Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Page 18

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1939, Page 18
þjóða í Tjekkóslóvakíu. Sérstaklega urðu Þjóðverjar og Ung- verjar óánægðir, enda blésu nazistar í Þýzkalandi og Ungverja- landi að kolunum. Eins og annars staðar, notuðu Þjóðverjar stéttamótsetningarn- ar innan tjekknesku þjóðarinnar til að styrkja málefni sitt. Verkalýðurinn í Tjekkóslóvakíu var mjög róttækur og sterkur byltingarflokkur, sem stefndi að félagslegri byltingu, starfaði í landinu og átti marga áhangendur meðal allra þeirra þjóða, er landið byggðu. En vegna hræðslu við hinn byltingarsinnaða verkalýð, fékk borgarastéttin mikla samúð með nazistum og brást skyldum sínum gagnvart þjóðinni. Nationalsosialistar, er sýnilega unnu að því að sprengja ríkið og gera það háð Þjóð- verjum, fengu að vaða uppi, og stjórnin var svo upptekin af að vernda sérréttindi yfirstéttarinnar, að hún varð að miklu leyti blind fyrir þeim hættum, sem vofðu yfir ríkinu, en eina ráðið til þess að halda ríkinu saman var auðvitað að leggja völdin í hendur hinna vinnandi stétta. Þýzku nationalsósíalistarnir hafa aldrei farið i launkofa með 'það, hver fyrirætlun þeirra væri gagnvart Tjekkóslóvakíu, og hafa tjekkneskum stjórnmálamönnum því varla komið hinir sið- ustu viðburðir á óvart, en þó horfðu þeir aðgerðalausir á Hitler taka hvert skrefið á fætur öðru, til þess að eyðileggja ríkið. I byrjun októbermánaðar í haust, þegar Þjóðverjar hófu inn- rásina, var tjekkneska stjórnin jafn ráðþrota og áður, þótt á- form Hitlers væru fyrir löngu lýðum ljóst. Meginþorri þjóðar- innar, öll tjekkneska alþýðan, var albúin til að verjast og nota hin ágætu vopn, sem stjórnin hafði yfir að ráða. En yfirstétt- in vissi, að ef strið væri hafið, mundu sérréttindi hennar verða afnumin, og meiri'hluti hennar vildi, heldur en að verjast, ganga undir ok Þjóðverja, í þeirri von, að þeir mundu vernda sér- réttindi hennar. Einu sinni áður i sögunni liafa Þjóðverjar tekið eignir hinn- ar tékknesku yfirstéttar eignarnámi, eftir orustuna á Hvítafjalli, og það er ekki ósennilegt, að sú saga eigi eftir að endurtaka sig, að minnsta kosti benda ýmsar ráðstafanir þýzku stjórnar- innar gagnvart Tjekkum i þá áttina. Uppgjöf Tjekka fyrir Þjóðverjum er einliver hin skammar- legasta í allri sögunni. Her þeirra var betur búinn en nokk- ur annar i Evrópu, og hafði þjóðin frá þvi hún varð fullvalda, fórnað ógrynni fjár til að byggja hann upp og búa hann út. En í stað þess að nota hann gegn kúgurunum, hefur hann verið látinn afhenda þeim vopnin án þess að hleypa af einu skoti. 40

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.