Fréttablaðið - 22.06.2015, Blaðsíða 12
22. júní 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Framtíð úrgangsmála
í Reykjavík
KYNNINGARFUNDUR UM AÐGERÐAÁÆTLUN
23. JÚNÍ Á KJARVALSSTÖÐUM KL. 20 – LEITAÐ EFTIR ÁLITI
Reykjavíkurborg óskar eftir umsögnum um
tillögur að aðgerðaáætlun í úrgangsmálum
í Reykjavík og leitar eftir áliti borgarbúa,
fyrirtækja og annarra áhugasamra.
Áætlunin mun gilda fyrir árin 2015–2020
og er markmið hennar að draga úr myndun
úrgangs og auka endurnýtingu og endur-
vinnslu. Sérstök áhersla er lögð á val íbúa
á þjónustustigi í tillögunum.
Reykjavíkurborg heldur af þessu tilefni
opinn fund á Kjarvalsstöðum þriðjudaginn
23. júní kl. 20. Kynntar verða 42 aðgerðir,
tíu leiðarljós og meginlínur um þjónustu
grenndarstöðva sem verða til hliðsjónar
við ákvarðanatöku um úrgangsmál í
sveitarfélaginu.
Allar ábendingar og tillögur um það sem
betur mætti fara í áherslum borgarinnar
til ársins 2020 í þessum mikilvæga mála-
flokki eru vel þegnar.
SKIPULAG FUNDAR
Hjálmar Sveinsson formaður umhverfis- og
skipulagsráðs opnar fundinn og varpar fram
sýn á úrgangsmálin og val á þjónustustigi.
Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri
umhverfis- og úrgangsstjórnunar segir frá
vinnunni við aðgerðaráætlunina og mögu-
leikum í framtíðinni.
Rakel Garðarsdóttir stofnandi Vakandi,
samtök sem vilja auka vitundarvakningu um
sóun matvæla, fjallar um hvað neytandinn
getur gert sjálfur til að draga úr sóun.
Fulltrúar í aðgerðarhópnum nefna valin
atriði úr áætlunni.
Umræður og ábendingar. Aðgerðirnar 42
verða aðgengilegar á fundinum.
Kaffi á könnunni – allir velkomnir.
UMHVERFIS- OG SKIPULAGSSVIÐ
REYKJAVÍKURBORGAR
Borgartúni 12-14
www.reykjavik.is – sími 411 1111
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
„Eðlilegast væri að læknar væru
ekki að semja við sjúklinga um
ávísanir á ávanabindandi lyf.
Þeir hafa ávísunarréttinn og þar
með ábyrgðina. Ef þeir telja sjúk-
ling vera að fara fram á eitthvað
sem þeir telja ekki eiga við, þá
felur rétturinn í sér þá skyldu að
segja nei,“ segir Ingunn Björns-
dóttir, dósent í félagslyfjafræði
við Óslóarháskóla, um frétt frá
lyfjateymi Embættis landlæknis
í fyrri viku.
Verð á töflunni
Í fréttinni segir að lyfjateymið,
sem sinnir eftirliti með ávísunum
ávanabindandi lyfja, hafi skilað
inn tillögum um breytt viðmiðun-
arverð til að bæta ávísanir ávana-
bindandi lyfja. „Til að sporna við
óhóflegum ávísunum þessara
lyfja er það tillaga teymisins að
töfluverð sem flestra ávanabind-
andi lyfja verði því sem næst óháð
pakkningastærð.“
Þar segir jafnframt að eðlileg-
ast væri að „læknar væru ekki
settir í þá stöðu að semja við sjúk-
linga um ávísanir ávanabindandi
lyfja eftir því hvað þau kosta“, og
til þeirra orða vísar Ingunn hér að
ofan.
Ingunn, sem sat í þessu sama
lyfjateymi í um eitt og hálft ár,
segir að þetta útspil standist ekki
skoðun. „Enginn sjúklingur situr
og karpar við lækni um skráð
verð á lyfinu. Sjúklingarnir lesa
ekki verðskrána og hafa fæstir
hugmynd um að hún sé til,“ segir
Ingunn.
Á villigötum
Um tillöguna segir Ingunn: „Þarna
eru þeir á villigötum því að teymi
landlæknis á Íslandi hefur ekkert
að segja um verðákvarðanir stóru
lyfjafyrirtækjanna. Fyrirtækin
ráða því hvaða lyf þau sækja um
að skrá á Íslandi og hvaða verð.
Alls staðar á Norðurlöndunum
eru minni pakkningar hlutfalls-
lega dýrari en stærri, séu minni
pakkningarnar yfir höfuð í boði.
