Morgunblaðið - 29.12.2014, Page 4

Morgunblaðið - 29.12.2014, Page 4
VIÐTAL Kristján Jónsson kris@mbl.is Nýliðar Tindastóls frá Sauðárkróki sitja sem fastast í 2. sæti Dominos- deildar karla í körfuknattleik að fyrri umferð lokinni. Þegar taflan er skoðuð í Morgunblaðinu má kannski færa fyrir því rök að Stólarnir hafi verð langnæstbestir á fyrri hluta tímabilsins. Ríkjandi meistarar úr KR eru með fullt hús stiga eftir ell- efu umferðir sem er magnaður ár- angur út af fyrir sig. Stólarnir hafa tapað fyrir KR á útivelli en þar fyr- ir utan hefur liðið einungis tapað einu sinni. Stólarnir eru með öflugan banda- rískan leikmann eins og gengur og gerist í deildinni, Myron Dempsey. Þá eru þeir vel settir með tvo leik- reynda menn sem eru af erlendu bergi brotnir en með íslenskan rík- isborgararétt. Þar er átt við Darrel Lewis og Darrell Flake en sá síð- arnefndi hefur reyndar lítið getað beitt sér vegna meiðsla. Eru þessir þrír leikmenn fín viðbót við kjarna reyndra Skagfirðinga: Helga Rafns Viggóssonar, Svavars Atla Birgis- sonar og Helga Freys Margeirs- sonar. Þrír ungir heimamenn spila mikið Ekki hefur hins vegar farið mjög mikið fyrir því í umræðunni að þrír ungir heimamenn spila töluvert mikið í Tindastólsliðinu. Leikstjórn- andi liðsins er til að mynda einungis 18 ára gamall. Heitir hann Pétur Rúnar Birgisson og hefur byrjað inni á í öllum deildarleikjum liðsins á tímabilinu. Enginn spilar fleiri mínútur að meðaltali í liðinu en Pét- ur og hefur hann gefið 6,5 stoðsend- ingar að meðaltali í leik og skorar að jafnaði 11,5 stig. Morgunblaðið sló á þráðinn til Péturs og ræddi við hann um velgengni Stólanna. Velgengnin kemur ekki á óvart „Við höfðum sett okkur það markmið að vera alla vega á meðal fjögurra efstu liðanna. Það hefur gengið eftir hingað til. Það má því alveg segja að ég hafi búist við því að okkur myndi ganga vel. Við er- um með fína blöndu af eldri og yngri leikmönnum og ég skynjaði fljótlega eftir að tímabilið hófst að við værum samkeppnisfærir,“ sagði Pétur og hann segir leikmenn ná vel saman þó aldursmunurinn sé tveir áratugir á yngsta og elsta leik- manni liðsins. „Mórallinn er mjög góður og kannski furðugóður miðað við hversu mikið aldursbil er á milli manna. Allir ná vel saman og þetta gæti ekki verið betra.“ Fékk tækifærið í fyrra Pétur fékk sitt stóra tækifæri í meistaraflokki síðasta vetur og lék vel í 1. deildinni. Hann segir fall Tindastóls úr úrvalsdeild vorið 2013 hafa verið hálfgerða blessun vegna þess að ungu strákarnir fengu dýr- mæta reynslu í 1. deild sem óvíst er að þeir hefðu fengið í úrvalsdeild. „Ég spilaði alla leikina í 1. deild- inni á síðasta tímabili og var þá að- al-leikstjórnandi liðsins. Ég þóttist vita að ekki yrði breyting á því og í sumar var mér sagt að ég yrði áfram leikstjórnandi númer eitt. Við vorum einmitt að ræða að það hafi kannski bara verið gott fyrir okkur að falla. Þá fengum við ungu púk- arnir meiri tíma inni á vellinum og meiri ábyrgð. Það reyndi meira á okkur á síðasta tímabili og það er að skila sér