Ægir - 01.04.2012, Page 41
41
Ö R Y G G I S M Á L
ekki sé kominn tími til að
breyta þessu. Það getur varla
verið að við sættum okkur
við að þessi slys séu óhjá-
kvæmilegur fórnarkostnaður
þess að halda úti öflugum
sjávarútvegi. Hér eru því klár-
lega mikil sóknarfæri til úr-
bóta fyrir sjómenn jafnt og
útgerðir,“ segir Gísli Níls Ein-
arsson, forvarnarfulltrúi fyrir-
tækja hjá Vátryggingafélagi
Íslands, VÍS.
Sjómennskan hættulegt starf
Þrátt fyrir að fiskiskip verði
bæði stærri og öflugri eftir
því sem tækni fleygir fram er
sjómennska áfram hættulegt
starf. Þar er tölfræðin ólygn-
ust. Staðreyndin er að vinnu-
slys á sjó eru hlutfallslega
mun algengari en í landi. At-
hygli vekur hins vegar að að-
eins lítinn hluta þeirra má
rekja til veðráttu og sjólags.
Algengasta orsök slysa lýtur
að mannlega þættinum. Sam-
kvæmt atvikaskráningu má
rekja um 40% slysanna til
fljótfærni sjómannanna eða
rangrar staðsetningar þeirra.
VÍS hefur á undanförnum
árum unnið að því í samstarfi
við útgerðir að fækka vinnu-
slysum sjómanna og innleiða
öryggismenningu í fiskiskipa-
flotann. Stofnuð er öryggis-
nefnd um borð í skipunum,
gert áhættumat starfa til að
greina hættur í vinnuum-
hverfinu og hvort þörf er á
að bæta verk- og vinnuferla
um borð, ásamt því að tekin
er upp virk atvikaskráning.
Til þess að fá sem yfirgrips-
mestar upplýsingar í áhættu-
matinu taka skipverjar ekki
aðeins út eigin vinnuaðstæð-
ur heldur einnig annarra fé-
laga sinna um borð.
Gests augað er glöggt og
Gísli Níls segir þessa aðferð
einkar gagnlega við að finna
slysagildrur sem e.t.v. eru
ekki áberandi í augum þess
sem hefur þær daglega fyrir
augum. „Sjómenn eru frábær-
ir samstarfsaðilar því þeir eru
svo hreinir og beinir, sjálfs-
gagnrýnir og segja hlutina
umbúðalaust,“ segir Gísli Níls
en bætir því við að fleira
þurfi að koma til.
Slysin gera boð á undan sér
„Svona verkefni byggist á
samvinnu sjómanna og út-
gerðanna sem skuldbinda sig
til þess að bregðast við þeim
ábendingum sem leiða af at-
vikaskráningunni. Þar eru
ekki aðeins skráð raunveru-
leg slys heldur líka „næstum
því slys“. Það er nú einu
sinni svo – þvert ofan í það
sem oft hefur verið sagt – að
slysin gera boð á undan sér,“
segi Gísli og heldur áfram:
„Reynsla okkar er sú að út-
gerðirnar vinna strax að úr-
bótum því þær eiga það sam-
eiginlegt með sjómönnum að
það er allra hagur að vinnu-
staðurinn uppfylli allar örygg-
is- og gæðakröfur sem gerðar
eru. Það á auðvitað að vera
sjálfsögð lágmarkskrafa að
allir snúi heilir heim úr veiði-
ferðinni.“
VÍS hefur öflugt forvarna-
samstarf við Slysavarnaskóla
sjómanna. Gísli Níls lýkur
lofsorði á starfsemi skólans
og segir tilkomu hans gríðar-
lega jákvætt skref. „Við hjá
VÍS erum virk í forvarnarstarfi
og viljum vera leiðandi þátt-
takandi í því að skapa nýja
arfleifð í öryggismálum sjó-
manna. Öryggismál eru hluti
af gæðamálum og þau snúast
fyrst og fremst um viðhorf og
hegðun. Til þess að kalla
fram breytta hegðun þarf við-
horfsbreytingu. Aðeins þann-
ig tekst okkur að koma á
þeirri öryggismenningu sem
við viljum stuðla að. En við
verðum alltaf að hafa hugfast
að í öryggismálum, eins og
víðar, er alltaf hægt að gera
betur,“ segir Gísli Níls.