Ægir - 01.04.2012, Side 26
26
F R É T T I R
Björgvinsbeltið sem Björgvin
Sigurjónsson, skipstjóri í Vest-
mannaeyjum, fann upp fyrir
bráðum 25 árum, er nú að
koma á markað í endurnýjaðri
mynd og mun um sjómanna-
dagshelgina hefjast formlegt
samstarf við Slysavarnafélagið
Landsbjörgu um sölu þess hér
á landi og erlendis. Tekjur af
sölu beltisins hjá Landsbjörgu
munu renna í bátasjóð félags-
ins sem stendur að rekstri og
kaupum á björgunarbátum
Landsbjargar hringinn í kring-
um landið. Því má segja að út-
gerðir fái margfaldan ávinning
af kaupum af beltinu, auki ör-
yggi áhafna og efli um leið út-
gerð hinna mikilvægu björgun-
arskipa Landsbjargar. Reynsl-
an hefur svo sannarlega sýnt
að Björgvinsbeltið hefur bjarg-
að mannslífum og nýtist ekki
síður til björgunar í ám og
vötnum en á sjó. Fram-
kvæmdastjóri Landsbjargar
segir að félagið muni einnig
vinna að markaðssetningu á
Björgvinsbeltinu í gegnum
systursamtök félagsins í
Skandinavíu og Bretlandi.
Til stuðnings
björgunarskipunum
Á sjómannadaginn í Vest-
mannaeyjum mun Björgvin
Sigurjónsson afhenda Bjarna
Sighvatssyni, fyrrverandi út-
gerðarmanni í Vestmannaeyj-
um, fyrsta beltið af nýrri gerð
og með því hefst formlega
markaðsátak Landsbjargar hér
á landi.
„Við munum kynna þetta
fyrir útgerðum, innan okkar
raða, hjá lögreglu, aðilum
sem hafa með vötn og ár að
gera og á öðrum þeim stöð-
um þar sem þetta belti kemur
að notum. Við hjá Lands-
björgu höfum mikla trú á
þessu samstarfi um Björgvins-
beltið og að útgerðarmenn
og sjómenn taki okkur vel
þegar menn sjá ávinninginn
sem felst í að kaupa af okkur
belti. Björgunarbátarnir hring-
inn í kringum landið eru
mjög mikilvægir fyrir öryggi
sjómanna og ekki þarf að
fjölyrða um hversu mikið ör-
yggistæki beltin sjálf eru um
borð í skipum og bátum,“
segir Guðmundur Örn Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri
Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar.
Björvinsbeltið í uppfærði mynd á markað:
Björgvinsbeltið selt í þágu
björgunarbáta Landsbjargar
Björgvin Sigurjónsson sýnir nýja beltið. Útfærslan sú sama og fyrirtæpum 25 árum þegar hann fann beltið upp en ný efni
gera það sýnilegra í sjó, ljós er komið í beltið og fleira. Sem fyrr er miðað við að beltið beri tvo menn og því er það í senn
björgunartæki fyrir þann sem fer í sjó og öryggistæki fyrir björgunarmanninn sjálfan.