Fjarðarpósturinn - 13.05.2015, Page 6
6 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015
Árið 1935 hóf verkakvenna
félagið Framtíðin rekstur leik
skóla á Hörðuvöllum og leysti úr
brýnni þörf í bænum. Hafði
Framtíðin næstu tvö ár á undan
starfrækt dagheimili á sumrin í
Barnaskólanum við Suðurgötu.
Framtíðin sá um rekstur leik
skólans allt til 1997 er Hafnar
fjörður tók alfarið við rekstrinum.
Áfram var gamla húsið frá 1935
nýtt til ársins 2001 er nýtt hús var
byggt. Hafði verið byggt við
skólann árið 1957. Starfsemi
leikskólans lá þó niðri á stríðs
árunum frá 19391945 af ótta við
loftárásir.
Í dag eru fjórar deildir á
leikskólanum með börn frá
tveggja til sex ára aldurs, alls 85
börn. Sig þrúður Sigurþórsdóttir
er leik skóla stjóri og Jóna Elín
Péturs dóttir er aðstoðarleik
skólastjóri en starfsmenn eru 24.
80 ára afmæli skólans var
fagnað sl. föstudag og var
há punkt urinn, a.m.k. fyrir börn
in, hátíðarsýning leikhópsins
Lottu sem söng fyrir börnin
söngva sem tengdust ýmsum
þekktum ævintýrum. Skemmtu
börnin sér konunglega og ekki
síður starfs fólkið sem greinilega
kunni að meta grínið. Krakkarnir
stóðu svo í röðum til að fá að
knúsa Mikka ref, Rauðhettu og
fleiri í lokin.
Foreldrar komu í afmæliskaffi,
bæjarfulltrúar heimsóttu skólann
og fulltrúar annarra leikskóla.
Það var allt í lagi að hoppa í fangið á Mikka ref.
Körfuknattleiksdeild Hauka
gekk í síðustu viku frá samn
ingum við þjálfara meistara
flokka karla og kvenna og til
kynnti í leiðinni að Helena
Sverris dóttir hafi skrifað undir
tveggja ára leikmannasamning
við félagið.
Ívar áfram aðalþjálfari
karlanna
Ívar Ásgrímsson mun halda
áfram sem aðalþjálfari karlaliðs
Hauka og Emil Örn Sigurðarson
mun einnig halda áfram sem
aðstoðarþjálfari. Að auki mun
Pétur Ingvarsson koma í teymið,
en Pétur, sem er uppalinn
Haukamaður, kemur með gríðar
lega reynslu eftir að hafa verð
aðalþjálfri í efstu deild í mörg ár.
Þrjú þjálfa kvennaliðið
Hjá meistaraflokki kvenna
mun einnig verða þriggja manna
þjálfarateymi þar sem Ingvar
Guðjónsson og Andri Þór
Kristinsson munu sjá um þjálfun
en auk þess mun Helena Sverris
dóttir koma inn sem spilandi
aðstoðarþjálfari. Ingvar er öllum
hnútum kunnugur hjá félaginu
en hann hefur þjálfað yngri
flokka félagsins síðustu ár með
einstaklega góðum árangri og
var aðstoðarþjálfari mfl. kvenna
í fyrra. Andri Þór kemur nýr inn
til félagsins en hann hefur þjálfað
mfl. Breiðabliks síðustu ár og
hefur þar náð góðum árangri og
byggt upp öflugt kvennastarf þar.
Helena heim í Hauka
Helena Sverrisdóttir skrifaði
undir tveggja ára leikmanna
samning við Hauka en hún segir
að Haukar hafi alltaf verið fyrsti
kosturinn enda hafi hún alist upp
í Haukum. Helena er ein þekkt
asta körfuknattleikskona lands
ins, hefur spilað lengi erlendis,
bæði í Ameríku og í Evrópu.
Hún er því gríðarlegur fengur
fyrir Hauka.
F.v.: Kjartan Freyr Ásmudsson formaður körfuknattleiksdeildar
Hauka, Andri Þór Kristinsson, Helena Sverrisdóttir, Ívar
Ásgrímsson, Emil Örn Sigurðarson og Ingvar Guðjónsson.
VORTÓNLEIKAR
GAFLARAKÓRSINS
Víðistaðakirkju
19. maí kl. 17.30
Allir hjartanlega velkomnir - Aðgangur ókeypis
Áttræður leikskóli
Starfsfólk og nemendur fögnuðu afmæli Hörðuvalla
Börnin voru að sjálfsögðu prúð og stillt og skemmtu sér vel.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Hugleiðingar
Allir Íslendingar vita
hverjir lögðu grunninn
að velferð þjóðarinnar.
Voru það ekki eldri
borgarar?
Af hverju þurfa eldri
borgarar og öryrkjar að
lifa af launum sem eru
rétt um hungurmörk?
Við erum þreytt á því
að hlusta á fréttir af
hækkunum annarra
hópa í samfélaginu.
Nú er verið að huga að
nýbyggingu við Alþingishúsið á
sama tíma og varla er
hægt að reka heil
brigðis kerfið? Fækka
þarf alþingismönnum,
16 al þingismenn eru
nóg ur fjöldi, fjórir úr
hverjum landsfjórð
ungi. Það forðar óþarfa
deilum og einfaldar
málin.
Þjóðarkökunni þarf
að skipta réttlátar.
Höfundur er f.v. skipasmiður.
Garðar H.
Björgvinsson
Litlu munaði að kviknaði í
skógi í hlíðum Selhöfða skammt
frá Hvaleyrarvatni fyrir skömmu
er sinueldur teygði sig inn í
skóginn. Algjört logn var en
gróðurinn var mjög þurr og
eldfimur. Logaði í sinu á all stóru
svæði og líklegt að ungar
trjáplöntur muni drepast.
Slökkvilið brást skjótt við og
náði að slökkva eldinn enda
aðstæður góðar, logn og vegur
alveg að svæðinu.
Lá við skógareldi
Logn og slökkvilið stöðvuðu sinubruna
Helena komin heim
Þjálfar og leikur með Haukum
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n