Ægir - 01.06.2006, Blaðsíða 19
19
Á S J Ó N U M
Egill Birkir Stefánsson, vinnslustjóri. Ásgeir Rúnar Harðarson, vinnslustjóri í góðum gír.
Ingvar Már Konráðsson, Baadermaður. Ingvar Ísfeld Kristinsson, afleysingar-
yfirvélstjóri.
H A F N I R
Umtalsverðar breytingar hafa
orðið á notkun hafnarinnar á
Reyðarfirði síðustu árin. Þar
hefur ferskum fiski ekki verið
landað síðan í ágústmánuði í
fyrra. Nokkuð var um að
vinnsluskip lönduðu þar frystri
síld á síðustu vertíð en annars
þjónar höfnin nú alfarið vöru-
flutningum.
Rúnar Sigurjónsson hafnar-
vörður segir að öll flutninga-
skip sem komi til Reyðar-
fjarðar með gáma setji þá á
land við eldri höfnina en skip
sem koma með stærri og
þyngri hluti til framkvæmda
við álverið fari að nýju stór-
iðjuhöfninni út við Mjóeyri.
Verið er að smíða nýjan
hafnsögubát fyrir Reyðarfjarð-
arhöfn en smábátaeigendur á
staðnum hlaupa í skarðið þar
til hann kemur við að flytja
hafnsögumenn út í flutninga-
skip á firðinum. Nýi hafn-
sögubáturinn er smíðaður í
Hollandi og er hann væntan-
legur til landsins í mars á
næsta ári.
Texti og myndir: Haraldur Bjarnason
Reyðarfjarðarhöfn:
Löndun ferskfisks heyrir sögunni til
Rúnar Sigurjónsson hafnarvörður á
tröppum hafnarhússins á Reyðarfirði.
Við Mjóeyrarhöfn, stóriðjuhöfnina við álverið. Þangað fer allur flutningur til Reyð-
arfjarðar sem ekki er í gámum.
„Nú er hún Snorrabúð stekkur“- Gamli vigtarskúrinn við Reyðarfjarðarhöfn má
muna fífil sinn fegurri enda nokkuð mörg ár síðan hann var notaður.
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 19