Morgunblaðið - 22.12.2014, Side 2

Morgunblaðið - 22.12.2014, Side 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. 1. deild karla Hamrarnir – Selfoss.......................... frestað Staðan: Grótta 13 12 1 0 382:274 25 Víkingur 13 11 0 2 372:277 22 Selfoss 13 6 3 4 299:282 15 Fjölnir 14 7 1 6 345:341 15 Hamrarnir 13 7 1 5 282:282 15 KR 14 6 2 6 349:350 14 Þróttur 13 2 1 10 304:408 5 Mílan 14 2 1 11 313:358 5 ÍH 13 2 0 11 297:371 4 Þýskaland Flensburg – Kiel .................................. 26:22  Aron Pálmarsson skoraði 5 mörk fyrir Kiel. Alfreð Gíslason þjálfar liðið. Bergischer – Füchse Berlín ............... 30:25  Arnór Þór Gunnarsson skoraði 8 mörk fyrir Bergischer. Björgvin Páll Gústavsson ver mark liðsins.  Dagur Sigurðsson þjálfar Füchse. Burgdorf – Hamburg.......................... 30:36  Rúnar Kárason skoraði 1 mark fyrir Burgdorf en Ólafur Andrés Guðmundsson er meiddur. Gummersbach – Melsungen .............. 26:32  Gunnar Steinn Jónsson skoraði 2 mörk fyrir Gummersbach. Erlangen – Magdeburg ...................... 19:28  Sigurbergur Sveinsson skoraði ekki fyr- ir Erlangen.  Geir Sveinsson þjálfar Magdeburg. Staðan: RN Löwen 19 16 0 3 571:463 32 Kiel 19 16 0 3 552:458 32 Flensburg 18 14 1 3 544:454 29 Magdeburg 19 13 1 5 546:496 27 Göppingen 19 11 2 6 522:508 24 Melsungen 19 10 2 7 566:525 22 Hamburg 20 9 2 9 557:537 20 Gummersbach 19 9 2 8 528:533 20 Wetzlar 19 7 4 8 490:484 18 Füchse Berlín 19 8 2 9 513:532 18 H-Burgdorf 19 7 3 9 533:543 17 Bergischer 19 8 1 10 498:546 17 Balingen 19 8 1 10 469:499 17 N-Lübbecke 19 7 2 10 534:534 16 Erlangen 20 5 3 12 485:549 13 Minden 19 6 0 13 496:552 12 Friesenheim 19 6 0 13 477:560 12 Lemgo 19 4 1 14 537:558 9 Bietigheim 19 3 1 15 492:579 7 B-deild: Neuhausen – Emsdetten..................... 32:26  Oddur Gretarsson skoraði 7 mörk fyrir Emsdetten, Ernir Hrafn Arnarson 3 en Anton Rúnarsson og Ólafur Bjarki Ragn- arsson ekkert. Eisenach – Saarlouis........................... 39:30  Bjarki Már Elísson skoraði 9 mörk fyrir Eisenach og Hannes Jón Jónsson 1. Grosswallstadt – Dormagen .............. 33:29  Fannar Þór Friðgeirsson skoraði 4 mörk fyrir Grosswallstadt. Henstedt – Aue .................................... 20:34  Hörður Fannar Sigþórsson gerði 2 mörk mörk fyrir Aue, Bjarki Már Gunnarsson eitt en Árni Þór Sigtryggsson var ekki með vegna meiðsla. Sigtryggur Rúnarsson skoraði ekki. Sveinbjörn Pétursson varð 16 skot í markinu. Rúnar Sigtryggsson þjálfar liðið. Spánn Bikarkeppnin, undanúrslit: Barcelona – La Rioja........................... 35:25  Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 2 mörk fyrir Barcelona. Úrslitaleikur: Barcelona - Granolles ..........................37:26  Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Barcelona. Danmörk KIF Kolding – Bjerringb./Silkeb ...... 24:20  Aron Kristjánsson þjálfar KIF Kolding. Holstebro – Aalborg............................ 23:24  Ólafur Gústafsson skoraði ekki fyrir Aal- borg. SönderjyskE – Mors-Thy ................... 22:24  Daníel Freyr Andrésson ver mark Sön- derjyskE.  Guðmundur Árni Ólafsson skoraði 2 mörk fyrir Mors-Thy en Róbert Aron Hos- tert spilaði ekki. Skanderborg – Midtjylland ............... 26:30  Vignir Svavarsson skoraði 6 mörk fyrir Midtjylland. Noregur Drammen – Nötteröy ......................... 24:33  Einar Rafn Eiðsson skoraði 2 mörk fyrir Nötteröy en Gísli Jón Þórisson komst ekki á blað. Svíþjóð Sävehof – Guif...................................... 21:26  Atli Ævar Ingólfsson skoraði 8 mörk fyr- ir Guif. Aron Rafn Eðvarðsson ver mark Guif og Kristján Andrésson þjálfar liðið. EM kvenna Leikið í Ungverjalandi og Króatíu: Úrslitaleikur: Noregur – Spánn .................................. 28:25 Leikur um 3. sætið: Svíþjóð – Svartfjallaland ..................... 