Fréttablaðið - 22.06.2015, Page 8
22. júní 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
GRIKKLAND Stjórnvöld í Rússlandi
útiloka ekki að þau muni koma
Grikkjum til bjargar í fjárhags-
vandræðum þeirra.
Í yfirlýsingu sem skrifstofa
Vlad imírs Pútín, forseta Rúss-
lands, sendi frá sér á föstudag
segir að Rússar íhugi lánveiting-
ar til Grikklands. Þar var þó tekið
fram að Grikkir hefðu ekki óskað
eftir aðstoð.
BBC-fréttastofan segir að áhyggj-
ur af starfsemi grískra banka fari
vaxandi en innlánseigendur hafa
tekið út milljarða evra af reikning-
um sínum í þessari viku. Talið er að
upphæðin nemi allt að 4 milljörðum
evra. Ástæðan er sú að stjórnvöld í
Grikklandi hafa frest fram að mán-
aðamótum til þess að ná samning-
um við Evrópusambandið um skuld-
ir Grikklands.
Úttektir af reikningum aukast
frá degi til dags eftir því sem nær
dregur mánaðamótum. Leiðtogar
evruríkjanna munu koma saman
á neyðarfundi á mánudaginn til
að ræða stöðuna, en fundur fjár-
málaráðherra ríkja á evrusvæð-
inu á fimmtudaginn skilaði engum
árangri.
Seðlabanki Grikklands hefur sagt
að ef samningar takast ekki fyrir
mánaðamót megi búast við því að
Grikkir þurfi að yfirgefa evru-
svæðið og í framhaldinu Evrópu-
sambandið. - jhh
Stjórnvöld í Rússlandi íhuga lánveitingar til Grikkja til að bjarga þeim úr fjárhagsvandræðum:
Óttast að gert verði áhlaup á gríska banka
LEIÐTOGAR HEILSAST Alexis Tsipras,
forsætisráðherra Grikklands, hitti Vlad-
imír Pútín, forseta Rússlands.
NORDICPHOTOS/AFP
SKATTUR Bandaríska verslanakeðjan Walmart
hefur komið að minnsta kosti 76 milljörðum doll-
ara fyrir í 78 dótturfyrirtækjum í 15 skattaskjól-
um. Á viðskiptasíðu Dagens Nyheter er vitnað í
skýrslu samtakanna Americans for Tax Fairness,
sem hafa kortlagt meint net dótturfyrirtækjanna
og skattaskjólanna.
Walmart rekur nú 6.300 verslanir í 27 löndum en
á einnig dótturfyrirtæki í fjölda landa án þess að
reka þar verslanir, að því er greint er frá í skýrsl-
unni sem kom út í þessari viku.
Þar segir jafnframt að í ársskýrslum Walmart
sé ekki greint frá félögum í eigu verslanakeðjunn-
ar í Lúxemborg, Hollandi, Sviss, Írlandi, Bresku-
Jómfrúreyjum, Cayman-eyjum, Panama, Barba-
dos og Gíbraltar, en félögin eru sögð vera nokkrir
tugir. Talsmaður Walmart, Randy Hargrove, segir
skýrsluna ófullkomna og gerða til að villa um
fyrir mönnum.
Samtökin Americans for Tax Fairness eru regn-
hlífarsamtök 425 félaga sem vilja skattaumbætur í
Bandaríkjunum.
- ibs
Ný skýrsla um meint skattaundanskot verslanakeðjunnar Walmart:
Milljarðar dala í skattaskjólum
SKATTASKJÓL Lúxemborg er sögð eitt af mörgum skatta-
skjólum Walmart.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Hafnar-
fjarðar höfn eyddi um níu milljón-
um í ferðalög starfsmanna hafnar-
innar á árunum 2011 til 2014. Þar
af var kostnaður við dagpeninga
starfsmanna 4,6 milljónir króna.
Til samanburðar eyddu allar
aðrar stofnanir Hafnarfjarðar-
bæjar samanlagt 12,6 milljónum
króna í dagpeninga fyrir starfs-
menn sína.
Þetta kemur fram í úttekt sem
Capacent gerði á Hafnarfjarðar-
höfn fyrir bæinn.
Alls var farið í 32 ferðir á tíma-
bilinu sem námu 108 ráðstefnu-
dögum og 132 dögum þar sem
dagpeningar voru greiddir út.
Hafnarstjórinn, Már Sveinbjörns-
son, fór í flestar þessara ferða
eða 28 þeirra, ýmist einn eða með
öðru starfsfólki hafnarinnar.
Már Sveinbjörnsson, hafnar-
stjóri Hafnarfjarðarhafnar, segir
að höfnin sé markaðsdrifin höfn
og heimsóknir á ráðstefnur og
fundi séu partur af markaðsstefnu
hafnarinnar.
