Fjarðarpósturinn - 05.02.2015, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2015
Enn draga bæjaryfirvöld lappirnar
í byggingu hjúkrunarheimilis í
Hafnarfirði. Eftir langa þrautar
göngu liggja fyrir fullkláraðar
teikningar og útboðsgögn fyrir
hjúkrunarheimili í Skarðshlíð sem
sátt hafði tekist um. Ætla mætti að
þá væri samþykkt að bjóða bygginguna út en þá bregður
við nýjum tón í pólitíkinni. Skoða á möguleika á því að
Hrafnistuheimilin byggi við Hrafnistu á mörkum Garða
bæjar og Hafnarfjarðar og taki að sér reksturinn. Í
samþykkt fjölskylduráðs eru engin tímamörk sett á þessar
könnunarviðræður né heldur er tekin afstaða til hjúkrunar
heimilisins fyrirhugaða í Skarðshlíð. Nú er það látið hanga
í loftinu hvort hætt verði við allt saman ef samningar takast
við Hrafnistuheimilin eða hvort þetta verði aðeins til að
tefja fyrir framkvæmdum í Skarðshlíð.
Skýringar um að mögulega sé hægt að gera hvorutveggja
hljóta að teljast hæpnar í meira lagi enda liggur það fyrir að
að reiknuð vistþörf í Hafnarfirði var 1. janúar 2014 áætluð
190 rými á meðan almenn hjúkrunarrými voru 216 skv.
tölum í september 2013. Með nýju hjúkrunarheimili í
Skarðshlíð er verið að bæta við 5 hjúkrunarrýmum. Þetta
kemur fram í glærum sem bæjarstjóri kynnti fyrir Félagi
eldri borgara nú í ársbyrjun. Reynslan sýnir einnig að
samningur um slíka fjölgun tekur tíma og þrátt fyrir að
hægt sé að benda á að Hafnfirðingar borgi mun meira í
Framkvæmdasjóð aldraðra en þeir fái úr honum þá verður
því ekki breytt í einni svipan. Á meðan er óvissa um
bygginu nýs hjúkrunarheimilis í Skarðshlíð. Það getur
varla nokkur verið ánægður með svona vinnubrögð?
Hið jákvæða við samþykkt fjölskylduráðs var að
bæjarstjóra var falið að hefja viðræður við ríkið um endur
skoðun á upphæðum í samningi um byggingu hjúkrunar
heimilis enda allar upphæðir orðnar gamlar. Fordæmi eru
fyrir slíka endurskoðun sem núverandi bæjarstjóri kom að
vegna hjúkrunarheimilis á Seltjarnarnesi. Slíkt ætti hins
vegar ekki að þurfa að hindra áframhaldandi framkvæmdir
í Skarðshlíð.
Bæjarbúar eiga heimtingu á því að bæjaryfirvöld taki af
öll tvímæli um það hvort byggja eigi hjúkrunarheimili í
Skarðshlíð eða ekki. Það kemur illu blóði í fólk að hafa
svona óvissu enn eina ferðina og bæjarbúar vilja ekki að
refskák stjórn málamanna komi niður á þjónustu við
aldraða í Hafnar firði.
Við kjósum bæjarfulltrúa til að taka ákvarðanir og fylgja
þeim eftir til heilla fyrir bæjarfélagið. Það eru alltaf nokkrar
mögulegar leiðir og sjaldan gæfuríkt að reyna að fara tvær
leiðir á sama tíma.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Sunnudagurinn 8. febrúar
Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11
Barnakór Hafnarfjarðarkirkju syngur
Sunnudagaskólinn tekur þátt í stundinni.
Miðvikudagar
Morgunmessa kl. 8.15
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Fimmtudag 5. febrúar
Kvenfélagsfundur kl. 19.30
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Sunnudagurinn 8. febrúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Guðsþjónusta kl. 13
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn
undir stjórn Arnar Arnarsonar.
Fylgist með okkur á www.frikirkja.is
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
Inger Rós Ólafsdóttir
Víðistaðakirkja
Sunnudaginn 8. febrúar
Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11
María sér um sunnudagaskólann.
Félagar úr kór Víðistaðakirkju
leiða sönginn undir stjórn Helgu Þórdísar
Guðmundsdóttur.
Prestur sr. Hulda Hrönn Helgadóttir.
www.vidistadakirkja.is
Sunnudaginn 8. febrúar
Biblíudagurinn
Guðsþjónusta kl. 11
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Starf eldri borgara
á miðvikudögum kl. 13:30-15:30.
Námskeið fyrir hjón og pör
hefst fimmtudaginn 5. febrúar kl. 19.
www.astjarnarkirkja.is
Forritun og vefsmíði
fyrir 7-16 ára
Hafnarfjörður er eitt af þeim sveitarfélögum sem
verða með forritunar og tæknikennslu í boði eftir skóla
nú á vorönn 2015. 710 ára krökkum verður kennt í
Víðistaðaskóla á miðvikudögum kl. 1617.15 og 1116
ára verður kennt kl. 17.3018.45. Kennsla hefst
miðvikudaginn 18. febrúar. Þetta er 10 vikna námskeið
og er hægt að nýta tómstundastyrki Hafnarfjarðarbæjar
sem greiðslu fyrir námskeiðin.
Yngri hópurinn lærir undirstöðuatriði forritunar með
Kodu Game Lab. Það er skemmtilegt forritunarumhverfi
sem leyfir notendum að skapa sinn eigin tölvuleik með
lítilli fyrirhöfn. Umhverfið byggir á sjónrænum
skipunum, er einfalt í notkun og hægt að hafa umhverfið
á íslensku.
Eldri hópurinn aftur á móti er leiddur í gegnum
hönnun og smíði vefsíðu með áherslu á HTML og
CSS forritun. Farið er yfir mikilvæg atriði sem
nauðsynlegt er að hafa í huga við hönnun og útlit
vefsíðu og forritun tekin skref fyrir skref í litlum
verkefnum. Afrakstur nemenda er í formi eigin vefsíðu
sem þeir geta unnið áfram.
Það er Skema sem sér um kennsluna en Skema ehf.
var stofnað í framhaldinu af því að hugmyndin „Börnin
í Undralandi Tölvuleikjanna“ hlaut titilinn „Fræ ársins
2011“. Nánari upplýsingar má finna á www.skema.is