Morgunblaðið - 29.12.2014, Síða 1

Morgunblaðið - 29.12.2014, Síða 1
HANDBOLTI Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is „Það gerist ekki mikið skemmtilegra en þetta,“ sagði Ómar Ingi Magnússon, leikmaður Vals, eftir að liðið tryggði sér sigur í deildabikarkeppni Handknattleikssambands Íslands, FÍ-bikarnum, í gær. Liðið lagði þá Aftureldingu 34:33 eftir tví- framlengdan leik og vítakeppni, nokkuð sem er ekki algengt í handboltanum. Ómar Ingi átti flottan leik, bæði í gær, þar sem hann gerði 7 mörk og eins á laugardaginn þegar hann skoraði átta mörk fyrir Val þegar liðið lagði FH í undanúrslitunum, einnig í tvíframlengdum leik. Það má því með sanni segja að Valur hafi unnið vel fyrir sigrinum því í stað þess að leika hefðbundnar 120 mínútur í þessum tveimur leikj- um þurfti liðið að leika 160 mínútur og fara í eina vítakeppni. „Það er virkilega gaman að þessu og sér- staklega er þetta skemmtilegt fyrir áhorfendur. Við hefðum samt átt að klára þetta eftir að við komumst sjö mörkum yfir í seinni hálfleik, en þá slöppuðum við eitthvað af og þeir náðu að jafna. Þetta tekur dálítið í að spila svona tvo hörku- leiki tvo daga í röð og ekki ólíklegt að maður finni aðeins fyrir þessu á morgun,“ sagði þessi öflugi leikmaður. Slapp allt saman fyrir horn Hann var ekkert nema hlédrægnin þegar minnst var á ágætan leik hjá honum. „Já, þetta gekk ágætlega hjá mér, en ég var samt dálítið lengi í gang. En þetta slapp allt saman fyrir horn.“ Það var ekki að sjá á leik Ómars Inga í gær að hann væri á sínu fyrsta ári í efstu deild og væri að- eins sautján ára gamall. Hann gekk til liðs við Valsmenn fyrir þetta tímabil en hann er frá Sel- fossi og lék handbolta með félaginu upp yngri flokkana og er reyndar í þriðja flokki ennþá. Hann var valinn efnilegasti leikmaður 1. deild- arinnar í fyrra þegar hann lék með Selfyssingum og er síðan að blómstra hjá Valsmönnum í vetur. Ómar Ingi er ekki fyrsti góði leikmaðurinn sem kemur frá Selfossi og það er í rauninni merkilegt hversu öflugum leikmönnum Selfyssingar hafa skilað í gegnum tíðina, en þar á bæ er haldið mjög vel utan um barna- og unglingastarfið og síðan tekur Íþróttaakademían við þegar framhalds- skólaaldri er náð. Fundið formúlu sem virkar vel Einar Guðmundsson hefur lengi haft yfirum- sjón með barna- og unglingastarfinu og Sebastian Alexandersson hefur verið með Akademíuna í níu ár. „Einar hefur skýra sýn á hvernig þetta á að vera og við erum mjög sammála um það og virð- umst hafa fundið formúlu sem virkar vel. Við sjáum um að skaffa verkfærin, en síðan eru það krakkarnir sem sjá um vinnuna. Krakkarnir hér eru gríðarlega vinnusamir, duglegir og metn- aðargjarnir og það hefur mikið að segja,“ segir Sebastian, spurður um þá fjölmörgu sterku leik- menn sem komið hafa frá Selfossi. Um Ómar Inga sagði Sebastian meðal annars: „Fyrir það fyrsta er hann með mikla náttúrulega hæfileika sem hann hefur þróað mjög vel með sér. Hann hefur mikla yfirsýn yfir leikinn og alveg ein- stakan leikskilning.“ »6 Sautján ára Selfyssingur  Ómar Ingi lék gríðarlega vel þegar Valsmenn urðu deildameistarar  Barna- og unglingastarfið á Selfossi skilar miklum fjölda góðra handboltamanna MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2014 ÍÞRÓTTIR Pétur Rúnar Birgisson Átján ára leikstjórnandi hefur spilað mest allra hjá nýliðum Tindastóls sem hafa komið skemmtilega á óvart. Fékk dýrmæta reynslu í 1. deildinni. Kannski bara gott að falla 2013. 4 Íþróttir mbl.is Morgunblaðið/Styrmir Kári Deildabikarinn Framkonur urðu í gær deildabikarmeistarar í handknattleik í þriðja skipti með því að sigra Stjörnuna í úrslitaleik, 25:20, í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Sigurbjörg Jóhannsdóttir og Ásta Birna Gunnarsdóttir tóku við bikarnum og leiddist það alls ekki. »7 Gylfi Þór Sig- urðsson er í liði ársins í ensku úr- valsdeildinni í knattspyrnu hjá bandarísku sjón- varpsstöðinni NBC sem hefur valið liðið nú þegar deildin er svo til hálfnuð. Gylfi hefur átt frábæru gengi að fagna með Swan- sea á leiktíðinni en hann hefur skorað 3 mörk í deildinni og hefur átt 8 stoðsendingar, næstflestar allra leikmanna deildarinnar. Meðal fleiri leikmanna sem eru í liði ársins fyrir fyrri hluta keppn- istímabilsins eru Sergio Agüero (Manchester City), Alexis Sanchez (Arsenal) og Diego Costa (Chelsea). Gylfi og félagar hans í Swansea verða næst í eldlínunni í ensku úr- valsdeildinni í kvöld þegar liðið sækir Liverpool heim á Anfield. Það er síðasti leikur ársins í deild- inni og Swansea myndi ljúka árinu í 7. sæti með sigri. gummih@mbl.is Gylfi Þór valinn í lið árs- ins hjá NBC Gylfi Þór Sigurðsson 29. desember 1962 Hástökkvarinn Jón Þ. Ólafsson stekkur yfir 2,11 metra á Jóla- móti ÍR sem haldið er í ÍR-húsinu við Túngötu og setur nýtt Íslandsmet innanhúss í grein- inni. Þetta er jafn- framt Norður- landamet, besti árangur í Evrópu á árinu og sá næstbesti í heiminum. Hann bæt- ir eigið Íslandsmet um þrjá senti- metra og heldur því næstu 25 ár- in. Jón jafnar líka Íslandsmet Vilhjálms Einarssonar í hástökki án atrennu þar sem hann stekk- ur 1,75 metra. 29. desember 1981 Íslenska karlalandsliðið í hand- knattleik burstar Dani, 32:21, í vináttulandsleik á Akranesi. Sig- urður Sveinsson skorar 7 mörk, Þorbergur Aðalsteinsson og Kristján Arason 6 hvor og leik- urinn er sagður einn sá besti sem íslenskt landslið hefur spilað frá upphafi. 29. desember 2004 Ísland sigrar Pólland, 116:114, í framlengdum vináttulandsleik karla í körfuknattleik sem fram fer í Borgarnesi. Staðan er 98:98 eftir venjulegan leiktíma, þar sem Teitur Örlygsson jafnar úr tveimur vítaskotum í blálokin. Magnús Matthíasson skorar 31 stig fyrir íslenska liðið og Guð- mundur Bragason 20. Á ÞESSUM DEGI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.