Fréttablaðið - 22.06.2015, Side 2
22. júní 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Á morgun er útlit fyrir fyrir hæga norðlæga
átt eða hafgolu suðvestanlands. Skýjað
með köflum víðast hvar en skýjað að mestu
austan til á landinu. Það verður áfram
hlýtt í veðri á suðvestan- og vestanverðu
landinu, en annars er hiti 6 til 12 stig.
SVEITARSTJÓRNARMÁL „Eftir
nokkra skoðun innandyra hjá
okkur komumst við að því að hag-
kvæmni gæti verið nokkur, sér-
staklega ef horft er á peningahlið-
ina,“ segir Ármann Kr. Ólafsson,
bæjastjóri Kópavogs.
Umtalsverðri vinnu hefur verið
varið í að greina kosti þess að
flytja bæjarskrifstofu Kópavogs
úr Fannborg í Norðurturn við
Smáralind. Bæjarstjórn Kópa-
vogs mun á næstunni taka fyrir
tillögu um að veita Ármanni
umboð til að ganga til samninga
um kaup á nýju húsnæði.
„Í þessu felst fyrst og fremst
hagkvæmni, rýmið nýtist mun
betur. Við erum að fækka fer-
metrum úr um það bil 4.700 í
3.500. Við förum úr þessu hólf-
aða skrifstofurými og það verður
meira um opið rými. Þetta held ég
að henti betur, auki flæði meira
og skapi betri þjónustu fyrir
bæjar búa,“ segir Ármann.
Fjárhagslegur ábati af flutn-
ingunum gæti verið um 2 millj-
arðar króna á 25 árum. Þá er lík-
legt að sala fasteigna bæjarins
við Fannborg muni skapa minni
lánsþörf fyrir bæinn.
„Lánsþörfin verður minni með
tilliti til sölu á gömlu skrifstof-
unni. Þörfin væri þá upp á núll
til 345 milljónir til skamms tíma
en til langs tíma skapar þetta
sparnað sem er mjög hagkvæmt
fyrir bæinn og skapar fjármuni
sem má nýta til að greiða niður
skuldir.“
- srs
Bæjarstjóri Kópavogs segir að til langs tíma muni kaup á nýrri skrifstofu skila sér í miklum ábata:
Flutningur bæjarskrifstofu skapar sparnað
NORÐURTURN Ármann segir nýja
rýmið mun nútímalegra.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DANMÖRK Margrét Danadrottning veitti Lars Løkke
Rasmussen, leiðtoga Venstre, umboð til að mynda
nýja ríkisstjórn í Danmörku.
Leiðtogar allra stjórnmálaflokkanna hafa fundað
með drottningunni undanfarna daga og veitti hún
Løkke umboðið eftir að leiðtogar danska Þjóðar-
flokksins, Frjálslynda bandalagsins og Íhalds-
flokksins mæltu með því að Løkke fengi að fara með
stjórnar myndunarumboð.
Stjórnmálaskýrendur í Danmörku telja líklegt að
Løkke muni mynda minnihlutastjórn með stuðningi
nokkurra hægriflokka þar sem flokkarnir eru sam-
mála um nokkur lykilatriði á borð við hvernig skuli
hátta opinberum útgjöldum.
Danski Þjóðarflokkurinn vann óvænt mikinn kosn-
ingasigur síðastliðinn fimmtudag en hann er nú annar
stærsti flokkurinn á eftir Jafnaðarmannaflokknum.
Þjóðarflokkurinn hefur þegar lagt fram fjögur
skilyrði fyrir setu í ríkisstjórn en flokkurinn vill að
ríkis stjórnin taki upp skeptískari Evrópustefnu, inn-
leiði landamæraeftirlit, takmarki innflutning og mót-
töku flóttamanna auk þess að auka opinber útgjöld
um 0,8 prósent. - srs
Danski Þjóðarflokkurinn leggur fram fjögur skilyrði fyrir ríkisstjórnarsetu:
Løkke fær umboð til viðræðna
Á LEIÐ FRÁ DROTTNINGUNNI Lars Løkke mun að öllum
líkindum mynda minnihlutastjórn. FRÉTTABLLAÐIÐ/AFP
ALÞINGI Þingfundur verður í dag
klukkan 15, en Alþingi hefur
ekki fundað síðan á þriðjudag. Þá
var fundum ítrekað frestað eftir
að tilkynnt var um fyrirhugað-
ar breytingar sjávarútvegsráð-
herra á því hvernig fyrirkomulag
makríl veiða yrði.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er samkomulag í fæð-
ingu. Það felst meðal annars í því
að horfið verður frá tillögu meiri-
hluta atvinnuveganefndar, undir
forystu Jóns Gunnarssonar, um
að fjölga þeim virkjanakostum
sem færast í nýtingarflokk. - kóp
Hnúturinn er að leysast:
Samkomulag í
fæðingu á þingi
Tónlistarhátíðinni Secret Solstice lauk í gærkvöldi:
Þúsundir nutu tónlistarinnar
FÓLK Fjöldi fólks naut tónlistar á hátíðinni Secret Solstice sem lauk í
Laugardalnum í gærkvöldi með tónleikum Wu Tang Clan. Veðrið lék
við hátíðargesti og þeir sem best gerðu við sig keyptu sig í heita pott-
inn sem var í átta metra hæð á svæðinu. Fjöldi tónlistarmanna steig
á svið og leynigestur hátíðarinnar var bandaríski rapparinn Busta
Rhymes. - kóp
Í VARMA OG VELLYSTINGUM Þau Takara Bushnell, Lindsey Spekman og Efrain
Quintan frá Kaliforníu sögðu hátíðina vera einstaka upplifun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ
VEÐUR „Það verður áfram flott
veður á landinu öllu nema kannski
Suðausturlandi,“ segir Sibylle
von Löwis of Menar, hópstjóri
veðurmælikerfa hjá Veðurstofu
Íslands. Það ætti ekki að hafa
farið framhjá neinum að sú gula
hefur látið sjá sig í ríkara mæli að
undanförnu heldur en landsmenn
hafa vanist.
