Fjarðarpósturinn - 19.03.2015, Qupperneq 8
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
Óperettutónleikar
Laugardaginn 21. mars. Kl. 17:00 Tónlistarskólanum í Garðabæ
Jóhanna Ósk Valsdóttir – mezzósópran
Þóra Björnsdóttir – sópran
Örvar Már Kristinsson – tenór
Sólveig Anna Jónsdóttir – píanó
Fluttar verða aríur, dúettar og tríó úr ýmsum óperettum m.a. eftir Lehár, Strauß og Dostal
Vortónleikar
Karlakórs Hreppamanna
Stjórnandi: Edit Molnár
Einsöngur: Þóra Einarsdóttir sópran
Píanóleikari: Miklós Dalmay
Selfosskirkja laugardaginn 21. mars kl. 15:00
Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum
laugardaginn 21. mars kl. 20:30
Guðríðarkirkja í Reykjavík
miðvikudaginn 25. mars kl. 20:00
Nemendur í 10. bekk Víði
staða skóla frumsýna söngleikinn
Mamma Mia föstudaginn 20.
mars kl. 19.30 í Íþróttahúsi
Víðistaðaskóla. Leikstjóri er
Lana Íris Dungal.
Nemendur í 10. bekk sýna
árlega söngleik og í ár er það
hinn vinsæli söngleikur Mamma
Mia sem tengist tónsmíðum
ABBA hljómsveitarinnar hinnar
sænsku með sín lífsglöðu lög sett
í samhengi við gríska eyja
stemningu. Nemendurnir annast
alla þætti söngleiksins frá því að
smíða leiksvið, hanna miða, selja
inn, spila undir með hjálp góðs
fólks, leika og syngja.
Aðrar sýningar verða laugar
daginn 21. mars kl. 14 og 17 og
sunnudaginn 22. mars kl. 14 og
17.
Allir eru velkomnir á
sýninguna en miðasala er við
innganginn. Einnig má panta
miða með tölvupósti á
songleikurvssk@gmail.com.
Sýna Mamma Mia
í Víðistaðaskóla
Metnaðarfullar sýningar 10. bekkinga
Minn eða þinn sjóhattur?
„Það er hægt að koma svo
mörgu góðu til leiðar í pólitík ef
manni er sama um það hver fær
heiðurinn.“ Þetta er upphafs setn
ing greinar sem birtist í síðasta
Fjarðarpósti, rituð af kollega
mínum í fræðsluráði og fulltrúa
Bjartrar fram tíðar,
Herði Svavars syni. Ég
er svo hjartan lega sam
mála Herði með þetta,
eins og reynd ar ýmis
legt ann að. Í þeim
ráðum sem ég sit, bæj
ar ráði og fræðsluráði,
höfum við sem betur
fer oft náð að koma
góðum málum í fram
kvæmd og ræðum ekki
einu sinni um það hver hafi átt
hugmyndina. Ég get nefnt læsis
verkefni og átak í því að efla
menntun starfsfólks á leikskólum
sem dæmi. Öll erum við að
reyna að vinna bænum okkar og
bæjarbúum gagn en stundum eru
leiðirnar að settu marki eða
forgangsröðin ólík og þá verður
til svokallaður pólitískur ágrein
ing ur og hann getur verið mis
auðvelt að leysa.
Ég ætla að borða allar þessar
kökur!
Öðru gegnir hins vegar um
það þegar við í pólitíkinni upp
lifum það þannig að góðum
hugmyndum sé hreinlega
„stolið“ og þeim breytt eða þær
endurskírðar, að því er virðist til
þess eins að geta eignað sér
heiðurinn af þeim. Þá snýst
dæmið nefnilega við og þá finnst
manni rangt við haft.
Því miður hafa nokkur
slík dæmi komið upp á
sl. mánuðum. Dæmi
þar sem orðalagi er
breytt og tillögur born
ar upp sem splunku
nýjar, án þess að vera
það. Tillögur sem eru
jafnvel felldar og
kynntar nokkrum
vikum eða mánuðum
seinna undir nýju nafni. Það er
þá sem manni hættir að vera
sama (jafnvel svakalega) og fer
að finnast það skipta máli hvaðan
hugmyndirnar koma. Það virðist
nefnilega skipta máli, a.m.k.
hvað tillögur minnihlutans
varða. Ég styð góðar hugmyndir
hvaðan sem þær koma, en mér
finnst eiginlega lágmark að það
gildi á báða bóga. Enda fór nú
Mikki refur flatt á því að borða
illa fengnar kökur.
Höfundur er bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði (S).
Adda María
Jóhannsdóttir
Ganga þarf með börnin úti á götu
Íbúi við Klukkuvelli ósáttur með snjómokstur
„Ég er íbúi við Klukkuvelli og
er svo ósátt við þjónustuna sem
við hér í götunni fáum frá
bænum. Hér er fullt af fólki en
ekki nokkur leið fyrir mig að
labba með 2ja ára barnið mitt á
gangstéttinni í leikskólann,
heldur þarf ég að labba með
barnið á götunni sem er einnig í
beygju, svo það er frekar
hættulegt.“ Þetta eru orð eins
íbúa í Hafnarfirði en víða er
ekkert mokað af gangstéttum og
jafnvel rutt upp á þær. Ekki er
við starfsfólkið að sakast heldur
stjórnmálamennina sem ákveða
að kosta ekki til snjómokstur á
gangstéttum nema að hluta.