Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 6
6 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 England Hull – Swansea ........................................ 0:1  Gylfi Þór Sigurðsson var frá vegna meiðsla í liði Swansea. Liverpool – Arsenal.................................. 2:2 Newcastle – Sunderland.......................... 0:1 Man City – Crystal Palace....................... 3:0 Aston Villa – Man United ........................ 1:1 QPR – WBA.............................................. 3:2 Southampton – Everton .......................... 3:0 Tottenham – Burnley............................... 2:1 West Ham – Leicester ............................. 2:0 Staðan: Chelsea 16 12 3 1 36:13 39 Manch.City 17 12 3 2 36:14 39 Manch.Utd 17 9 5 3 30:18 32 West Ham 17 9 4 4 29:19 31 Southampton 17 9 2 6 28:13 29 Arsenal 17 7 6 4 30:21 27 Tottenham 17 8 3 6 22:23 27 Swansea 17 7 4 6 22:19 25 Newcastle 17 6 5 6 18:23 23 Liverpool 17 6 4 7 21:24 22 Everton 17 5 6 6 27:27 21 Aston Villa 17 5 5 7 11:21 20 Stoke 16 5 4 7 18:21 19 Sunderland 17 3 10 4 15:24 19 WBA 17 4 5 8 17:23 17 QPR 17 5 2 10 20:32 17 Crystal Palace 17 3 6 8 19:27 15 Burnley 17 3 6 8 12:26 15 Hull 17 2 7 8 15:24 13 Leicester 17 2 4 11 15:29 10 B-deild: Cardiff – Brentford ................................ 2:3  Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Cardiff. Blackburn – Charlton ............................ 2:0  Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn með Charlton. Wigan – Rotherham ................................ 1:2  Kári Árnason lék allan leikinn með Rot- herham. Nottingham F. – Leeds ............................1:1 Blackpool – Bournemouth........................1:6 Fulham – Sheffield Wed. ..........................4:0 Huddersfield – Birmingham ....................0:1 Ipswich – Middlesbr. ................................2:0 Reading – Watford....................................0:1 Wolves – Brighton.....................................1:1 Derby – Norwich.......................................2:2 Millwall – Bolton .......................................0:1 Staðan: Bournemouth 22 12 6 4 50:25 42 Ipswich 22 11 8 3 34:20 41 Brentford 22 12 4 6 37:29 40 Middlesbr. 22 11 6 5 35:17 39 Derby 22 11 6 5 40:23 39 Watford 22 11 5 6 39:23 38 Norwich 22 9 7 6 37:26 34 Blackburn 22 9 7 6 34:31 34 Nottingham F. 22 7 10 5 32:27 31 Wolves 22 8 7 7 25:32 31 Cardiff 22 8 6 8 29:30 30 Charlton 22 6 12 4 23:24 30 Fulham 22 8 4 10 35:39 28 Sheffield Wed. 22 6 10 6 16:21 28 Birmingham 22 7 7 8 24:32 28 Bolton 22 7 5 10 23:28 26 Reading 22 7 4 11 26:37 25 Leeds 22 6 6 10 25:32 24 Rotherham 22 5 9 8 18:27 24 Huddersfield 22 6 6 10 27:39 24 Millwall 22 5 8 9 23:32 23 Brighton 22 3 10 9 22:30 19 Wigan 22 3 8 11 22:30 17 Blackpool 22 2 7 13 17:39 13 ENGLAND Hellas Verona – ChievoVerona ............. 0:1  Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Ve- rona og lék í 85 mínútur. Sassuolo – Cesena ................................... 