Fjarðarpósturinn - 11.06.2015, Side 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015
Magnús Bjarni Baldurs son hefur
verið ráð inn verkefnastjóri nýrr ar
Markaðsstofu Hafn ar fjarð ar til sex
mánaða. Magnús Bjarni var ráðinn
úr hópi um fimmtíu um sækjenda.
Magnús Bjarni (54) hefur um
talsverða reynslu af mark aðs málum,
upp byggingu vörumerkja, aug
lýsingamiðlun og stjórn unarstörfum.
Magn ús mun starfa með undir
búningsstjórn Markaðsstofunnar við
að skilgreina hlutverk hennar, undir
búa formlega stofn un, virkja
samvinnu bæjarins, fyrirtækja og
íbúa auk þess að vinna að stefnu
mörkun stofunnar.
„Við erum virkilega ánægð með að
hafa fengið reynslu mikinn aðila með
víðtæka þekkingu á mark aðsmál um
til liðs við okkur. Bæjarfélagið og
samfélagið hér í Hafnarfirði bindur
miklar vonir við Markaðsstofu
Hafnarfjarðar sem stefnt er að því að
stofna formlega í haust,“ segir
Haraldur Líndal Haraldsson
bæjarstjóri.
Það er farið að draga til tíðinda
í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Loksins hefur aftur verið tekin
ákvörðun um það hvar byggja
eigi nýtt hjúkrunarheimili. Það
telst víst hagkvæmast að henda
fullbúnum teikningum að hjúkr
unarheimili á einni hæð sem rísa átti í nýju hverfi,
Skarðshlíð í dalnum innan við Vellina. Í stað þess á að
skerða enn af hrauninu í miðbænum og reisa hús á
nokkrum hæðum við hlið Sólvangs. Sjáendur hafa
örugglega fullvissað meirihlutann um að engir álfar
búi í klettunum við Sólvang. Ákvörðunin er rökstudd
með því að þetta sé í samræmi við hagkvæmniathugun
sem birt var fyrir alllöngu. Þó hefur ekki verið sýnt
hvernig byggingin eigi að vera, hvernig aðkoma og
aðlögun að hæðóttu landslaginu verði. Þá er enn
ekkert vitað hvaða starfsemi verður í Sólvangi eftir að
heimilisfólkið flytur í nýja húsið. Talað hefur verið
um miðstöð öldrunarþjónustu án þess að neinar
ákvarðanir hafi verið teknar eða skýr framtíðarsýn
verið mynduð. Það verður því örugglega kurr um
þessa ákvörðun og óvissa um afstöðu hópa eins og
Hraunavina sem hafa varið kletta í nágranna sveitar
félaginu með kjafti og klóm. Hins vegar verður að
fagna því að ákvörðun hefur loksins verið tekin og
vonandi munu aldraðir Hafnfirðingar njóta betri
aðbúnaðar en hægt hefur verið að veita á Sólvangi.
En það eru fleiri tíðindi því loksins er farið að bóla
á niðurstöðum úr rekstrarúttekt á hinum ýmsu sviðum
í rekstri bæjarins. Reyndar áttu þessar niðurstöður að
vera löngu komnar en fyrsta skýrslan er greining á
samningum við íþróttafélögin þar sem kennir margra
grasa og greinilegt að margt má laga. Hvort það leiði
til sparnaðar í rekstri eða aðeins betri nýtingu fjár er
hins vegar ekki hægt að lesa út úr skýrslunni. Vonast
er til að fleiri skýrlur fari að detta inn en síðan tekur
við mat á niðurstöðum og tillögugerð til úrbóta. Þó
svo skýrsluhöfundar bendi á ýmislegt sem betur má
fara, eru það ekki útfærðar tillögur. Því má reikna með
að ekki megi vænta endanlegra tillagna fyrr en í fyrsta
lagi í haust enda af miklu að taka og bæjarfulltrúar
taka líklega samkvæmt venju lengsta sumarfrí sem
hægt er skv. sveitarstjórnarlögum eða tvo mánuði.
Er þá ekki óvarlegt að áætla að hagræðing í ljósi
niðurstaðna úr rekstrarúttektinni verði ekki sýnileg
fyrr en á næsta rekstrarári og niðurstöðurnar nýttar við
gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2016.
Það er gríðarlega mikilvægt að niðurstöður berist
sem hraðast og að vel verði unnið úr þeim svo sátt geti
myndast um framhaldið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudagur 14. júní kl. 10
Hjólreiðamessa
kirknanna í Hafnarfirði
og Garðabæ
Hún hefst í Ástjarnarkirkju kl. 10.
Síðan er hjólað á milli kirknanna
og verður einn messuliður í hverri þeirra.
Þetta er mjög fjölskylduvæn messa.
Hressing á leiðinni.
Fermingar: astjarnarkirkja.is
www.astjarnarkirkja.is
Sunnudagurinn 14. júní
Hjólað milli kirkna í
Hafnarfirði og Garðabæ
Kl. 10.30 verður stutt helgistund
í Hafnarfjarðarkirkju.
Allir velkomnir að taka þátt, börn sem fullorðnir.
www.hafnarfjardarkirkja.is.
Verkefnastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar
Magnús Bjarni Baldursson.
Óskar Guðjónsson, safnstjóri
Menningarhússins í Árbæ hefur
verið ráðinn nýr forstöðumaður
Bókasafns Hafnarfjarðar og tekur
hann við í byrjun ágúst.
Óskar er 63 ára bókasafns
fræðingur, búsettur í Kópavogi –
eins og fráfarandi forstöðu maður,
Anna Sigríður Einars dóttir, sem
starfað hefur hjá Bókasafni
Hafnarfjarðar í tæpt 31 ár. Hún var
fyrsti bóka safnsfræðingurinn sem
ráðinn var til safnsins og var
fostöðu maður þess frá 1992.
Umsækjendur um stöðuna voru:
Bergljót Tulinius Gunnlaugsdóttir,
Dagný Helgadóttir, Edda Hrund
Svanhildardóttir, Grétar Erlingsson,
Guðmundur Halldórsson, Jón
Krist inn Ragnarsson, Kristinn
Hauk ur Guðnason, Óskar Guð jóns son, Pétur T. Gunnarsson og Sigrún
Guðnadóttir.
Bókasafn Hafnarfjarðar
Óskar ráðinn forstöðumaður Bókasafnsins
Anna Sigríður hættir.
Óskar Guðjónsson tekur við.
Líflegt á hafnarsvæðinu
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n