Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Page 15
irnir og flokkarnir, sem þykjast elska lýðræðið heitar en lífið i brjósti sér, skuli æ ofan í æ gerast áróðursmenn fyrir skerð- ingu lýðræðisins, —- það minnir helzt á bindindismann með brennivínið uppi í sér. En það er ekki nóg með það, að tii- .raunir séu gerðar til að láta almenn mannréttindi „frjósa inni" í sölum Alþingis, heldur þykja jafnvel þeir stundum of rúnnir vettvangur, eins og sjá má á tillögunni um það, að fá Mennta- -málaráði til umráða styrktarfé það, sem ætlað er skáldum og listamönnum i landinu. Sagt er, að með því eigi að frelsa þing- mennina frá nuddi og áleitni okkar, sem erum þar^ bónbjarga- menn, en það er bara svo skrítið, að þessir önnum köfnu á- kafamenn skuli ekki hafa uppgötvað þetta ágæta ráð fyr. Og raun myndi skjótt bera vitni um tilgang slíkrar ráðstöfunar, ef hún kæmist til framkvæmda. Aldrei hefur verið eins smjattað á lýðræði og aftur lýðræði -og enn þá lýðræði, eins og nú síðustu mánuðina. En um leið •er hver fjöðrin eftir aðra reytt af lýðræðinu, og það einmitt af sjálfum þessum sakleysislegu lýðræðissmjattendum. Þess vegna er manni farið að verða svona flökurt. — í dag eru útilokuð áhrif okkar á það, hver andleg hressing okkur er flutt að af- loknu dagsverki, á morgun er komið i veg fyrir áhrif okkar « það, hvað við fáum fyrir unnið dagsverk, — hinn daginn verða sennilega komnir firnni lýðræðiselskandi ráðherrar, sem náttúrlega þurfa að spara, og kannske þeim detti þá loksins i hug að spara alveg allt lýðræðið! Jóhannes úr Kötlum. Tjekkóslóvakía. Eftir Skúla Þórðarson sagnfræðing. Frá því að Hitler kom til valda í Þýzkalandi og sú stefna var tekin að gera þýzka ríkið að heimsveldi, hafa Nazistarnir ■fram að þessu framið öl! sín ofbeldisverk undir því fagra yfir- skyni, að þeir væru að hrinda oki Versalasamningsins af þýzku þjóðinni og sameina alla Þjóðverja, sem enn voru undir erlend- um yfirráðum, þýzka ríkinu. Hefur bæði Hitler og fleiri þýzkir nazistaforingjar oft kveðið svo að orði, að það væri ekki ætl- vn þeirra að undiroka neinar erlendar þjóðir, og á síðastliðnu hausti, þegar Tjekkóslóvakia var sundurlimuð, skuldbatt Hitler sig til að virða sjálfstæði Tjekka. En það varð brátt lýðum ljóst, að Tjekkóslóvakía var í raun og veru ekki lengur sjálfstætt riki, heldur ákvað Hitler stefnu hinnar tjekknesku stjórnar bæði Inn á við og út á við, en Tjekkar lifðu í þeirri von, að þeir 37

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.