Fréttablaðið - 22.06.2015, Side 6

Fréttablaðið - 22.06.2015, Side 6
22. júní 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6 Lyfjaauglýsing 20% afsláttur af 100g og 150g Voltaren Gel í júní TÆKNI Samningur um flutning á starfsemi tölvuleikjarisans CCP í nýbyggingu, sem mun rísa á svæði Vísindagarða Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni, var undirritaður í Öskju fyrir helgi. Undir samninginn skrifuðu Hilmar Veig- ar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, Krist- ín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, og Hilmar Bragi Janusson, stjórnarformaður Vísindagarða HÍ. Auk nýrrar aðstöðu CCP verður að finna aðstöðu fyrir fleiri nýsköpunarfyrirtæki í hús- inu. Með nýrri staðsetningu vonast fyrirtækið eftir auknu samstarfi við háskólasamfélagið en CCP var áður til húsa við Grandagarð. „Ég er sannfærður um að miklir möguleikar eru fólgnir í þeirri samvinnu og uppbyggingar- áformum sem fyrirhuguð er í Vísindagörðun- um,“ sagði Hilmar Veigar við undirritunina. „Við fögnum sérstaklega að koma CCP hing- að á lóðina skapar grundvöll til að hýsa í sömu byggingu ný sprotafyrirtæki,“ sagði Kristín Ingólfsdóttir. „Ég er mjög stoltur af því að þetta er að verða að veruleika og tel að það sé til marks um framsýni og metnað forsvarsmanna fyrirtækis- ins,“ sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, en hann var viðstaddur undirritunina ásamt Ill- uga Gunnarssyni menntamálaráðherra. - þea Framkvæmdastjóri CCP, rektor Háskóla Íslands og stjórnarformaður Vísindagarða undirrituðu samning: CCP flytur höfuðstöðvarnar í Vatnsmýrina FLUTNINGAR Skrifað var undir samning um flutninga CCP í nýbyggingu í Vísindagörðum Háskóla Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 1. Af hvaða tilefni var stórleikkonan Geena Davis stödd hér á landi? 2. Ferðamenn frá hvaða landi eyða mestu á barnum? 3. Hvaða hljómsveit gefur út tónlist sína á USB-lykli? SVÖR 1. Davis fl utti erindi á ráðstefnunni WE 2015. 2. Rússlandi 3. KSF SVISS Stríðandi fylkingar í Jemen náðu ekki samkomulagi um vopnahlé á samningafundi í Genf í gær. Riad Yassin, utanríkisráðherra Jemens, sakar fulltrúa Houthi- uppreisnarhreyfingarinnar um að tefja vopnahlésferlið. Hann segir að á endanum muni við- ræður skila árangri en ekki hefur verið ákveðið hvenær fulltrúar fylkinganna muni hittast næst. Átökin hafa skapað neyðar- ástand fyrir um 20 milljónir Jemena. - srs Ekkert vopnahlé um sinn: Árangurslaus fundur í Genf UTANRÍKISRÁÐHERRA Yassin sakar Houthi-hreyfinguna um að tefja ferlið. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP ÍÞRÓTTIR „Þetta niðurgreiðsluform er […] ósanngjarnt og mismunar börnum og unglingum eftir aldri, fjárhagsstöðu foreldra og íþrótta- og tómstundagreinum.“ Þetta segir í nýrri skýrslu um íþrótta- mál í Hafnarfirði. Skýrslan, sem unnin er af ráð- gjafarfyrirtæk- inu R3, málar svarta mynd af niðurgreiðslum sveitarfélags- ins til barna sem iðka íþrótt- ir. Fram kemur meðal annars að börn sem stunda fótbolta, fimleika og fleiri greinar fá hærri niður- greiðslu en börn sem stunda gólf- íþróttir og badminton. Haraldur L. Haraldsson, bæjar- stjóri Hafnarfjarðar, segist búast við því að brugðist verði við vand- anum þegar líða tekur á haust- ið. „Nú setjumst við yfir þessa skýrslu og skoðum hvað við telj- um að betur mætti fara,“ segir