Ægir - 01.04.2012, Blaðsíða 30
30
Æ G I S V I Ð T A L I Ð
Óhætt er að segja að drag-
nótabáturinn Steinunn SH
167 frá Ólafsvík hafi fiskað
firnavel í Breiðafirðinum nú á
útmánuðum og eru skipverjar
komnir í frí þar til nýtt fisk-
veiðiár hefst. Það er til marks
um veiðina að í síðustu túrun-
um hjá Steinunni var aflinn
allt upp í rösk 60 tonn í róðri
og stærstu köstin yfir 20
tonn. Brynjar Kristmundsson,
skipstjóri, er ánægður með
vertíðina en hann hefur verið
skipstjóri og einn eigenda á
Steinunni frá 1982. Hann
þekkir því vel til á miðunum í
gegnum árin og segir fisk-
gengdina hafa jafnt og þétt
aukist síðustu árin. „Og ég er
ekki í vafa um að okkur væri
alveg óhætt að veiða meira af
þorskinum,“ segir skipstjór-
inn.
„Jú, þessi vertíð var með
besta móti miðað við undan-
farin ár. Fiskiríið hefur verið
sérstaklega jafnt og gott alveg
frá því í janúar. Og núna síð-
ustu vikurnar í apríl og byrj-
un maí var mokveiði. Við
höfum upplifað góða veiði á
vormánuðunum síðustu árin
en aldrei eins og núna,“ segir
Brynjar en frá áramótum og
fram á vor róa þeir á Stein-
unni á miðin í sunnanverðum
Breiðafirði og vestur fyrir
Snæfellsnes. Á haustmánuð-
unum færa þeir sig hins veg-
ar á Vestfjarðamið og landa
þá í Bolungarvík.
„Reynslan hefur verið sú
að á haustmánuðunum gefur
betur á miðunum fyrir Vest-
fjörðum en hér í Breiðafirðin-
um. Gangurinn virðist mér að
sé alltaf svipaður í þessu frá
ári til árs. Þorskurinn virðist
ganga út úr Breiðafirðinum
þegar kemur fram á vorið og
sumarið en birtist síðan aftur
þegar kemur fram undir ára-
mót. Fiskurinn heldur sig síð-
an hér á vetrarmánuðunum
og fram á vorið þannig að sá
tími er sá besti hér á slóðinni.
Við lögum okkur því að þess-
um göngum og færum okkur
með bátinn vestur á haustin
þegar rýrari afli er hér
heima,“ bætir Brynjar við.
Fertugt skip
Steinunn SH 167 er 240 tonna
stálbátur, smíðaður árið 1970
í Garðabæ og hét þá Arnfirð-
ingur II GK. Báturinn varð
gerður í fyrstu út frá Grinda-
vík en sá tími var stuttur því
hann strandaði í árslok 1971 í
innsiglingunni í Grindavík. Á
flot fór hann þó aftur en var í
kjölfarið seldur til aðila í
Garðabæ og fékk þá nafnið
Ingibjörg. Árið 1973 var bát-
urinn seldur til útgerðarinnar
Stakkholts í Ólafsvík og fékk
þá nafnið Steinunn SH. Nú-
verandi eigendur eignuðust
Brynjar Kristmundsson skipstjóri fékk veglega tertu í vor frá Fiskmarkaði Íslands í Ólafsvík enda metafli hjá áhöfninni á Steinunni.