Fréttablaðið - 22.06.2015, Síða 4

Fréttablaðið - 22.06.2015, Síða 4
22. júní 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 SPURNING DAGSINS Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ði r á sk ilj a sé r r ét t t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð ve rð g et ur b re ys t á n fy rir va ra . Krít Frá kr. 124.900 Netverð á mann frá kr. 124.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 159.900 m.v. 2 fullorðna í stúdíó. Porto Platanias Village 2. júlí í 11 nætur MENNTUN Um þrjú þúsund ein- staklingar hafa á einn eða annan hátt notið góðs af tilraunaverkefn- inu Menntun núna í Breiðholti sem hófst fyrir tæpum tveimur árum en er nú lokið. Árangurinn þykir svo góður að halda á verkefninu áfram þótt það verði minna í sniðum. „Við í Breiðholti ætlum að halda áfram að hittast og vinna saman. Það fækkar í framkvæmdateymi verkefnisins en við ætlum að þróa áfram tækifæri til menntunar,“ segir Óskar Dýrmundur Ólafsson, hverfisstjóri í Breiðholti. Menntun núna var tilraunaverk- efni menntamálaráðuneytisins, Reykjavíkurborgar, aðila vinnu- markaðarins og fræðslustofnana. Í verkefninu var lögð áhersla á fræðslu í nærsamfélaginu, að efla innflytjendur, sem eru fjölmenn- ir í Breiðholti, með íslenskunámi og samfélagsfræðslu. Svokallað- ir brúar smiðir fengu þjálfun í að aðstoða samlanda sína við að nýta tækifæri sín í nýju landi. „Meðal námskeiðanna var leiðtoganámskeið fyrir konur sem var mjög vel sótt og árangursríkt. Með því var verið að virkja konur sem leiðtoga í sínu nærsamfélagi,“ greinir Ólafur frá. Jafnframt var lögð áhersla á að ná til brotthvarfsnema á svæðinu. „Haft var samband við um 600 manns sem horfið höfðu frá námi og þeim veitt viðtöl við ráðgjafa eða boðin önnur úrræði. Við teljum að 100 manns hafi beinlínis hafið aftur nám eftir íhlutun. Við erum búin að sá fræjum. Fólk fær hvatn- ingu og ráðgjöf. Það veit oft ekki hvaða tækifæri bjóðast til að fara aftur í nám,“ tekur Óskar fram. Auk Breiðholts hefur verkefnið Menntun núna verið í gangi í Norð- vesturkjördæmi. Markmiðið þar var að efla ráðgjöf til fyrirtækja um nám á vinnustað í kjördæm- inu, auka samstarf atvinnulífs og fræðsluaðila þar um starfstengt nám, fjölga einstaklingum sem ljúka iðnnámi og efla íslenskukunn- áttu innflytjenda í kjördæminu. Verkefnið var liður í átaki til þess að hækka menntunarstig í íslensku atvinnulífi. Sömu aðilar og komu að verkefninu í Breiðholti komu að því í Norðvesturkjördæmi. ibs@frettabladid.is Þrjú þúsund í átak- inu Menntun núna Tilraunaverkefnið Menntun núna náði til þriggja þúsunda Breiðhyltinga. Áhersla lögð á fræðslu í nærsamfélaginu með námskeiðum og að ná til brotthvarfsnema. Árangurinn svo góður að verkefninu verður haldið áfram að einhverju leyti. ÚTSKRIFT MÍMIS Nem- endur útskrifaðir úr námskeiðum styrktum af vek- efninu Menntun núna. MYND/MENNTUN NÚNA Meðal námskeiðanna var leiðtoga- námskeið fyrir konur sem var mjög vel sótt og árangurs- ríkt. Með því var verið að virkja konur sem leiðtoga í sínu nærsamfélagi. Óskar Dýrmundur Ólafsson, hverfisstjóri í Breiðholti LONDON Laumufarþegi féll úr flug- vél yfir London á föstudag og lenti á verslun með þeim afleiðingum að hann lést. Frá þessu greinir Sky News. Vélin var á leið frá Jóhannesar- borg í Suður-Afríku til London og átti atvikið sér stað hjá Heathrow- flugvelli í London. Hann og annar maður eru tald- ir hafa haldið til í lendingarbún- aði farþegaþotunnar á meðan hún flaug tæplega þrettán þúsund kíló- metra. Hinn maðurinn er alvarlega slasaður á sjúkrahúsi í London og þykir það kraftaverk að hann hafi lifað flugið af. - ngy Á leið frá Afríku til Evrópu: Laumufarþegi féll úr flugvél BRITISH AIRWAYS Maðurinn féll úr flugvél British Airways. MYND/AFP SJÁVARÚTVEGUR Eigendur Sam- herja og stjórnendur Deutsche Fishfang Union (DFFU) undir- rituðu fyrir helgi samning um smíði tveggja skuttogara við norsku skipasmíðastöðina Kle- ven í Álasundi. Skipin eru hönn- uð af Rolls Royce. Haraldur Grétarsson, fram- kvæmdastjóri DFFU, segir að þetta séu fyrstu nýsmíðar félags- ins frá því Samherji keypti félagið og löngu tímabært skref. Skipin séu eins og þau ger- ast best í dag, allur aðbúnaður áhafnar verður til fyrirmyndar og vinnuaðstaða eins og best ger- ist. - shá Endurnýjun eftir 20 ár: Samherji smíð- ar tvö ný skip NÆSTA KYNSLÓÐ Skipin eru mun umhverfisvænni en forverarnir. MYND/R&R