Haraldur. Lægstu niðurgreiðslu fá börn á aldrinum sex til tólf ára sem æfa gólfíþróttir, badminton og aðrar keimlíkar greinar, eða um 15.300 krónur á ári. Hæstu niðurgreiðsluna fá tólf til sextán ára börn sem æfa fótbolta, fimleika og fleira, eða 30.600 krón- ur á ári. Hægt er að fá niðurgreiðslu fyrir tvær íþróttagreinar í einu. Þar af leiðir að börn sem æfa tvær íþróttir sem hljóta meiri niður- greiðslu geta fengið allt að 61.200 krónur á ári. Niðurgreiðslan getur því munað 299 prósentum á milli barna. Í skýrslunni segir að fyrirkomu- lagið komi niður á börnum sem eiga foreldra sem ekki hafa efni á að greiða mismuninn af tveim- ur íþróttagreinum, eftir niður- greiðslu. Þá segir í skýrslunni að sækja verði sérstaklega um niðurgreiðsl- una, ólíkt því sem gengur og gerist til dæmis í Reykjavík. Fáir virð- ist sækja um niðurgreiðsluna og er það mat skýrsluhöfunda að það geti ekki stafað af áhugaleysi for- eldra á því að fá tómstundir barna niðurgreiddar. Í öðrum sveitarfélögum á höfuð- borgarsvæðinu nær niðurgreiðsla til tómstunda til átján ára aldurs. Þetta á ekki við um kerfið í Hafn- arfirði, þar sem börn til sextán ára aldurs fá niður greiðslu. Fram kemur í skýrslunni að full ástæða sé til að endurskoða þetta þar sem mikið brottfall verði úr íþróttum á þessum aldri. „Skýrslan er þarna og nú ætlum við bara að horfa fram á veginn og vinna úr því sem þar er lagt til,“ segir Haraldur bæjarstjóri. snaeros@frettabladid.is Á STÖKKI Fimleikar eru rótgróin íþrótt í Hafnarfirði. Börn sem æfa fimleika fá hærri niðurgreiðslu en börn í öðrum greinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Mismunað eftir áhugasviði Ný greining á íþróttamálum í Hafnarfirði málar svarta mynd af niðurgreiðslum sveitarfélagsins til barna. Skýrslan segir niðurgreiðslurnar mismuna eftir aldri, fjárhagsstöðu foreldra og íþróttagreininni sem börn velja. Hafnarfjörður Niðurgreiðsla fyrir þá sem stunda gólfíþróttir, badminton o.fl.: ● Fyrir börn 6-12 ára er niður- greiðslan kr. 15.300 ● Fyrir 12-16 ára er niður- greiðslan kr. 22.950 ● Niðurgreiðsla fyrir iðkendur fótbolta, fimleika og annarra greina sem æfðar eru allt árið: Fyrir börn 6-12 ára er niður- greiðslan kr. 20.400 Fyrir 12-16 ára er niðurgreiðsl- an kr. 30.600 Garðabær Öll börn á aldrinum 5-18 ára fá 27.500 kr. hvatapeninga Kópavogur Öll börn á aldrinum 5-18 ára fá 30.000 kr. frístundastyrk Reykjavík Öll börn á aldrinum 6-18 ára fá 35.000 kr. styrk til frístunda- iðkunar Mosfellsbær Öll börn á aldrinum 6-18 ára fá 25.000 kr. frístundaávísun MISMUNANDI EFTIR SVEITARFÉLÖGUM HARALDUR L HARALDSSON REYKJAVÍK Mannaskipti verða í hverfisráði Pírata í Breiðholti, en þar víkur sæti Sigmundur Þórir Jónsson fyrir Hreiðari Eiríks- syni. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá Pírötum í Reykjavík. Sigmundur flutti nýverið úr hverfinu og þykir réttast að fulltrúi Pírata í ráðinu sé íbúi í hverfinu. Þá segir í tilkynningunni að Hreiðar hafi laðast að Pírötum í kjölfar þess að hann sagði sig úr framboði fyrir Framsókn og flugvallarvini í síðustu sveitar- stjórnar kosningum. - ngy Mannaskipti í hverfisráði: Nýr Pírati í Reykjavík VEISTU SVARIÐ? 1 5 -0 9 -2 0 1 5 0 9 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 5 -B 9 B 8 1 6 2 5 -B 8 7 C 1 6 2 5 -B 7 4 0 1 6 2 5 -B 6 0 4 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.