkrahúsasorp, flugvélasorp og
skipasorp. Okkur hefur orðið
nokkuð ágengt og þar höfum við
skapað tekjur sem hlaupa á tugum
milljóna. Sú endurskipulagningar-
vinna sem er í gangi krefst mikillar
lagni til þess að ná meiri framlegð
með aukinni sorpbrennslu einni
og sér. Triumvirate er einmitt að
horfa í það að fylla upp í þetta gat
í nýtingarhlutfallinu með slíku
sorpi. Ég tel að hægt sé að hag-
ræða enn frekar í rekstrinum og
einnig vonumst við til að lánar-
drottnar komi betur til móts við
okkur. Ef salan gengur ekki í gegn
þá eru þrjár aðrar leiðir til að ná
niður skuldum; hagræðing með
betri rekstrarafkomu, leiðrétting
eða niðurfelling skulda eða að
leggja félaginu til aukið eigið fé.
Nú hefur borið á því að menn
hafa kastað rusli á Miðnesheiði –
telur þú að það eigi rætur að rekja
til gjaldheimtu á gámaplönum?
Það hefur verið gjaldtaka á endur-
vinnsluplönum hjá Sorpu og
víðar á landinu til fjölda ára með
góðum árangri. Hugsun okkar
með þessu er að þeir sem nota
umframþjónustu greiði fyrir hana.
Það verður að gera greinarmun á
aðila sem kemur með mikið magn
og hins sem fyllir eina tunnu á
10 dögum. Hér áður voru brögð
Mikill viðsnúningur hefur orðið í rekstri sorpeyðingarstöðvarinnar Kölku síðastliðin tvö ár. Eftir áralanga skuldasöfnun var hagn-
aður um 225 milljónir á árinu 2011 en mikil endurskipulagning hefur
staðið yfir undanfarin tvö ár. Ríkharður Ibsen, stjórnarformaður
Kölku svaraði spurningum Víkurfrétta en miklar umræður hafa verið
síðustu daga um tilboð bandarísks fyrirtækis í Kölku sem vill greiða
hátt verð fyrir stöðina og flytja inn sorp frá Bandaríkjunum til brennslu
í Helguvík.
að því að menn keyrðu með heilu
bílfarmana frá höfuðborgar-
svæðinu til að losa frítt á okkar
endurvinnsluplönum. Ljóst má
vera að venjulegt sorp í hóflegu
magni, garðaúrgangur og mörg
fleiri úrgangsefni eru gjaldfrjáls
á endurvinnsluplönum Kölku og
mjög hóflegt gjald er tekið fyrir
ákveðin úrgangsefni. Þessi umræða
hefur verið á villigötum að mörgu
leyti og manni finnst það heldur
kaldhæðnislegt þegar menn henda
ljósritunarvélum í túnfæti Kölku
þegar hægt er að koma með öll
raftæki til förgunar án endurgjalds.
En svona breytingar ganga svo sem
aldrei áfallalaust fyrir sig og við
vorum fyllilega meðvituð um það.
Nú hafa verið misjöfn við-
brögð við breyttri gjaldskrá.
Eftir mikla vinnu og samanburðar-
greiningu á markaðnum var okkar
gjaldskrám breytt. Það er reyndar
mikill munur á gjaldskrárliðum
hvað hækkanir varðar. Gjaldskrám
hafði ekki verið breytt í tæp tvö
ár og ljóst að reksturinn komst
ekki upp með óbreytt ástand. Auk
þess hafði ekki verið tekið tillit
til kostnaðar Kölku við brennslu
á mörgum úrgangsefnum. Þegar
fólk kynnir sér gjaldskrár okkar
þá sér það að um hóflegt gjald
er að ræða. En varðandi þann
möguleika að fólk hendi rusli á
víðavangi þá verður auðvitað hver
að taka ábyrgð á sínum gjörðum.
Við teljum að slíkt muni ekki
verða viðvarandi vandamál þegar
aðilar hafa kynnt sér málin. Á
heimasíðu Kölku www.kalka.
is má finna allar upplýsingar um
gjaldskrár, opnunartíma og sorp-
hirðudagatal fyrir öll Suðurnesin.
Askan, úrgangurinn úr
brennslunni í Kölku er upp-
safnaður vandi í orðsins fyllstu
merkingu. Hvað geturðu sagt
okkur um þann þátt og þann
möguleika að nýta öskuna í eitt-
hvað annað en að flytja hana
með skipum til útlanda?
Fyrst verður að koma því á fram-
færi að askan frá brennslunni
skiptist í botnösku og flugösku
(eða svifösku). Askan er í heild
um 20% af upprunalegri þyngd
sorpsins. Töluvert meira fellur
til af botnösku eða um 17% á
meðan um 3% kemur til vegna
flugösku. Þegar búið er að segla
málma úr botnöskunni fer hún í
fyllingarefni s.s. eins og í jarð- eða
hafnagerð eða til urðunar, en það
er þessi fína aska sem við köllum
flugösku sem er vandamálið. Já,
og þessi flugaska er uppsafnaður
vandi sem fylgdi með rekstrinum
þegar við tókum við. Við höfum
kannað margar leiðir til að finna
lausn á vandanum. M.a. hafa menn
skoðað leiðir til að minnka umfang
öskunnar með efnaferlum. Kannað
hefur verið hvort flugaskan geti
verið nýtt sem fylling í eldvarnar-
hurðir og til íblöndunar í steypu.
Nýjasta mögulega hugmyndin að
lausn er komin frá Nýsköpunar-
miðstöð Íslands en það er að nýta
flugöskuna í malbik. Ljóst má
vera að við munum áfram reyna
að kanna allar mögulegar leiðir
til að nýta öskuna en við höfum
einnig farið í gegnum það ferli að
urða hana erlendis, vitanlega með
tilheyrandi kostnaði. Ef það yrði
niðurstaðan þá værum við að flytja
spilliefni til urðunar í öðru landi.
Það er eitthvað sem mætti hugsa í
samhengi við innflutning á úrgangi
erlendis frá til brennslu hér.
n
Ríkharður og Jón með fulltrúa frá erlendu fyrirtæki sem kom og sótti
sýnishorn af ösku sem á að skoða frekari úrvinnslu á. Að neðan er
hins vegar grófari aska frá brennslunni.
Ríkharður Ibsen, stjórnarformaður Kölku.