Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Síða 9

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Síða 9
að segja, að hann mætti að ósekju temja sér meira af form- festu Egils, samtengingarlist Njáluhöfundar og arnsúgi Step- hans G. Það er einstakt hrós um góða kvæðabók, ef hægt er að segja að í henni finnist eitt fullkomið kvæði, vel gert frá öllum sjón- armiðum. Jafnvel ein fullkomin vísa í æfiverki er velgerning- ur við heila þjóð. Það skáld, sem, ort hefur eina fullkomna vísu hefur ekki lifað ófyrirsynju á íslandi. Það er ekkert kvæði í hinni nýju Ijóðabók Guðmundar, sem ekki er að einhverju leyti fagurt, að vísu sjaldan að formi og í kveðandi, en næstum æfin- lega í skynjun, hugsun, myndum og orðavali. Eitt kvæði kemst ótrúlega nærri því að sameina hið fullkomna í formi og hugs- un, Rauði steinninn, — um gimstein, sem æskumaður þóttist sjá i götu sinni, en gaf sér ekki tóm til að hirða þegar í stað, og fann aldrei síðan. Gott kvæði er auðþekkt á þvi, að hug- myndir þess standa allar í lífrænu kerfi umhverfis einn kjarna, en í hinu ytra er hvergi hægt að breyta orði, atkvæði né staf- krók, svo betur megi fara, né setja eitt orð né atkvæði í ann- ars stað. Rauði steinninn kemst af kvæðum Guðmundar næst þvi að bera aðalsmerki fullkominnar ljóðagerðar. íslenzkt skáldskaparmál er af þúsund ára gamalli ljóðmenn- ingu ákaflega viðkvæmt hljóðfæri. Um leirburð má segja, að sér ekki á svörtu, en beztu kvæðin eru viðkvæmust og þola sizt galla. Það hafa aldrei verið ort góð kvæði á íslenzku, nema í hnituðu formi, afbrigði og undansláttur frá hinu stranga formi iniðar til upplausnar og spillingar. Ekki aðeins öll „ljóð i ó- hundnu máli“ eru á íslenzku ljótt prósa, heldur einnig öll brag- liölt Ijóð. Leirskáld, sem höfðu ekki lag á að láta standa í hljóðstafnum, hafa gert sitt til að rugla íslenzkt brageyra, bæði með þeirri tegund af hlægilegu prósa, sem þeir kalla „ljóð i óhundnu máli“, óreglulegri notkun bragliða og setningu rims (samsvarandi Ijóðlínur innan erindis mislangar, eða mismargar Ijóðlínur erindis innan sama kvæðis, og þvilíkt) og alveg sér- staklega með þeirri uppfundningu, að setja þankastrik mitt í kvæði, þegar þeir voru búnir að tapa þræðinum og vissu ekki lengur hvað þeir voru að fara eða hvað þeir áttu að segja. Ivvæði eins og Rauði steinninn og margar vísur i bók Guð- mundar sýna hve hátt hann er í raun réttri hafinn yfir þessa menn. Til dæmis um ágæta byggingu ljóðs, með hornsteina i hinum upprunalegustu og frumstæðustu táknum, en útsýn of heima alla úr hinum efri gluggum, eru kvæði eins og Hverfisteinsljóðið 31

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.