1:1  Hörður Björgvin Magnússon lék allan tímann með Cesena. Roma – Milan.............................................0:0 Atalanta – Palermo ...................................3:3 Fiorentina – Empoli..................................1:1 Sampdoria – Udinese................................2:2 Torino – Genoa ..........................................2:1 Inter – Lazio ..............................................2:2 Staðan: Juventus 16 12 3 1 34:7 39 Roma 16 11 3 2 28:11 36 Lazio 16 8 3 5 28:19 27 Napoli 16 7 6 3 28:20 27 Sampdoria 16 6 9 1 22:14 27 Genoa 16 7 5 4 21:15 26 Milan 16 6 7 3 25:18 25 Fiorentina 16 6 6 4 21:13 24 Udinese 16 6 4 6 20:22 22 Palermo 16 5 7 4 22:26 22 Inter 16 5 6 5 25:23 21 Sassuolo 16 4 8 4 17:21 20 Empoli 16 3 8 5 17:22 17 Torino 16 4 5 7 12:18 17 Verona 16 4 5 7 18:27 17 Chievo 16 4 4 8 12:19 16 Atalanta 16 3 6 7 11:21 15 Cagliari 16 2 6 8 21:29 12 Cesena 16 1 6 9 13:30 9 Parma 16 2 1 13 16:36 7 B-deild: Perugia – Pescara ................................... 2:2  Birkir Bjarnason lék allan leikinn með Pescara. ÍTALÍA Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jóns- dóttir úr Leyni eru úr leik á lokaúrtökumótinu fyrir Evr- ópumótaröðina. Ólafía lék á 75 höggum á lokahringnum á laugardag og var fimm högg- um frá niðurskurðinum en Valdís var höggi á eftir. Hún náði sér vel á strik á loka- hringnum og lék á 72 höggum en það var of seint til þess að bæta upp fyrir hina dagana þrjá. Þetta var í fyrsta skipti sem Ísland átti tvo fulltrúa á lokastigi úrtökumótanna en Ólöf María Jónsdóttir úr Keili er eftir sem áður eina íslenska konan sem unnið hefur sér inn keppn- isrétt á Evrópumótaröðinni. kris@mbl.is Ólafía og Valdís komust ekki áfram Valdís Þóra Jónsdóttir Bandaríska golfsambandið ætl- ar greinilega að gera allt til að stöðva sigurgöngu Evrópu í Ryder-keppninni í golfi. Evr- ópuúrvalið hefur nú sigrað á síðustu þremur mótum og það líkar Bandaríkjamönnum ekki vel. Sambandið hefur sett á laggirnar nefnd sem á að finna bestu leiðina út úr þessum vanda, en eftir tap Bandaríkj- anna í haust kom fram mikil gagnrýni á Tom Watson fyrirliða og er nokkuð ljóst að hann verður ekki áfram. Ef marka má skrif ýmissa golfmiðla er ekki talið líklegt að Fred Couples taki við keflinu, en hann hefur farið fyrir liðinu í Forsetabikarnum síðustu þrjú árin með góðum árangri. skuli@mbl.is Verður Couples næsti fyrirliði? Fred Couples Skylmingakonan Þorbjörg Ágústsdóttir tryggði sér um helgina rétt til að keppa á fyrstu Evrópuleikunum í skylmingum sem fram fara í Bakú í júní á næsta ári. Þorbjörg náði þessum ár- angri á úrtökumóti sem haldið var í Búdapest um helgina en þar mættu 74 keppendur til að freista þess að vinna sér sæti á Evrópuleikunum. Þorbjörg komst áfram úr riðlakeppninni og lagði síðan búlgörsku stúlkuna Shalamanovu 15- 14 í átta liða úrslitunum í gríðarlega spennandi viðureign. Þar með var sætið á leikunum í Bakú tryggt, en á mótinu keppa 36 sterkustu skylm- ingamenn í hverri grein. skuli@mbl.is Þorbjörg keppir á Evrópuleikunum Þorbjörg Ágústsdóttir ENGLAND Kristján Jónsson kris@mbl.is Miðherji QPR, Charlie Austin, stal senunni í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn og skoraði öll mörk QPR sem vann WBA 3:2 eftir að hafa lent 0:2 undir. Austin hafði fram að þessu fikrað sig hægt og hljóðlega upp listann yfir marka- hæstu menn deildarinnar. Hann er nú með 11 mörk í deildinni en aðeins Sergio Aguero og Diego Costa hafa skorað meira. Líklega fá þeir einnig örlítið meira