Ægir - 01.08.2006, Blaðsíða 19
19
S A G A N
minni pokann fyrir ógnvekj-
andi hafísfjöllum, þrátt fyrir
að hafa verið sérstaklega
hannað til þess að sigla í ís.
Björgunarhringur fannst við
Grindavík
Næstu daga á eftir sigldu
nokkur skip - þ.á.m. Johann-
es Kruss, grænlenska skipið
Umanak og bandaríska varð-
skipið Campell - fram og til
baka um þetta hafsvæði með
von um að eitthvað kynni að
finnast. Sömuleiðis voru
sendar leitarflugvélar frá
Keflavík, Thule á Grænlandi
og Nýfundnalandi yfir svæð-
ið, en allt kom fyrir ekki.
Ekkert fannst sem minnti á
Hans Hedtoft. Það var ekki
fyrr en níu mánuðum síðar, í
byrjun október 1959, sem
það fyrsta og eina fannst sem
tengdist Hans Hedtoft - björg-
unarhringur. Hann hafði rek-
ið á land við Grindavík.
Kransinum var síðar komið
fyrir í kirkju í Qaqortoq á
Grænlandi og þar er einnig
að finna á töflu nöfn allra
þeirra sem fórust í þessu
hörmulega sjóslysi.
Þriðji Galathea rannsókna-
leiðangurinn
Eins og að framan greinir
hefur oft verið reynt að finna
flak Hans Hedtoft, en án ár-
angurs. Síðasta tilraun var
sem sagt gerð í september sl.
í Galathea rannsóknarleið-
angrinum danska, en án ár-
angurs.
En hvað er Galathea rann-
sóknarleiðangur? Jú, þetta er í
þriðja skipti sem Danir gera
út slíkan rannsóknarleiðangur
um heimshöfin og þessi leið-
angur er sannarlega umfangs-
mikill, en hann mun taka í
það heila um átta mánuði og
er ferðinni heitið hringinn í
kringum hnöttinn.
Fyrsti slíki leiðangur var
gerður út á skipinu Galatheu
I laust fyrir miðja nítjándu
öld. Aftur var haldið í Gal-
athea leiðangur um miðja síð-
ustu öld og þá var sjónum
beint að djúpslóðinni og nú
er sem sagt komið að þriðja
slíka leiðangrinum.
Þess má geta að Galathea
var ein af fimmtíu dætrum
gríska hafguðarins Nereusar.
Heimsreisa fram í apríl 2007
Vædderen lét úr höfn í Kaup-
mannahöfn um miðjan ágúst
sl. og fór til að byrja með til
Færeyja og Grænlands og á
leið skipsins þaðan var þess
freistað að finna flak Hans
Hedtoft. Vædderen fer síðan í
Miðjarðarhafið og um Súes-
skurðinn og inn í Persaflóa.
Áfram liggur leiðin til Ind-
lands, Tælands og Indónesíu
og þaðan til Salomonseyja,
Suðurskautslandsins og um
Kyrrahaf og Karíbahafið um
Panamaskurðinn. Áður en
skipið kemur aftur heim til
Danmerkur hefur það við-
komu á Asoreyjum.
Gagngerar endurbætur á
Vædderen
Vædderen er trúlega það
danska herskip sem Íslend-
ingar þekkja best, enda hefur
það oft haft viðkomu hér á
landi. Áður en haldið var af
stað í hnattreisuna voru gerð-
ar gagngerar endurbætur á
skipinu í Noregi.
Núverandi Vædderen var
upphaflega smíðað í Svend-
brg í Danmörku árið 1990 og
var sjósett tveimur árum síð-
ar. Skipið er 112,5 metra
langt og 14,5 metra breitt.
Skipið er sérstyrkt til þess að
sigla í hafís og þess vegna er
það oft á ferðinni á norðlæg-
um slóðum, ekki síst við
Grænland. Skipið er systur-
skip þriggja annarra skipa
dönsku strandgæslunnar -
Thetis, Triton og Hvid-
björnen.
Galathea rannsóknaleiðangurinn er nú í fullum gangi, en honum á ekki að verða
lokið fyrr en í apríl á næsta ári. Leiðangurinn, sem er gerður út á danska varðskip-
inu Vædderen, freistaði þess að finna flak Hans Hedtoft, en engar vísbendingar
fengust um hvar það nákvæmlega er að finna.
Hans Hedtoft fórst um 20 sjómílur suðaustur af Hvarfi. Níu mánuðum síðar fannst við Grindavík björgunarhringur úr skipinu.
Þetta er það eina sem hefur fundist úr skipinu.
Það var að vonum ríkjandi mikil gleði og eftirvænting í Kaupmannahöfn þegar hið
glæsilega skip, Hans Hedtoft, var sjósett.
aegirsept2006 10/11/06 2:54 PM Page 19