Ægir - 01.04.2012, Blaðsíða 34
34
bátinn árið 1990 þegar þeir
stofnuðu útgerðarfélagið
Steinunni ehf. um útgerðina.
Ýmsar breytingar hafa ver-
ið gerðar á bátnum frá því
hann var smíðaður á sínum
tíma, m.a. var hann lengdur,
byggt yfir hann, aðalvél
stækkuð, skipt um brú, nýr
skutur byggður, perustefni og
fleira. Og fyrir þremur árum
voru gerðar veigamiklar end-
urbætur á spilkerfi bátsins.
65 tonn í þremur köstum!
Tölurnar um afla Steinunnar
SH í róðrum maímánaðar
segja allt um hversu mikil
veiðin hefur verið. Aflinn var
230 tonn í fimm sjóferðum,
þ.e. 46 tonn í róðri! Róður
númer fjögur var sínu stærst-
ur, eða 65 tonn í þremur
köstum. Brynjar skipstjóri
segir vart hægt að tala um
sveiflur á þessum miðum
Æ G I S V I Ð T A L I Ð
Útgerð Steinunnar SH er fjölskyldufyrirtæki í eigu Brynjars og
fjögurra bræðra hans. Allir eru þeir í áhöfn skipsins en ekki
nóg með það heldur er sjötti bróðirinn einnig í áhöfninni. Sjö-
undi áhafnarmeðlimurinn er síðan sonur Brynjars skipstjóra og
sá áttundi tengdasonur skipstjórans. Með öðrum orðum er
áhöfnin öll úr sömu fjölskyldunni og greinilega samhent eftir
því, ef marka má af aflabrögðunum. Enda svarar Brynjar skip-
stjóri því til að ekki þurfi oft að setja á fjölskyldufundi í landi.
„Fjölskyldumálin eru bara leyst á sjónum. Þetta gengur fínt hjá
okkur,“ svarar hann hlæjandi.
Öll áhöfnin úr sömu fjölskyldunni
Mettúrinn í vor var um 65 tonn. Hér er stærsta halið – yfir 30 tonn af þorski og þurfti 44 poka til að taka þennan afla um
borð.
Áhöfnin á Steinunn SH afhendir björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellsbæ styrk í maí 2011. Þrír félagar úr sveitinni veita styrknum viðtöku en á myndina vantar Odd
Brynjarsson, matsvein. Mynd: Stefán Ingvar Guðmundsson