Ægir - 01.04.2004, Blaðsíða 24
Æ G I S V I Ð TA L I Ð
24
Einnig sé ég fyrir mér aukinn útflutning lausfrystra
afurða, svo sem karfa, á Bandaríkjamarkað og til Jap-
an og ekki síður aukningu á útflutningi ferskra af-
urða en hann hefur skilað góðri framlegð og markað-
urinn er vaxandi.“
Sextán ára sjómaður
Kristján Þ. Davíðsson er fæddur og uppalinn á Þing-
eyri. Eins og títt er með ungmenni í sjávarþorpum
fór hann fljótt að starfa í fiskvinnslunni. „Á tólfta ár-
inu, árið 1972, fékk ég minn fyrsta launaseðil í
Hraðfrystihúsi Dýrfirðinga. Þar hafði ég þann starfa
að taka við fiskflökum sem komu úr flökunarvélinni
og bera í bakka yfir á roðflettivélina. Auðvitað var
þetta talsvert puð fyrir smápolla, en ég hafði gaman
af og líklega gott líka. Ég vann svo í fiski nánast öll
sumar-, jóla- og páskafrí eftir það, nema fermingar-
sumarið, en þá var ég bensíntittur í kaupfélaginu.
Áhugi minn á sjávarútveginum vaknaði því snemma
og 1977, á sautjánda árinu, var ég munstraður sem
háseti á línubátinn Framnes ÍS 608. Við vorum fyrst
á dagróðrum en beittum svo um borð ef ég man rétt,
vorum á útilegu og eltum þorsk og annan fisk, mest
líklega á Miklubrautinni út af Vestfjörðum, sem svo
var kölluð.“
Eftir þetta sæla sumar á sjónum innritaðist Krist-
ján til náms hjá Jóni Baldvini Hannibalssyni í
Menntaskólanum á Ísafirði og samhliða menntaskól-
anum stundaði hann nám í skipstjórnarfræðum sem
þá voru kennd í höfuðstað Vestfjarða. „Ég var strax
ákveðinn í því að verða skipstjóri og ætlaði bara að
eiga stúdentsprófið til vara,“ segir Kristján sem að
200 tonna réttindunum fengnum fór á Framnesið
aftur, í þetta sinn sem stýrimaður. „Þetta var sumarið
1978 og þá vorum við á útilegu norður við Kolbeins-
ey að skarkast í grálúðu, en veiddum lítið, sem
Með sameiningunni, sem tók gildi 1. maí sl., varð Sturlaugur Sturlaugsson forstjóri
HB Granda hf. og Kristján Þ. Davíðsson aðstoðarforstjóri. Yfirmenn fjármála, út-
gerðar, landvinnslu og veiða og vinnslu uppsjávarfisks eru sömu menn og áður
stýrðu þessum deildum hjá Granda hf.; Jóhann Sigurjónsson fjármálastjóri, Rúnar
Þór Stefánsson útgerðarstjóri, Svavar Svavarsson framleiðslustjóri og Torfi Þ. Þor-
steinsson deildarstjóri uppsjávarfiskdeildar. Haraldur Sturlaugsson, sem var fram-
kvæmdastjóri HB á Skaganum, er yfirmaður starfsmanna- og umhverfismála og
Eggert B. Guðmundsson yfirmaður markaðsmála. Nýr fjárreiðustjóri er Bergþór
Guðmundsson, sem gengt hefur starfi fjármálastjóra Haraldar Böðvarssonar hf.
mörg undanfarin ár.
Höfuðstöðvar og aðalskrifstofa HB Granda hf. er í Reykjavík og þar mun yfir-
stjórn fyrirtækisins hafa aðsetur. Undanskildir eru þó yfirmenn uppsjávarfiskdeild-
ar og starfsmanna- og umhverfismála, auk fjárreiðustjóra, en þeir munu hafa að-
setur á skrifstofu fyrirtækisins á Akranesi.
Þá hefur Eggert B. Guðmundsson verið ráðinn markaðsstjóri til að efla þann
þátt starfseminnar. Eggert er verkfræðingur og MBA að mennt og hefur undanfarin
ár starfað á sviði markaðsmála í Evrópu og Bandaríkjunum.
Stjórnskipulag HB Granda hf.
„Að minni hyggju hefur það auðveldað okkur sameiningarstarfið að áður en Eimskipafélagið eignaðist HB var Grandi þar nokkuð stór hluthafi, hugsanleg
sameining fyrirtækjanna var í deiglunni og samstarf var í gangi á ýmsum sviðum. Menn þekktu því nokkuð til aðstæðna á hvorum stað.“
Við leitumst við að stýra vinnslunni á
hverjum tíma þannig að afkastageta og
framlegð verði sem mest.