Sólin mun halda áfram að
skína næstu daga þó líklega verði
nokkrum gráðum svalara en í
gær. Hitinn í gær varð mestur
19°C á nokkrum stöðum, til dæmis
í Húsafelli og á Þingvöllum. - jóe
Stefnir í góða veðurviku:
Sól og blíða
í kortunum
SJÓMENNSKA „Það getur verið
frekar mikil prumpulykt hérna á
næturnar,“ segir Birgitta Micha-
elsdóttir, nemandi á skólaskipinu
Georg Stage.
„Við erum 60 manns um borð í
skipinu og það getur verið mjög
þröngt. Við búum í einu rými
neðan þilja þar sem við sofum,
borðum og förum í kennslustund-
ir. Síðan sofum við í hengirúmum
á næturnar og það verður afar
þröngt. Þetta er mikil áskorun en
mjög skemmtilegt,“ segir hún.
Birgitta, sem er tvítug, ákvað
eftir útskrift úr Kvennaskólanum
að prófa eitthvað algerlega nýtt.
Hún flutti til Danmerkur og
sótti um nám í sjómennsku á skóla-
skipinu Georg Stage.
„Mig langaði að gera eitthvað
nýtt og mig langaði aðallega til að
ferðast,“ segir hún.
Georg Stage er danskt skólaskip
og þriggja mastra seglskúta sem
var smíðuð árið 1934.
„Maðurinn sem lét smíða skipið
nefndi það eftir syni sínum sem dó
ungur,“ segir Birgitta.
Skipið er nefnt eftir Georg
Stage, syni Fredriks Stage, sem
dó úr berklum árið 1880. Sýn Fred-
riks var að efla þjálfun danskra
sjómanna með verklegum aðferð-
um og lét hann því smíða upphaf-
lega skólaskipið Georg Stage árið
1882, seinna skipið var smíðað árið
1934.
Nemendur á skipinu munu verða
á siglingu í fimm mánuði um Norð-
ur-Atlantshaf.
„Við höfum komið við á Englandi
og Írlandi, erum núna á Íslandi og
munum síðan koma við í Færeyj-
um, Orkneyjum, Kristiansand,
Álaborg og Kristjánsey,“ segir
Birgitta.
„Hér lærum við allt sem sjó-
menn þurfa að kunna sem þýðir
að við lærum hluti eins og sigl-
ingafræði og vélfræði. Við lærum
allt um skip, ekki bara seglskip.
Lærum til dæmis hvernig skrúfan
virkar og hvernig maður stýrir,“
segir hún en Birgitta hefur marg-
oft stýrt skipinu sjálf en nemend-
urnir skiptast á að stýra.
„Síðan lærum við mikið á reip-
in. Við lærum að nota kraft reipis-
ins og margt er unnið með hand-
afli. Við erum með sjö kílómetra af
reipi á skipinu sem er mjög mikið.“
Birgitta gæti hugsað sér að
vinna við siglingar í framtíðinni.
„Það eru reyndar ekki mörg
svona skólaskip eftir í heiminum
en ég gæti hugsað mér að vinna
á seglskipi. Það væri auðvitað
gaman að geta verið í heitari lönd-
um.“ stefanrafn@frettabladid.is
Fór beint úr Kvennó
að læra sjómennsku
Birgitta Michaelsdóttir er tuttugu ára nemandi á danska skólaskipinu Georg Stage.
Hún býr um borð í seglskútunni með sextíu öðrum nemendum. Hún segir að þó
að það sé þröngt um fólkið sé námið mikil og skemmtileg áskorun.
STÝRT MEÐ HANDAFLI Sjö kílómetrar
af reipi eru um borð í Georg Stage.
VIÐ STÝRIÐ Birgitta hefur margoft stýrt seglskipinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
VEÐUR
SJÁ SÍÐU 18
SÓLAR
SJÓÐHEITUR
í sólarhring!
Hefst í dag
kl. 12
1
5
-0
9
-2
0
1
5
0
9
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
4
-5
6
3
8
1
6
2
4
-5
4
F
C
1
6
2
4
-5
3
C
0
1
6
2
4
-5
2
8
4
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K