Ægir - 01.06.2006, Blaðsíða 4
4
E F N I S Y F I R L I T
Útgefandi: Athygli ehf. ISSN 0001-9038
Ritstjórn:
Athygli ehf. Hafnarstræti 82, Akureyri.
Sími 461-5151.
Ritstjóri:
Óskar Þór Halldórsson (ábm.)
Sími 461-5135. GSM 898-4294.
Netfang: oskar@athygli.is
Auglýsingar:
Athygli ehf. Síðumúli 1. Reykjavík.
Sími 515-5200. Netfang: augl@athygli.is
Auglýsingastjóri:
Inga Ágústsdóttir. Sími 515-5206.
GSM 898-8022. Netfang: inga@athygli.is
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf. Síðumúli 1. Reykjavík.
Sími 515-5200.
Prentun:
Gutenberg ehf.
Áskrift:
Hálfsársáskrift að Ægi kostar 3600 kr.
Áskriftarsímar 515-5200 & 515-5205
Aðalmynd á forsíðu, af Jóhanni Sigurjónssyni, for-
stjóra Hafró, tók Sigurður Bogi Sævarsson.
ÆGIR kemur út 11 sinnum á ári.
Eftirprentun og ívitnun er heimil,
sé heimildar getið.
Allt á fullu hjá Fossvík
Um miðjan mars sl. urðu miklar
skemmdir á húsnæði Fossvíkur á
Breiðdalsvík. En menn neituðu að
gefast upp og hjól vinnslunnar fóru
að snúast aðeins sjö dögum eftir
brunann. Ægir sótti Fossvík heim
og spjallaði við framkvæmdastjór-
ann, Ríkharð Jónasson.
Áleitnar spurningar varðandi
hrefnu og sjófugla
„Það er sáralítið um hrefnu hér í sum-
ar, mun minna en fyrir nokkrum árum.
Ég velti vöngum yfir því hvort skýring-
in kunni að vera sú sama og með sjó-
fuglana, nefnilega sú að lítil sem eng-
in loðna sé hér á svæðinu. Þetta er
áleitin spurning og menn verða með
öllum ráðum að reyna að fá henni
svarað,“ segir Hörður Sigurbjarnar-
son, framkvæmdastjóri Norðursigling-
ar á Húsavík, m.a. í viðtali við Ægi.
Okkar hlutverk að setja fram tillögur á vísindalegum grunni
„Hlutverk okkar er að safna upplýsingum og leggja þær fyrir
stjórnvöld og hagsmunaaðila svo þeir geti glöggvað sig á þeim
valkostum sem eru í stöðunni á hverjum tíma. Stjórnvöld bera
hins vegar ábyrgðina og þurfa að taka tillit til margra þátta.
Við höfum fyrst og síðast það hlutverk að setja fram skýrar til-
lögur sem byggðar eru á sterkum vísindalegum grunni,“ segir
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, í
viðtali við Ægi um m.a. stöðu þorskstofnsins.
Útgerðar- og veitingamaðurinn
Hannes
Hannes Sigurðsson er útgerðar-
maður í Þorlákshöfn, auk þess
sem hann rekur veitingahúsið
Hafið bláa við Ölfusárbrú ásamt
eiginkonu sinni. Ægir spjallaði
við Hannes.
Breytingar á brennsluolíukerfum skipa
„Verkefni okkar að undanförnu hafa að töluverðu leyti snúið að
breytingum á brennsluolíukerfum skipa þannig að þau geti
brennt svartolíu, en við höfum verið að sérhæfa okkur í þess-
um hlutum. Mikil vakning hefur orðið í þessu að undanförnu
vegna hækkandi olíuverðs og útgerðir eru að láta breyta mörg-
um skipum í þessa veru, bæði hér á landi og út um allan heim,
enda felst í þessu mikill fjárhagslegur sparnaður,“ segir Bjarni
Ásmundsson, framkvæmdastjóri STS Teiknistofu, m.a. í ítar-
legu viðtali.
22
26
25
9
13
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 4