„Árið 2006 og 2007 var skoðað
hvernig mætti markaðssetja höfn-
ina og þá var meðal annars skoð-
að að leggja áherslu á skemmti-
ferðaskip. Þetta var ákvörðun sem
hafnarstjórnin tók á sínum tíma
og við höfum fylgt því,“ segir Már.
Höfnin er aðili að Cruise Ice-
land og Cruise Europe sem eru
samtök um móttöku skemmti-
ferðaskipa til Íslands. Á þeirra
vegum hafa starfsmenn hafnar-
innar sótt margar ráðstefnur.
Athygli vekur að árið 2014
fækkar ferðum umtalsvert en
það ár var farið í fjórar ferðir og
meðal annars var hætt við ferð til
Miami til að skoða skemmtiferða-
skip á vegum Cruise Iceland.
„Við fórum þarna tvisvar á ári
til Miami eða til Evrópu á vegum
Cruise Iceland. Eftir ráðstefn-
una 2013 þá mátum við það svo að
þessar ferðir væru ekki að skila
okkur ákveðnum ábata þannig
að það var hætt við að fara árið
2014.“
Í úttekt Capacent kemur fram
að bæjarstjóri Hafnarfjarðar
skrifi undir allar dagpeninga-
skýrslur.
„Allar greiðslur dagpeninga
eru samkvæmt reglum ríkisins
og hafa verið kvittaðar af bæjar-
stjóra,“ segir Már og bendir á
að öll gögn um slíkt hafi verið
opinber og ekkert sé falið í þeim
efnum.
Haraldur L. Haraldsson, bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar, vildi ekki tjá
sig um efni úttektarinnar.
stefanrafn@frettabladid.is
Dagpeningar námu
um 4,6 milljónum
Hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar segir hátt hlutfall ferðakostnaðar vera í takt við
markaðsstefnu hafnarinnar. Dagpeningar hafnarinnar á árunum 2011-2014 námu
um þriðjungi dagpeninga allra stofnana bæjarins sem voru 12,6 milljónir.
HÖFNIN Áhersla hefur verið á að laða skemmtiferðaskip til hafnarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Allar
greiðslur
dagpeninga
eru sam-
kvæmt
reglum
ríkisins.
Már Sveinbjörnsson, hafnarstjóri.
Beðið eft ir messu
OPNAÐ EFTIR ÁRÁSINA Ung stúlka bíður eftir að komast til messu í Emanuel-
kirkjunni í Charleston í Norður-Karólínu. Hinn 17. júní skaut Dylann Roof níu manns
í kirkjunni til bana. Í gær komu hundruð manna saman í kirkjunni til sunnudags-
messu og til að minnast þeirra sem voru skotnir. Bandaríska alríkislögreglan annast
rannsókn málsins en lögreglan rannsakar það líkt og um morð væri að ræða en
ekki hryðjuverk. Sú ákvörðun hefur vakið mikla undrun og reiði í samfélagi svartra
í Bandaríkjunum en á laugardaginn uppgötvaðist vefsíða með myndum af árásar-
manninum með fána Suðurríkjanna auk stefnuyfirlýsingar hans þar sem hann
viðrar kynþáttafordóma sína. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FÉLAGSMÁL Landssamtökin
Þroskahjálp tilkynnti á fimmtu-
daginn um ráðningu Árna Múla
Jónassonar í stól framkvæmda-
stjóra samtak-
anna. Síðast-
liðinn tuttugu
ár hefur Frið-
r ik Sigurðs-
son gegnt starfi
framkvæmda-
stjóra en hann
mun láta af
störfum fyrsta
september næst-
komandi og mun Árni Múli hefja
störf þá.
Friðrik mun þó áfram sinna
sérstökum verkefnum fyrir
Þroskahjálp.
Árni Múli er ekki ókunnugur
stjórnun. Hann hefur í gegn um
tíðina starfað sem Fiskistofu-
stjóri, bæjarstjóri Akraness,
skrifstofustjóri sjávarútvegs-
ráðuneytisins og sem lögfræði-
legur ráðgjafi enda menntaður
lögfræðingur með sérmenntun í
mannréttindalögfræði.
„Um leið og við þökkum Frið-
riki Sigurðssyni fyrir ómetanleg
störf í þágu samtakanna bjóð-
um við Árna Múla velkominn og
hlökkum til samstarfsins,“ segir
í tilkynningu á vef Þroskahjálpar.
- þea
Framkvæmdastjóraskipti hjá Þroskahjálp:
Árni Múli ráðinn
ÁRNI MÚLI
JÓNSSON
SVONA ERUM VIÐ
2.634 MW var uppsett afl í virkjunum á
Íslandi í árslok 2010.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
0
9
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
6
-0
8
B
8
1
6
2
6
-0
7
7
C
1
6
2
6
-0
6
4
0
1
6
2
6
-0
5
0
4
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K