Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Page 6
Rit um íbúðir og hýbýlaprýði.
Eftir Hörð Bjarnason.
Mál og menning hefur í hyggju að gefa út á næstunni allstóra
bók um h ú s i 'ð, íbúðir og hýbýlaprýði.
Hér er um algera nýjung að ræða, sem áreiðanlega verður
vel þegin af almenningi, þvi ekkert sambærilegt hefur fyrr kom-
ið út hér lijá okkur. Hingað til hefur almenningur ekki haft
annað að leita um nytsaman fróðleik viðvíkjandi tilhögun húss
og heimilis en í erlend tímarit eða bækur, sem á mjög takmark-
aðan hátt eru hæf fyrirmynd fyrir heimili almennings á íslandi.
Mönnum liættir oft við að láta blekkjast af þessum erlendu
fyrirmyndum, sem líta glæsilega út, og taka upp eftir þeim ein-
stök atriði, svo sem skápa, borð og stóla, án þess að hafa veitt
því athygli, að glæsileiki fyrirmyndarinnar var ef til vill fólg-
inn í heildarsvip hennar, samræmi lnisgagna og húsaskipunar.
Slitnir út úr eðlilegu samhengi hinnar samræmisfullu heildar
geta einstakir hlutar verkað afkáralega. Það hefur ekki tekizt
að gera úr þeim fagra og hagkvæma heild. Mörg þau heimili,
sem þannig eru byggð upp, verða stíllaus og ósmekkleg, og eru
oft gerð um efni fram. Leiðbeiningar um þessi atriði eru mjög
nauðsynlegar, og má vel halda því fram, að þetta mál varði
ekki eingöngu þá, sem hýbýlin byggja, heldur líka þjóðfélagið,
þar sem um er að ræða, að sem hagkvæmast og haldbezt sé
gengið frá hverjum hlut.
Bók þessari er ætlað að vera stutt en glöggt yfirlit yfir fyrir-
komulag lieimilisins, utan lniss og innan, og verður kaflaskipt-
ing bókarinnar í höfuðatriðum sem hér segir:
Hörður Bjarnason arkitekt: Sögulegur inngangur.
Dr. med. Gunnl. Claessen: Heilbrigðismál hýbýlanna.
Sigurður Guðmundsson arkitekt: Stíll í húsagerð.
Einar Sveinsson arkitekt og Gunnlaugur Halldórsson arki-
tekt: Innréttingar og fyrirkomulag kaupstaðarhúsa.
Þórir Baldvinsson luisameistari: Heimili sveitanna.
Skarphéðinn Jóhannsson lnisgagnateiknari: Um húsgögn.
Halldór Kiljan Laxness: Sálarfegurð í mannabústöðum.
Auk þessa verða leiðbeiningar um heimilisiðnað, garða kring-
um hús og ennfremur ýms atriði, sem húseigendum er nauðsyn-
legt að vita, t. d. unt opinber afgjöld húseigna, lánakjör og fleira
þess háttar.
Bókin mun verða prýdd fjölda mynda, sem fylgja lesmálinu
til skýringar.
28