Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Page 7

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Page 7
Útgáfunefnd Máls og menningar hefur be'ðið mig að vekja at- hygli á útkomu bókarinnar, og er mér það Ijúft. Hér er um að ræða nýjung, sem án efa getur að einhverju bætt upp ófyllt og opið skarð í „praktiskum“ bókmenntum vorum, sem eru held- ur fáskrúðugar, og er það von allra, sem að hókinni standa, að lnin megi verða þeim, sem hana lesa, til gagns. Benedikt Blöndal. Það hefur verið og er víst enn eftirsóknarvert í augum margra manna, að nafn þeirra verði eitthvert sinn skráð á spjöldum sögunnar, og að eftirtímanum geymist á þann hátt frásagnir um atgervi þeirra og afreksverk. Vegurinn til þessa hefur of oft verið sá, að vega og vinna sigra, án þess að hugsa um, hvað jafnframt var troðið undir fótum, enda hafa sagnfræðingar fram að þessu að mestu leyti tínt upp sögur slikra inanna. Benedikt Blöndal átti fátt þeirra eiginleika, sem hingað til hafa aðailega haslað eigendum sínum völl, fyrst i lífinu sjálfu og síðar í frásögnum sögunnar. En hann álti gnótt þeirra eig- inleika, sem varpa birtu yfir líf samferðamannanna, og gera það betra en það mundi ella vera. Hann var einn þeirra manna, sem auka öðrum mönnum trú á góðleik tilverunnar, með þvi einu að vera til og vera, eins og þeir eru. Þvi mun og nafn lians skráð i hjörtum þeirra, sem þekktu hann, og þeir voru margir, það mun skráð þar sem nafn hins friðsama vitmanns, sem alltaf notaði gáfur sínar í þarfir góðleiks síns, en ekki lil þess að varpa ljóma i kringum sína eigin persónu. Ég hitti Benedikt Blöndal í fyrsta sinni fyrir mörgum árum austur á Seyðisfirði. Við vorum kynnt af sameiginlegum kunn- ingja okkar, vegna þess að við ættum sameiginleg andleg áhuga- mál, sem við myndum liafa gaman af að ræða saman um. Mynd hans frá þessum fyrsta fundi stendur mér skýr fyrir hugskots- sjónum, og i raun og veru hefur álit mitt á honum aldrei breytzt frá þeim fyrstu áhrifum, sem ég varð fyrir af honum. Hann var liið rólega, hógværa karlmenni, sem ekki leitaði á aðra, en stóð þó þétt fyrir, án þess að láta undan siga, ef hugsjónir hans voru annars vegar. Frá honum lagði öryggi og mildi hins sterka manns, sem aðeins berst til þess að verja það, sem lion- 29

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.