Ægir - 01.06.2006, Blaðsíða 36
36
H A F Í S
Þann 5. júlí sl. var opnað á
Blönduósi Hafíssetur og er
það staðsett í Hillebrandts-
húsi, sem talið er vera elsta
timburhús landsins.
Hvatamaður að opnun set-
ursins er dr. Þór Jakobsson,
veðurfræðingur, einn helsti
fræðimaður á sviði hafíss og
hafísrannsókna á Íslandi. Þór
er höfundur texta sem notað-
ur er á sýningunni, en hönn-
uður sýningarinnar er Björn
G. Björnsson.
Setrið er að nokkru leyti í
minningu Jóns Eyþórssonar,
en hann var fremstur í flokki
íslenskra náttúrufræðinga
sem hófu að huga að hafís
við landið.
Veðurathugunartæki Gríms
Gíslasonar, fyrrverandi veður-
athugunarmanns og fréttarit-
ara RÚV á Blönduósi, eru á
setrinu, en þau gaf Veðurstof-
an.
Sem fyrr segir er dr. Þór
Jakobsson, veðurfræðingur,
hvatamaður að hafíssetrinu,
en hann hefur verið með
hugmynd að slíku setri í koll-
inum undanfarin ár og færði
hugmyndina í tal við bæjaryf-
irvöld á Blönduósi, sem tóku
henni fagnandi og málið var
sett í farveg, sem endaði síð-
an með opnun setursins 5.
júlí sl., en sýningin er í eigu
Blönduósbæjar.
Anna Margret Valgeirsdótt-
ir, forstöðumaður Hafísseturs-
ins, segir að vel fari á því að
slík sýning sé sett upp á
Blönduósi, enda séu til ótal
margar frásagnir af hafís við
Húnaflóa og einmitt nafn fló-
ans, sýslanna og önnur nöfn
sem vísi til húna segi allt sem
segja þarf um að hvítabirnir
hafi oft látið til sín taka á
þessum slóðum.
„Á sýningunni erum við
með spjöld með ýmiskonar
fræðslu og upplýsingum um
hafís, þar sem dregnir eru
fram fróðleiksmolar um eðli
hans, þykkt, aldur og margt
fleira. Einnig gluggum við í
söguna og vitnum í annála
um hafís og áhrif hans á lífs-
baráttu fólks, veðurfar, haf-
strauma og fleira. Þá sýnum
við ýmsa gamla hluti sem
tengjast vetrinum, t.d. gamla
skauta og skíði. Þá má ekki
gleyma ísbirninum sem hérna
er, en hann fengum við lán-
aðan frá aðila á höfuðborgar-
svæðinu. Þetta er stór björn
og við þurftum meira að
segja að taka upp gólffjöl í
húsinu til þess að koma hon-
um fyrir. Við erum einnig
með líkan af norðurhveli, þar
sem við sýnum meðal annars
mögulegar siglingaleiðir í
ljósi hlýnandi veðurfars og
aukinnar bráðnunar íss á
norðurhveli,“ segir Anna Mar-
grét.
Hafíssetrið er opið daglega
í sumar kl. 10-17 til loka
ágúst. Anna Margrét segir
vilja til þess að þróa setrið
áfram og því sé það vonandi
komið til að vera.
Hafís-
setur
opnað á
Blöndu-
ósi
Á Hafíssetrinu er líkan af norðurhveli, þar sem m.a. er varpað ljósi á þá möguleika sem opnast með siglingaleiðir á norður-
heimskautssvæðinu með hlýnandi veðurfari.
Hafísinn hefur oft látið til sín taka á Íslandi, svo um hefur munað. Þessari sögu
eru gerð skil á Hafíssetrinu á Blönduósi.
Hafíssetrið er til húsa í Hillebrandts-
húsi á Blönduósi.
Við bjóðum öll veiðarfæri og tengdan búnað fyrir togveiði,
línu- og netaveiði og björgunarvörur.
Einnig hífi- og festingabúnað og ýmsar rekstrarvörur.
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Starfstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1
• Ísnet Akureyri - Fiskitangi
• Ísnet Húsavík - Uggahúsi
• Ísnet Hornafjörður - Ófeigstanga
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísfell Bolungarvík - Grundarstíg 14
www.isfell.is
Fast þeir sækja sjóinn!
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 36