Fjarðarpósturinn - 11.06.2015, Síða 8
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015
Kirkjurnar í Hafnarfirði og
Garðabæ standa fyrir sam eig in
legri hjólreiðamessu á sunnu
daginn. Hún hefst í Ástjarnar
kirkju og í Vídalínskirkju í
Garðabæ kl. 10. Þar verður sign
ing og bæn auk þess sem einn
sálmur verður sunginn eins og í
öllum kirkj unum. Næsta stopp
er í Hafnar fjarðarkirkju um kl.
10.30 þar sem flutt verður
miskunnarbæn og dýrð ar söngur.
Að Fríkirkjunni verð ur komið
um kl. 10.50 þar sem ritn
ingarlestrar verða og lof gjörð ar
vers lesið. Í Víðistaða kirkju kl.
11.20 verður guðspjall les ið og
örpré dikun verður í Garða kirkju
kl. 11.50. Hjól reiða messunni
lík ur svo í Bessa staðakirkju með
altarisgöngu og blessun. Hress
ing verður á leið inni.
Greiðum atkvæði um kjarasamningana
ábyrga afstöðu
Sýnum
ATH! Atkvæði póstleggist í síðasta lagi 18. júní
22. júní er síðasti dagurinn sem þú hefur til að hafa áhrif
á niðurstöður í atkvæðagreiðslunni um kjarasamningana
FLÓABANDALAGIÐ
V
Samfélagssjóður Valitor veitti 10 styrki
Samfélagssjóður Valitor veitti
10 styrki að heildarupphæð kr.
8.000.000 sl. fimmtudag í húsa
kynnum sínum við Dalshraun.
Hlutverk sjóðsins er að styðja
við vandlega valin málefni, sem
bæta mannlíf og efla.
Eftirtalin verkefni og aðilar
hlutu nú styrk úr sjóðn um:
Ferðafélag Íslands til að setja
upp skilti með upplýsingum um
gönguleiðir í Skaftafelli. Kór
Langholtskirkju ásamt kamm
ersveit til setja upp og flytja
Jóhannesarpassíuna eftir Johann
Sebastian Bach. Specialisterne á
Íslandi til að þjálfa einstaklinga á
einhverfu rófinu til að komast út í
atvinnu lífið. Litla óperukompan
íið til að setja á svið ævintýra
óperuna Bald ursbrá. Í tilefni af
100 ára kosningarétti kvenna á
Íslandi, til að styrkja gerð högg
myndar af Ingibjörgu H. Bjarna
son sem staðsett verður við
Alþingishúsið. Ritun sögu versl
unar og við skipta á Akureyri frá
upphafi til okkar daga. Öldunga
ráð Hafnarfjarðar vegna verk
efnisins Brúkum bekki, til að
fjölga bekkjum í Hafn arfirði til
að stuðla að auk inni útivist og
hreyfingu hjá eldri borgurum.
Silja Elsabet Brynjarsdóttir til að
stunda söngnám við Royal
Academy of Music í London.
Sigmar Þór Matthíasson til að
stunda kontrabassanám við The
New School í New York. Sólveig
Steinþórsdóttir til að stunda
fiðlunám við Universität der
Künste í Berlín. Sjóðurinn var
stofnaður fyrir 23 árum og hafa
frá upphafi verið veittir samtals
174 styrkir til einstaklinga og
samtaka.
Frá afhendingu styrksins sl. fimmtudag.
Nýtt hjúkrunarheimili
Fjölskylduráð lagði fram
tillögu á síðasta fundi ráðsins
þess efnis að nýtt 60 rýma hjúkr
unarheimili samkvæmt fyrir
liggj andi samningi við Velferðar
ráðuneytið frá árinu 2010 verði
byggt á Sólvangsreitnum. Að
beiðni minnihluta ráðsins
var afgreiðslu frestað til
næsta fundar en algjör ein
hugur er um þessa ákvörð
un að hálfu meirihluta
bæjar stjórnar enda í fullu
samræmi við fyrirliggjandi
greiningu Capacent sem
framkvæmd var síðastliðið
haust um samanburð val
kosta um staðsetningu
hjúkr unarheimilis.
Sólvangur verður miðstöð
öldrunarþjónstu í
Hafnarfirði
Sólvangur var byggður árið
1953 og hefur síðan þá gengt
lykilhlutverki í hjúkrun aldraðra
í Hafnarfirði. Þar eru nú 56
hjúkrunarrými, 2 rými til hvíldar
innlagnar og 8 dagdvalarrými
auk sjúkraþjálfunar og mötu
neytis sem þjónustar ennfremur
íbúa í þjónustuíbúðum fyrir eldri
borgara að Sólvangsvegi 13.
Á Sólvangi er þannig nú þegar
fyrir hendi ýmis stoðþjónusta
sem mikilvægt er að sé til staðar
í nærumhverfi nýs hjúkrunar
heimilis auk þess sem heimild er
fyrir 4000fm viðbyggingu á
reitnum samkvæmt núgildandi
deiliskipulagi
Með því að samnýta hluta af
núverandi byggingu fyrir stoð
þjónustu og stjórnunarrými
vegna nýs hjúkrunarheimilis
næst fram mikilvæg hagræðing í
stofnkostnaði og með nálægð
við stoðþjónustu næst fram
rekstrarlegt hagræði auk sem
sem möguleikar eru á fjölgun
rýma með endurbótum á eldri
bygg ingu ef samningar nást við
velferðarráðuneytið.
Staðsetning nýs hjúkrunar
heimils í miðju bæjarins í grónu
hverfi styður auk þess við
markmið bæjarstjórnar um
þéttin gu byggðar og er í
samræmi við vilja hagsmuna
sam taka og íbúa sem létu þetta
mál sig miklu varða í aðdraganda
síðustu bæjarstjórnarkosninga.
Undirbúningur mun hefjast á
næstu vikum og miðað er við að
nýtt hjúkrunarheimili taki til
starfa í apríl 2018.
Guðlaug er formaður
fjölskylduráðs og Helga er
formaður umhverfis og
framkvæmdaráðs.
Helga
Ingólfsdóttir
Guðlaug
Kristjánsdóttir
Hjólað á milli kirkna
Einn messuhluti í hverri kirkju
Frá hjólreiðamessunni 2014.
Lj
ós
m
.:
Þ
ór
od
du
r
S
ka
pt
as
on