eins og er,“ benti Pétur á. Vinnusamur þjálfari Þjálfari Stólanna er Bandaríkja- maður, Israel Martin að nafni, og er greinilega á réttri leið með liðið. Pétur segir að þar sé á ferðinni fag- maður í þjálfun. „Mér finnst hann mjög fínn. Hann leggur mikla vinnu í starfið og hefur greinilega gaman af þessu. Hann hefur farið í nokkur viðtölin og segir alltaf það sama: Að hann sé hérna til að hjálpa okkur. Hann gerir það og er til dæmis bú- inn að leikgreina alla andstæðinga frá a-ö þegar kemur að leikjum,“ útskýrði Pétur og hann er ánægður með stemninguna í kringum liðið á Króknum. „Mér finnst frábært hve margir mæta á leikina. Í fyrra brá mér eig- inlega þegar ég sá hversu margir mættu á leiki hjá okkur þó við hefð- um dottið niður 1. deild. Nú hefur mætingin aukist smám saman og áhuginn einnig. Það kemur fyrir að maður er stoppaður úti á götu þar sem manni er óskað til hamingju og fólk minnist á að gaman sé að sjá okkur ungu strákana stíga fram. Þetta eykur sjálfstraustið.“ Hugurinn leitar vestur Pétur er menntaskólanemi og segist eiga einn og hálfan vetur eft- ir til stúdentsprófs. Hugurinn leitar vestur um haf eins og algengt er hjá efnilegum körfuboltamönnum. Hann hefur hug á því að spila körfubolta samhliða háskólanámi í Bandaríkjunum ef færi gefst. „Ég er að spá í að fara til Banda- ríkjanna að loknu stúdentsprófi. Ég mun væntanlega reyna að komast í almennilegan skóla þar. Markmiðið er að taka þar fjögur ár og ef vel gengur í körfunni þá yrði stefnan sett á atvinnumennsku í Evrópu í framhaldinu. Þetta hefur verið markmiðið hjá mér,“ sagði Pétur Rúnar Birgisson, leikstjórnandi Tindastóls, við Morgunblaðið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Átján Pétur Rúnar Birgisson fékk mikið að spila með Tindastólsliðinu í 1. deildinni í fyrra og kom því vel undir- búinn til leiks með því í úrvalsdeildinni í haust. Hann hefur spilað að meðaltali tæpar 32 mínútur í leik. Okkur er óskað til hamingju á götum úti  Nýliðar Tindastóls eru spútniklið Dominos-deildarinnar  Leikstjórnandi liðs- ins, Pétur Rúnar, er aðeins 18 ára gamall  Spilar að meðaltali mest allra í liðinu Eplið og eikin » Faðir Péturs, Birgir Rafn Rafnsson, var í Íslandsmeist- araliði Tindastóls í 4. flokki árið 1975. Þar var um að ræða fyrstu Íslandsmeistara Tinda- stóls í flokkaíþróttum. » Feður tveggja annarra nú- verandi leikmanna Tindastóls voru einnig í því liði: Margeir Friðriksson, faðir Helga Freys, og Jóhann Ingólfsson, faðir Friðriks H. » Þá var móðurbróðir Helga Rafns Viggóssonar fyrirliða, Tómas Dagur Helgason, jafn- framt í liðinu. 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2014 Þórir Hergeirs-son, þjálfari nýkrýndra Evr- ópumeistara Nor- egs, er einn af fimm þjálfurum sem handball- planet.com til- nefnir í kosningu sinni á handknatt- leiksþjálfara ársins í kvennaflokki í heiminum á árinu 2014. Kosningin stendur yfir og hægt er að kjósa á forsíðu vefjarins. Hinir fjórir sem koma til greina eru Jorge Duenas, þjálfari Spánar, Dragan Adzic, þjálf- ari Svartfjallalands og Buducnost, Ambros Martin, þjálfari Györ, og Helle Thomsen, þjálfari sænska landsliðsins og Midtjylland.    