Ægir - 01.04.2012, Qupperneq 8
8
F R É T T I R
Sjóarinn síkáti í Grindavík
hefur fest sig í sessi sem öfl-
ugasta sjómannadagshátíð
landsins. Á sama tíma og
hefðbundin hátíðarhöld sjó-
mannadagsins hafa víða verið
lögð niður undanfarin ár hafa
Grindvíkingar tekið þá stefnu
af efla Sjóarann síkáta enn
frekar enda Grindavík einn
öflugasti sjávarútvegsbær
landsins. Mikið er lagt upp úr
því að Sjóarinn síkáti er fyrst
og fremst fjölskylduhátíð þar
sem fjölbreytnin er í fyrirrúmi.
Tónlistin skipar jafnframt
stóran sess á hátíðinni. Margir
af fremstu listamönnum þjóð-
arinnar koma fram á Sjóaran-
um síkáta að þessu sinni.
Auk Ragga Bjarna og Valdi-
mar má nefna Hjálma, Pál
Óskar, Helga Björns, Hljóm-
sveit Geirmundar Valtýssonar,
Andreu Gylfadóttur, Ingó
Veðurguð, Hreim, Skítamóral
o.fl.
Reynt er að bæta umgjörð
hátíðarinnar á hverju ári í
samvinnu við þá fjölmörgu
aðila sem koma að undirbún-
ingi hennar á hverju ári. Að
þessu sinni verður stórt og
mikið svið á hátíðarsvæðinu
við Kvikuna alla helgina í
stað vörubílspalls til að bæta
aðstöðuna fyrir listafólkið og
atriðin komast mun betur til
skila fyrir áhorfendur. Sjó-
manna- og vélstjórafélag
Grindavíkur kemur myndar-
lega að hátíðinni, sérstaklega
á Sjómannadeginum sjálfum
þar sem Guðni Ágústsson
verður ræðumaður dagsins
og heiðursviðurkenningar og
kappróður verður á sínum
stað.
Fjórða árið í röð er svo
bænum skipt upp í fjögur
litahverfi og síðan verður lita-
skrúðganga á föstudagskvöld-
inu úr hverfunum fjórum að
hátíðarsvæðinu við Kvikuna.
Grindvíkingar hafa skreytt
bæinn sinn hátt og lágt og
tekið virkan þátt í hátíðar-
höldunum en öllum lands-
mönnum er boðið að koma
og taka þátt í herlegheitun-
um.
Fyrir yngri kynslóðina
verða ýmis skemmtileg dag-
skráratriði eins og dorgveiði-
keppni sem nýtur mikilla vin-
sælda, Brúðubíllinn, dans frá
Danssmiðjunni í Reykjanesbæ
og einnig hópur frá Grinda-
vík, Skoppa og Skrítla,
skemmtisigling fyrir alla fjöl-
skylduna, sjópulsan vinsæla
verður í höfninni, hægt að fá
reiðtúr með mótorhjóli, fara á
hestbak, Gókart, sprellleik-
tæki, hoppikastalar og trúðar
verða á svæðinu og margt
fleira.
Dagskrána í heild er hægt
að nálgast í heild sinni á
www.sjoarinnsikati.is.
Landslið skemmtikrafta
á Sjóaranum síkáta
Það var heldur en ekki stuð á mannskapnum á Sjóaranum síkáta í fyrra.
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
www.isfell.is
Við minnum á öfl uga þjónustu Ísfells og gott vöruúrval. Hér fyrir ofan má sjá nokkrar tegundir bindi- og
brettavafningsvéla, bæði stórar og smáar ásamt plast- og stálböndum.
Í vörulistanum á heimasíðunni www.isfell.is er að fi nna ítarlegar upplýsingar um allar vörur.
Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna!
Bindi- og brettavafningsvélar
Strekkifi lmur, plast- og stálbönd