Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Qupperneq 16

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Qupperneq 16
fengju að halda sjálfstæðinu að nafninu til, ef þeir yrðu hara nógu auðsveipir við þýzku stjórnina. En sú von brást þó fljótt og Hitler tókst að innlima landið, án þess að Tjekkar gætu eða þyrðu að bera hönd fyrir höfuð sér, og hafi nokkur haft von um að þýzka stjórnin myndi virða sjálfsákvörðunarrétt ann- arra þjóða, þá er sú von nú úr sögunni, þvi bæði í þessu og mörgu öðru hafa nazistarnir sýnt, að þeir virða einskis alþjóð- leg lög og rétt, en hnefarétturinn einn ræður. Getur því engin þjóð, sem þeir geta náð til að undiroka, verið óhult um frelsi sitt og réttindi. Tjekkar og Slóvakar eru slavneskar þjóðir, hvor annarri ná- skyldar. Snemma á miðöldum höfðu þær tekið bólfestu í þeim löndum, sem þær byggja þann dag í dag, Tjekkar í Bæheimi, Mæri (Mahren) og hluta af Slesiu, en Slóvakar austar. Voru þessar þjóðir um skeið sameinaðar i eitt ríki, en á 10. öld eyði- lögðu Magyararnir það og lögðu Slóvaka undir sig, en Tjekk- ar mynduðu ríki út af fyrir sig, og stóð það fram i lok mið- alda. Blómgvaðist það mjög á síðari liluta miðalda og skap- aði mikla og glæsilega menningu. Stóðu þá Tjekkar um langt skeið fremstir allra slavneskra þjóða. Var list þeirra fjölbreytt og stórfengleg, bókmenntir þeirra auðugar. Þótt Bæheimsfjöllin mynduðu náttúrleg landaniæri milli Þjóðverja og Tjekka, fluttu margir Þjóðverjar inn i Bæheim á síðari hluta miðaldanna, og settust þeir einkum að í bæjunum, og studdi að minnsta kosti einn af konungum Tjekka þennan innflutning, til þess að geta stutt sig við hina þýzku borgara i baráttunni á móti hinum aðalsbornu tjekknesku jarðeigendum, sem vildu rýra konungs- valdið sem mest þeir máttu. En bæirnir blómguðust mjög frá ]*vi á þrettándu öld og fram í lok miðaldanna. Prag var ein af fegurstu og glæsilegustu höfuðborgum Evrópu, og háskólinn þar var viðfrægur. Hin eiginlega lietjuöld Tjekka hófst með þeirri hreyfingu, sem kennd er við hinn fræga siðbótamann Tjekka, Jóhann Húss. Hann lifði á árunum 1373—1415 og reis gegn kenningum kat- ólsku kirkjunnar og kom fram með svipaðar kenningar og Lúther 100 árum síðar. Hreyfing þessi var hvorttveggja i senn, tjekk- nesk þjóðernishreyfing og alþýðuhreyfing, er beindist gegn hin- um tjekkneska aðli, og þótt Húss sjálfur væri brenndur á báli á kirkjuþinginu i Konstans árið 1415, hafði það aðeins þær af- leiðingar að stæla áhangendur lians í baráttunni á móti hinu pólitiska og trúarlega afturhaldi i landinu. Lauk deilunni við lcirkjuna þannig, að páfinn varð að gefa hinni tjekknesku kirkjti 38

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.