25:23 HANDBOLTI EM 2014 Ívar Benediktsson iben@mbl.is Norska landsliðið í handknattleik kvenna fagnaði í gærkvöldi sjötta Evrópumeistaratitli sínum í sögunni þegar það lagði spænska landsliðið í úrslitaleik í Búdapest í Ungverja- landi, 28:25. Þetta er um leið annar sigur landsliðsins undir stjórn Þóris Hergeirsson á Evrópumeistaramóti síðan hann tók við sem aðalþjálfari norska landsliðsins sumarið 2009. Þórir hefur nú stýrt norska lands- liðinu á þremur heimsmeistara- mótum og unnið gullverðlaun í tví- gang og einu sinni fengið silfur. Þess utan varð norska landsliðið ólympíu- meistari undir hans stjórn 2012, heimsmeistari 2011 og brons- verðlaunahafi 2009. Sísti árangur norska landsliðsins á stórmóti undir handleiðslu Þóris er fimmta sætið á heimsmeistaramótinu í Serbíu fyrir ári. Þá hafði landsliðið gengið í gegn- um kynslóðaskipti þar sem nokkrir þeirra leikmanna sem báru uppi liðið nú voru að taka við keflinu af þeim sem höfðu borið það árin á undan. Þó voru enn fjórir leikmenn í norska landsliðinu í gær sem léku til úrslita við Spán á EM fyrir sex ár- um, í eina skipti sem spænska lands- liðið hefur komist á verðlaunapall á EM. Um er að ræða Linn-Kristin Riegelhuth Koren, Karoline Dyhre Breivang, Camillu Herrem og línu- manninn öfluga, Heidi Löke. Fyrir sex árum vann norska liðið úrslitaleikinn við Spán með 13 mörk- um, 34:21. Í gær var leikurinn jafnari eins flestir áttu von á. Þórir létti af pressunni „Þetta er stærsti sigur Þóris Her- geirssonar sem landsliðsþjálfara Noregs,“ sagði Thomas Kristensen, einn helsti sérfræðingur TV2 í Dan- mörku í gær. „Fyrir þremur vikum benti fátt til þess að Noregur stæði uppi sem Evrópumeistari. Danir voru líklegastir og Þórir sagði í við- tali við danska fjölmiðla að hann teldi danska landsliðið langlíklegast til þess að vinna Evrópumeistaramótið. Þannig létti Þórir pressunni af sínu liði sem virtist ekki vera eins öflugt og stundum áður,“ segir Kristensen. „Þórir hefur ekki á þessari stundu það besta lið sem hann hefur haft í höndunum síðan hann tók við sem landsliðsþjálfari. En hann stýrir því á frábæran hátt af gríðarlegri yfir- vegun og nær því besta út úr hverj- um leikmanni,“ skrifar Kristensen m.a. ennfremur í pistli sínum. Það blés ekki byrlega fyrir norska landsliðinu framan af úrslitaleiknum í gær gegn Spánverjum. Vörn Norð- manna var slök og sóknarleikurinn hikstaði gegn öflugri vörn Spánverja og frábærum markverði liðsins, Silv- io Navarro. Um tíma var forskot Spánverja orðið fimm mörk, 10:5. Hvorki Þórir né leikmenn hans fóru á taugum, allir vissu að nægur tími var til stefnu til þess að snúa taflinu við og það tókst. Skömmu fyrir lok hálfleiks var munurinn eitt mark, 11:10, Spáni í vil. Norska liðið fékk tækifæri til þess að jafna metin en tókst það ekki. Þess í stað skoruðu Spánverjar síðasta mark hálfleiks- ins, 12:10. Ekki lengi að jafna Það tók norska landslið aðeins hálfa aðra mínútu að jafna metin í síðari hálfleik, 12:12.. Það komst í fyrsta sinn yfir, 16:15, eftir 35 mín- útur, frá því að staðan var 3:2, mjög snemma leiksins. Eftir það var leikurinn kaflaskipt- ur. Norðmenn komust tveimur mörkum yfir nokkrum sinnum. Allt- af jöfnuðu Spánverjar jafnharðan, síðast 20:20. Svo virtist sem spænska liðið væri að gefast upp þegar átta mínútur voru eftir og fjórum mörkum undir, 26:22. Þá kom kom nærri sjö mín- útna kafli sem norska liðið skoraði ekki mark. Sóknarleikur liðsins var erfiður enda var það í tvígang manni færra um skeið. Spánverjar söxuðu á forskotið og komu því niður í eitt mark, 26:25. Þótt illa gengi innan vallar sýndi Þórir aðdáunarverða yf- irvegun við stjórn liðsins af hliðarlín- unni. Solberg fyllti skarð Grimsbø Silja Solberg kom í veg fyrir að spænska liðið jafnaði metin í 26:26, þegar hún varði í tvígang úr opnum færum. Norðmönnum var ætlað að vinna. Það fór vel á því að Solberg væri hetjan á lokakaflanum. Hún stökk óvænt inn sem aðalmarkvörður liðs- ins eftir fyrsta leik mótsins þegar Kari Aalvik Grimsbø meiddist og varð að draga sig út úr liðinu af þeim sökum. Grimsbø hefur lengi verið einn besti markvörður heims og oft í gegnum tíðina riðið baggamuninn fyrir norska landsliðið á ögur- stundum með markvörslu sinni. Margir töldu að án Grimsbø myndi norska liðið eiga í erfiðleikum. Solberg væri ekki nógu öflug til þess að geta gengið í hennar fótspor. Annað kom á daginn. Solberg lék frábærlega í markinu allt mótið og var að lokum valinn markvörður mótsins. Svíar unnu bronsið þegar þeir unnu Svartfellinga, 25:23, í hörku- leik. Þetta eru önnur verðlaun sænska landsliðsins á Evrópumeist- aramóti. Það hlaut silfur á EM 2010 eftir tap fyrir norska landsliðinu. AFP Yfirvegun Þórir Hergeirsson, fylgist íbygginn með sókn norska landsliðsins í sigurleiknum á Spánverjum á Evrópumeistaramótinu í gær. Stærsti sigur Þóris með norska landsliðinu  Hefur stýrt landsliðinu á sex mótum og unnið verðlaun á fimm þeirra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.