Danska handknattleikssambandiðsagði í gær Jan Pytlick, lands- liðsþjálfara kvenna, upp störfum frá og með 1. janúar. Í tilkynningu frá sambandinu segir að eftir að farið hafi verið rækilega yfir frammistöðu danska liðsins í lokakeppni Evr- ópumótsins í Króatíu og Ungverja- landi fyrr í þessum mánuði hafi verið ákveðið í samráði við Pytlick að slíta samstarfinu tafarlaust. Hann hefur stýrt liðinu frá 1997, með eins árs hléi 2005. Danir urðu tvívegis ólympíu- meistarar undir stjórn Pytlicks, 2000 og 2004, og urðu Evrópumeistarar 2002. Liðið fékk bronsverðlaun á EM í Serbíu 2013 en á nýloknu Evr- ópumóti náðu Danir ekki að komast í undanúrslitin.    Rúnar Kára-son fór fyrir liði Hannover Burgdorf þegar liðið vann auð- veldan sigur á Lu- Friesenheim í þýsku 1. deildinni í handknattleik í fyrradag, 27:19. Rúnar var marka- hæstur hjá Burgdorf í leiknum með sex mörk, en liðið var þremur mörk- um yfir í hálfleik, 12:9.    Alexander Petersson skoraðifimm mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen sem vann nauman útisigur á Hamburg, 26:25, á laugardaginn. Lö- wen er á ný tveimur stigum á eftir Kiel á toppi deildarinnar og á leik til góða.    Fyrsti stjóri tímabilsins í ensku úr-valsdeildinni var rekinn á laug- ardaginn, en það var Neil Warnock, knattspyrnustjóri Crystal Palace, sem var látinn taka pokann sinn. Hann tók við liðinu af Tony Pulis í ágúst, tveimur dögum áður en keppni hófst í deildinni. Keith Millen hljóp í skarðið og stýrði liði Palace gegn QPR í gær. Pulis var strax orðaður við endurkomu og þá var Tim Sherwood nefndur til sögunnar sem mögulegur stjóri Palace.    Jón Arnór Stef-ánsson og samherjar í Uni- caja Málaga eru áfram á toppnum í spænsku 1. deild- inni í körfuknatt- leik eftir sigur á Estudiantes, 66:62, í fyrra- kvöld. Jón skoraði sex stig í leiknum. Annað kvöld er sannkallaður stór- leikur á dagskránni þegar Unicaja fær meistarana í Real Madrid í heim- sókn í toppslag.    Luka Modric, miðjumaður RealMadrid, hefur verið útnefndur knattspyrnumaður ársins í Króatíu og er þetta í fjórða skipti sem hann hlýtur þessa viðurkenningu. Modric var síðast kjörinn árið 2011 en Mario Mandzukic hefur hreppt hnossið undanfarin tvö ár. Fólk sport@mbl.is Þessir sex leikmenn hafa spilað mest fyrir Tindastól það sem af er tímabilinu:  Pétur Rúnar Birgisson, 31,51 mín. í leik, 11,5 stig og 6,5 stoð- sendingar.  Darrel Lewis, 30,31 mín. í leik, 21,5 stig og 6,9 fráköst.  Myron Dempsey, 29,26 mín. í leik, 23,1 stig og 11,1 fráköst.  Helgi Rafn Viggósson, 24,56 mín. í leik, 10,7 stig og 5,6 frá- köst.  Ingvi Rafn Ingvarsson, 20,59 mín. í leik, 6,2 stig og 3,4 stoð- sendingar.  Helgi Freyr Margeirsson, 19,08 mín. í leik, 7,8 stig og 2 stoð- sendingar. Næstu menn: Svavar Atli Birg- isson, Viðar Ágústsson, Darrel Flake og Finnbogi Bjarnason. Þessir hafa spilað mest í vetur NÝLIÐARNIR FRÁ SAUÐÁRKRÓKI:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.