greitt fyrir sína vinnu en Austin sem er nýliði í ensku úr- valsdeildinni. Charlie Austin er 25 ára gamall og ferilskrá hans er ekki beinlínis stút- full af nöfnum þekktra félagsliða. Fyrstu þrjú félögin sem Austin spil- aði fyrir voru Kintbury Rovers, Hungerford Town og Poole Town. Er það ekki fyrr en hann fer til Swindon árið 2009 að maður fer að kannast við nafn vinnuveitendanna. Austin var hjá Burnley frá 2011 – 2013 og skoraði þar í öðrum hverjum leik að meðaltali. Hann hefur verið í herbúðum QPR frá árinu 2013. Þar eru deildamörkin orðin 28 í 46 leikj- um. Hann skoraði 20 mörk þegar QPR vann sér sæti í úrvalsdeildinni í vor og þrennan á laugardaginn var hans fyrsta í úrvalsdeildinni. Verðmiðinn margfaldast Þar sem Austin er einungis 25 ára gamall þá verður forvitnilegt að sjá hvernig ferill hans þróast næstu ár- in. Hann er 188 cm á hæð og mjög sterkur líkamlega. Mætti kannski segja að hann sé klassískur enskur miðherji. Austin hefur sannað að hann getur skorað mörk, hvort sem um er að ræða úrvalsdeildina, neðri deildirnar eða utandeildirnar. Eigendur QPR eru væntanlega ánægðir með fjárfestinguna. Talið er að félagið hafi greitt í kringum 4 milljónir punda fyrir sóknarmann- inn. Miðað við gangverðið á enskum leikmönnum sem eitthvað geta í úr- valsdeildinni þá myndu þeir marg- falda þá upphæð ef Austin yrði seld- ur. Í gamla útgerðarbænum Hull eru menn sjálfsagt vonsviknir. Hull City hafði nefnilega gengið frá sam- komulagi um að kaupa Austin í júlí 2013 en hann stóðst ekki lækn- isskoðun. QPR samdi í framhaldinu við Austin hinn 1. ágúst 2013. Eig- endur Hull City hafa líklega ekki boðið læknateyminu sínu á pöbbinn síðdegis á laugardaginn. Dramatík á Anfield Dramatíkin var allsráðandi í upp- bótartímanum þegar Liverpool og Arsenal skildu jöfn 2:2 á Anfield. Leikir þessara liða hafa svo sem oft skipt deildina meira máli en að þessu sinni og líklega var hvorugur aðilinn ánægður með eitt stig. Arsenal er í 6. sæti deildarinnar og Liverpool í 10. sæti. Níu mínútum var bætt við venju- legan leiktíma og fór leiktíminn því hátt í 100 mínútur. Martin Skrtel jafnaði fyrir Liverpool með skalla eftir hornspyrnu þegar um sex mín- útur voru liðnar af uppbótartím- anum. Um þremur mínútum áður hafði Fabio Borini fengið gula spjaldið í annað sinn og þar með það rauða. Leikmenn Liverpool voru því orðnir tíu þegar þeir jöfnuðu. Coutinho náði forystunni fyrir Liverpool á 45. mínútu en Mathieu Debuchy tókst þó að jafna áður en leikmenn gengu til búnings- herbergja í leikhléi. Oliver Giroud kom Arsenal yfir í síðari hálfleik en Skrtel átti síðasta orðið. „Ekki er nokkur spurning að við áttum skilið að vinna, frammistaða okkar var framúrskarandi. Við spil- uðum betur í dag en þegar við unn- um þá hérna í fyrra 5:1,“ sagði knattspyrnustjóri Liverpool, Brend- an Rodgers, við fjölmiðlamenn að leiknum loknum. Skorar í öllum deildum  Charlie Austin hefur skorað 11 mörk fyrir jól á fyrsta tímabili sínu í ensku úrvalsdeildinni  Martin Skrtel jafnaði á sjöundu mínútu í uppbótartíma AFP Þrenna Charlie Austin getur leyft sér að brosa yfir jólahátíðina enda á meðal markahæstu manna úrvalsdeildarinnar á sínu fyrsta ári í deildinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.