VIÐSKIPTI Sparisjóður Norðurlands gerði samkomulag við Landsbank- ann í gær, þess efnis að hafinn verði undirbúningur að samruna þessara tveggja fjármálafyrirtækja undir merkjum Landsbankans. Í tilkynningu frá Landsbank- anum kemur fram að stjórn spari- sjóðsins hafi leitaði til Landsbank- ans þann 9. júní 2015 til að kanna áhuga á samruna vegna óvissu um framtíð sjóðsins. Sameinað fyrirtæki yrði rekið undir nafni Landsbankans og við samrunann rynnu allar eignir og skuldbindingar sparisjóðsins inn í Landsbankann og hann tæki við rekstri allra útibúa sjóðsins. Eiginfjárhlutfall Sparisjóðs Norðurlands var 8,2 prósent í árs- lok 2014 sem er undir þeirri eigin- fjárkröfu sem Fjármálaeftirlit- ið gerir til sparisjóðsins. Rekstur sjóðsins hefur verið viðunandi en niðurfærslur eigna í kjölfar endur- mats þeirra hafa valdið neikvæðri rekstrarafkomu. - ngy Sparisjóður Norðurlands hefur náð samkomulagi um samruna: Rennur saman við Landsbankann LANDSBANKINN Stjórn Sparisjóðsins telur að með samrunanum verði óvissu eytt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Inga, eru álfar kannski menn? Eða menn kannski álfar? Inga Björk Ingadóttir, músíkmeðferðar- fræðingur og eigandi Hljómu, lék á lýru á Álfahátíð í Hellisgerði á laugardag. VIÐSKIPTI Spurningaleikurinn QuizUp er nú fáanlegur fyrir Windows-síma. Fram til þessa hefur einungis verið hægt að spila leikinn í tækj- um sem keyra á iOS-stýrikerfinu og á Android-tækjum. Markaðshlutdeild Windows- stýrikerfisins er lítil og úrval appa fyrir eigendur Windows síma eftir því. Í QuizUp eru yfir 600 þúsund spurningar í 1.200 flokkum og spila virkir notendur rúmlega 7 milljónir leikja á dag. Önnur kyn- slóð leiksins kom út í lok maí og er meiri áhersla lögð á samskipti og að tengja spilara saman. - gló Þjónar þremur stýrikerfum: QuizUp líka fyrir Windows SAMFÉLAG Þroskaþjálfinn Hanna Guðrún Sigurjóns- dóttir er Reykvíkingur ársins 2015. Hanna Guðrún hefur látið til sín taka þegar kemur að flokkun á rusli og umhverfisvernd en hún er búsett í Kóngsbakka í Neðra-Breiðholti og var til- nefnd af nágranna sínum. Hún hefur verið formaður húsfélagsins í Kóngs- bakka um nokkurra ára skeið og staðið fyrir fræðslustarfi um flokkun sem leitt hefur til þess að sorptunnum hefur verið fækkað um tvær í hverjum stigagangi og flokka íbúar nú allan pappír og pappa frá almennu heimilissorpi. Sjálf slær Hanna Guðrún ekki slöku við og flokk- ar einnig plast, málma og lífrænan úrgang frá heim- ilissorpi sínu og notar að auki þann lífræna úrgang sem til fellur til moltugerðar. Á laugardagsmorgun opnaði Hanna Guðrún Elliðaárnar í boði borgarstjóra og Stangaveiðifélags Reykjavíkur og um hálf átta landaði hún maríu- laxi sínum sem var 62 sentimetrar að lengd. „Hann bragðaðist mjög vel, það er alltaf gott að fá svona nýveiddan og nýgenginn lax,“ segir Hanna Guðrún sem var búin að matreiða fenginn og flokkaði að sjálfsögðu lífræna úrganginn. - gló Reykvíkingur ársins 2015 opnaði Elliðaárnar og landaði maríulaxi sínum: Hefur látið til sín taka í flokkun ÁNÆGÐ Hanna Guðrún með laxinn sem hún veiddi við opnun Elliðaánna á laugardagsmorgun. MYND/AÐSEND FLÓTTAMENN António Guterres, framkvæmdastjóri flóttamanna- mála hjá Sameinuðu þjóðunum, kallar eftir því að þjóðir heimsins endurnýi skuldbindingar sínar gagnvart sáttmála um málefni flóttafólks frá árinu 1951. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Guterres síðastliðinn laugar- dag, alþjóðlega flóttamannadag- inn. Hann segir að aldrei hafi jafn margir verið á flótta, en árið 2014 var metár í fjölda flóttamanna á vergangi. Um 60 milljónir manna eru á flótta í dag. - srs 60 milljónir flóttamanna: Metfjöldi fólks á vergangi BANDARÍKIN Lögreglan í Banda- ríkjunum leitar nú strokufang- anna Richards Matt og Davids Sweat í smábænum Friendship í suðvesturhluta New York-ríkis. Íbúar bæjarins, sem eru um tvö þúsund talsins, hafa verið varaðir við því að nálgast nokkurn sem gæti verið annar hvor fanganna. Þeir Matt og Sweat struku úr rammgerðu fangelsi í ríkinu fyrir 16 dögum. Ef rétt reynist að þeir séu í bænum Friendship hafa þeir lagt 500 km að baki. - skh Taldir hafa farið 500 km: Strokufanga leitað í smábæ 1 5 -0 9 -2 0 1 5 0 9 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 5 -1 6 C 8 1 6 2 5 -1 5 8 C 1 6 2 5 -1 4 5 0 1 6 2 5 -1 3 1 4 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.