Ægir - 01.04.2012, Page 20
20
SKIPAÞJÓNUSTA EINARS JÓNSSONAR EHF
Laufásvegi 2a • 101 Reykjavík • Gsm: 892 1565 • Sími: 552 3611 • Fax: 562 4299
Útgerðarmenn . . . !
Látið okkur sjá um reglulegt viðhald á skipum ykkar og bátum.
Sérhæfum okkur í viðhaldi á vinnsludekkjum.
Fiskvinnslustöðar . . .
Háþrýstiþvottur og sandblástur.
Alhliða viðgerðir á þökum og veggjum.
Föst verðt i lboð --- Margra ára reynsla --- Le i t ið upplýs inga
Málun og einangrun skipa
fjarnámi og er stefnt á að
hefja það á fjórum stöðum á
landinu.
Skólinn er lítill og gefur
það starfsmönnum og kenn-
urum kost á að mynda góð
tengsl við nemendur og að-
stoða þá eins og kostur er.
Eftirfylgni er mikil og áhersla
lögð á góðan félagsanda í
skólanum. Kennslan er skipu-
lögð til að mæta þörfum
hvers og eins og lögð áhersla
á að skapa þægilegt vinnu-
umhverfi þar sem nemendur
geti náð hámarks árangri.
Farið verður í vettvangsferðir
til Landhelgisgæslunnar,
Hafró, í ýmis skip, fiskverk-
anir og fleira.
Nemendur með mikla
starfsreynslu geta stytt nám
sitt umtalsvert með því að fá
metna reynslu sína og þekk-
ingu til gildra eininga. Jafn-
framt eru námskeið fisk-
vinnslufólks (sérhæfður fisk-
vinnslumaður) metin í skól-
ann að fullu (5 ein.). Reynslu
af sjómennsku og störfum í
fiskvinnslu er, að gefnum
ákveðnum skilyrðum, hægt
að meta sem allt að helmingi
grunnnámsins og sem sam-
svarar einu ári í framhalds-
skóla. Kennsla í faggreinum
er jafnframt skipulögð til að
mæta þörfum fullorðinna.
Fjölbreytt námskeið
Nanna Bára Maríasdóttir hjá
Fisktækniskólanum segir fjöl-
mörg námskeið í boði og má
sjá úrvalið á heimasíðu skól-
ans www.fiskt.is. „Sportveiði-
menn hafa sótt flökunarnám-
skeið á laxi og silungi. Sveinn
Kjartansson hjá Fylgifiskum
var með sjávarréttanámskeið
sem heppnaðist alveg frábær-
lega. Hann kenndi nemend-
um að elda veislurétti úr
þorski hvort sem það voru
hausar, roðið eða flökin.“
Í vetur var boðið upp á
mörg námskeið í vélstjórn I
sem gefur réttindi á vinnu við
allt að 750kw. vélar í bátum
sem eru 12 metrar eða styttri.
Þau námskeið hafa verið
S J Á V A R Ú T V E G S N Á M
Sveinn Kjartansson hjá Fylgifiskum var með sjávarréttanám-
skeið í Fisktækniskólanum.
Vettvangsferðir eru mikilvægur hluti námsins.