Ægir - 01.04.2012, Side 25
25
B Á T A S M Í Ð I
Starfsfólk Naust Marine
sendir sjómönnum sínar
bestu kveðjur í tilefni af
sjómannadeginum...
... og óskar áhöfn og útgerð
Ásbjörns til hamingju með
nýtt spil og rafmagnsvírastýri.
Áhugaverður markaður í
Danmörku
„Við erum þessa dagana að
vinna að smíði 10 metra báts
fyrir danskan kaupanda og
mér vitanlega er þetta fyrsta
íslenska nýsmíðin á fiskibát
fyrir Danmerkurmarkað. Frá
okkur hafa farið Seigs-bátar
til Noregs en við bindum
miklar vonir við að framhald
verði á smíði fyrir Danmörku
enda umtalsverð bátaútgerð
þar í landi,“ segir Friðrik en
báturinn mun fara á færa- og
netaveiðar, fiska makríl, kola
og fleira. Hann er jafnframt
ríkulega búinn innréttingum
og þannig nokkurs konar
sambland af atvinnu- og
skemmtibát. Báturinn er með
fellikili en fyrir þann búnað
hefur Seigla einmitt fengið
viðurkenningar erlendis.
„Meðan gengi krónunnar
er svo sem raun ber vitni þá
er hagstætt fyrir okkur að
sækja verkefni erlendis og ég
vona að þessi bátur muni
hjálpa okkur að afla fleiri
verkefna í Danmörku,“ segir
Friðrik.
Óvissan hefur haldið aftur af
endurnýjun
Á gólfinu hjá Siglufjarðar Seig
ehf. er annar trefjaplastbátur
öllu stærri en sá sem fer til
Danmerkur. Um er að ræða
yfirbyggðan línubát fyrir út-
gerð í Stykkishólmi sem
lengdur var verulega og
mælist 16 metrar og 32 tonn.
Þetta er því með allra stærstu
plastbátum í flotanum.
„Þetta er gott dæmi um
það sem við getum gert í
bátasmíðinni og við vitum af
áhuga fleiri útgerða línubáta
á hliðstæðum breytingum,“
segir Friðrik en einmitt á
Siglufirði eru nokkrar ölfugar
línubátaútgerðir sem flestar
eru með báta frá Siglufjarðar
Seig ehf. Aðspurður segir
Friðrik að óvissan um kvóta-
frumvörpin og framtíðarfyrir-
komulag veiða hafi haldið
aftur af áhuga innlendra báta-
eigenda á nýsmíði.
„Já, fyrst og fremst er það
þessi óvissa sem hefur haft
áhrif. Þegar henni léttir þá er
ég þess fullviss að margir
ákveða að fara í endurnýjun.
Við höfum verið að fjölga
starfsmönnum og erum vel
undir þau verkefni búnir,
jafnframt því að taka að okk-
ur stærri sem minni viðhalds-
verkefni. Hér höfum við yfir
öllum verkþáttum að ráða,
hvort heldur er þekking á
trefjaplastinu, stálsmíði, tré-
smíði eða raflögnum,“ segir
Friðrik.
Friðrik Jónsson, framkvæmdastjóri, við 32 tonna línubát sem fyrirtækið lengdi um þrjá metra og gerði fleiri breytingar á.