Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Side 4
í'yrsta, sem kemur út í þessari grein hér á landi. Bókin á að
geta orðið bæði nytsamleg og skemmtileg. Þeim, sem byggja og
stofna heimili, verður hún góður leiðarvísir, en hún á jafnframt
að eiga erindi til allra, sem; í húsum búa, örva menn til smekk-
legrar umgengni, vekja athygli á nauðsynlegum hreinlætisregl-
um, benda mönnum á, hvernig hlutirnir, enda þótt af litlum
efnum séu gerðir, geta farið vel á heimili manns. Bókin verður
skrifuð af mörgum, sérfróðum mönnum í hverri grein. Meðal
höfundanna, sem þegar eru ráðnir til að vinna að bókinni, eru
arkitektarnir Sigurður Guðmundsson, Þórir Baldvinsson, Hörður
Bjarnason, Einar Sveinsson, Gunnlaugur Halldórsson, dr. Gunn-
laugur Claessen, læknir, Halldór Iviljan Laxness, Skarphéðinn
Jóhannsson. Þriggja manna ritstjórn úr hópi þessara manna hef-
ur umsjón með samningu og útgáfu ritsins. Einn af ritstjórun-
um, Hörður Bjarnason, arkitekt, gerir liér á eftir nokkra grein
fyrir nauðsyn þessarar útgáfu.
Útgáfan í heild þetta ár.
Fyrir 10 króna árgjaldið fá félagsmenn bækur, sem annars
inyndu kosta um 40 krónur.
Með vali þessarar finnntu bókar hefur öll útgáfan í ár verið
álcveðin. Vil ég nú gefa félagsmönnum yfirlit yfir stærð bók-
anna eða arkafjölda og sanngjarnt bókhlöðuverð hverrar um sig.
Þessar tölur eru beztu gögn í hendur þeirra, sem vilja starfa
að útbreiðslu félagsins, þvi að þær sýna skýrt og óvefengjan-
lega, hver fjárhagslegur hagnaður það er að vera í Máli og
menningu. Þegar svo við bætist, að hér er um hinar ágætustu
hækur að ræða, t. d. jafn dýrmæta eign og úrvalsljóð Stephans
G., er ótrúlegt að nokkur, sem fær að vita um útgáfu félagsins,
þurfi lengi að skoða huga sinn um að ganga í það:
Móðirin TI kr. 6.00
Austanvindar og vestan .... 14y2 — — 6.00
Andvökur. Úrval . ca. 24 — — 12.00
Bit um íbúðir og hýbýlaprýði . ca. 12 — — 8.00
Bauðir pennar V — -— 8.00
Útgáfan samtals .... 83% örk, kr. 40.00
Hér fyrir utan er Timarit Máls og menningar, sem var siðast-
liðið ár (5% örk.
Við teflum djarft og treystum á stórum vaxandi útbreiðslu fé-
lagsins. Tala félagsmanna er nú 4200, þarf að verða 5000 í vor.
Með svona mikilli útgáfu teflum við djarft, eins og við höf-
26