Afgreiðsla verðumsókna er á borði
lyfjagreiðslunefndar sem fer eftir
lögum og reglum þar um. Hún
hefur ekki frítt spil heldur, svo að
svona tilmæli breyta engu, hafa
enga vigt eða áhrif.“
„Málið á viðkvæmu stigi“
Í fyrrnefndri frétt kemur ekki
fram hvar tillögurnar voru lagðar
fram. Það fæst heldur ekki gefið
upp, en í skriflegu svari embættis-
ins segir að „málið sé á viðkvæmu
stigi en auk skriflegra tillagna
hefur verið fundað með hlutaðeig-
andi aðilum um málið.“
Ólafur B. Einarsson, sérfræð-
ingur hjá landlækni og einn
þriggja sem skipa teymið, segir
að það sé ekki litið svo á að verðið
sé sá þáttur sem skipti einn máli
um það hversu miklu er ávísað af
ávanabindandi lyfjum – erfitt sé að
ákvarða hversu miklu máli verð-
munur lyfja skiptir. Rétt sé að sá
læknir sem ávísar lyfjunum beri
ábyrgð á að ávísunin sé rétt, „en
sú gagnrýni sem læknar fá vegna
ávísana er oft óbilgjörn. Þeir eru
oft í þeirri aðstöðu að sinna þörf-
um fólks sem segir ekki allan
sannleikann eða hreinlega gerir
sér upp veikindi til að fá meira
ávísað af lyfjum,“ segir Ólafur og
bætir við að tillögurnar um verð
lúti að því að afgreiðsla lyfja verði
í hvert sinn miðuð að þörfum ein-
staklings í það skiptið.
„Ef allt væri eðlilegt kostaði
pillan í minni pakkningum sama
og pillan í þeirri stærri en í raun
má velta fyrir sér hvort eðlilegt
sé að sömu lögmál gildi um verð
ávanabindandi lyfja og verð morg-
unkorns,“ segir Ólafur.
svavar@frettabladid.is
Læknar stjórna neyslu – ekki verðið
Magnbundið verð ávanabindandi lyfja hefur ekkert með ofnotkun þeirra að gera. Ábyrgðin liggur hjá læknum sem ávísa lyfjunum.
Tillögur lyfjateymis landlæknis um verðbreytingar eru vindhögg, segir dósent í félagslyfjafræði og fyrrverandi starfsmaður teymisins.
HÆTTULEG HJÁLPARHELLA Fullyrt er að ábyrgð læknisins sé alger, enda beri hann ábyrgðina á ávísunum lyfja.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
■ Svefnlyfjanotkun hefur lengi verið mest á Íslandi í samanburði við hin Norðurlöndin. Mesta notkun svefnlyfja á
Íslandi er í flokknum Benzódíazepínskyld lyf.
■ Eitt af því sem gæti spilað inn í sölu lyfjanna er verð en munur á töfluverði í mismunandi pakkningum er
verulegur.
■ Miðað við lyfjaverðskrá frá 2012 kostar 10 töflu pakkning um 1.310 krónur (131 kr. taflan) en 30 stykkja pakkn-
ing kostar um 1.260 kr. (42 kr. taflan).
■ Þessi mikli verðmunur á pakkningum veldur því að mun meira er selt af 30 stykkja pakkningum sem er á margan
hátt óeðlilegt miðað við það að lyfið er ekki ætlað til langvarandi notkunar.
■ Undir eðlilegum kringumstæðum ættu flestar ávísanir að vera af 10 stykkja pakkningum vegna þess að sérlyfja-
skrá segir að meðferðin eigi að vera eins stutt og hægt er.
■ Svefnlyf eru ekki einu ávanabindandi lyfin með ólíkt töfluverð eftir stærð pakkninga. Á Íslandi er notkun svefn-
lyfja, verkjalyfja, róandi- og kvíðastillandi lyfja og þunglyndislyfja sú mesta á Norðurlöndunum.
Stiklað yfir frétt lyfjateymis landlæknis
Svona
tilmæli
breyta engu,
hafa enga vigt
eða áhrif.
Ingunn Björnsdóttir,
dósent við
Óslóarháskóla.
KJARAMÁL Mikilvægt er að sátt
náist um starfskjör fólks í aðildar-
félögum BHM sem hjá Matvæla-
stofnun starfar að lokinni kjara-
deilu, þannig að tryggja megi
hnökralausa starfsemi stofnun-
arinnar gagnvart fyrirtækjum í
landinu og samfélaginu í heild.
Þetta segir í samantekt um
starfsemina eftir að lög voru sett
á verkfall náttúrufræðinga, mat-
væla- og næringarfræðinga og
dýralækna hjá stofnuninni um síð-
ustu helgi. Starfsemin er sögð vera
að færast í samt horf. „Fjöldi mála
bíður hins vegar afgreiðslu og mun
Matvælastofnun kappkosta að
flýta fyrir afgreiðslu þeirra eins
og kostur er,“ segir á vef Mast.
Á næstu dögum og vikum muni
þó mikið mæða á inn- og útflutn-
ingsskrifstofu stofnunarinnar.
Tekið er fram að mannafli skrif-
stofunnar hafi verið aukinn til að
flýta fyrir afgreiðslu. „Engu að
síður má búast við einhverjum
töfum miðað við eðlilegar aðstæð-
ur.“ - óká
AFFERMING Afgreiðsla á eftirlitsskyldum vörum inn í landið tefst meðan unninn er upp
hali vegna verkfalla. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Starfsemi Matvælastofnunar færist í samt horf:
Þarf sátt um kjör
1
5
-0
9
-2
0
1
5
0
9
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
5
-9
2
3
8
1
6
2
5
-9
0
F
C
1
6
2
5
-8
F
C
0
1
6
2
5
-8
E
8
4
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K