Fréttablaðið - 22.06.2015, Síða 16
22. júní 2015 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSLAUG HELGA ÁRNADÓTTIR
sem lést 9. júní, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
23. júní kl. 15.
Árni Kolbeinsson Sigríður Thorlacius
Áslaug Árnadóttir Arnar Þór Guðjónsson
Kolbeinn Árnason Eva Margrét Ævarsdóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓR VIGNIR STEINGRÍMSSON
fv. yfirvélstjóri hjá Landhelgisgæslunni,
Hlíðarhúsum 3, áður Arahólum 2,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
föstudaginn 12. júní. Útförin verður gerð frá
Grafarvogskirkju fimmtudaginn 9. júlí kl. 15.
Kristín Þórsdóttir
Rannveig Þórsdóttir
Þorsteinn Ólafs Lára Kristjánsdóttir
Ólafur Kristinn Ólafs Soffía G. Jóhannesdóttir
Andri Már Bjarnason,
Daníel Þór Valdimarsson, Rebekka Rún Hjartardóttir,
Þór Steinar Ólafs, Björg Magnea Ólafs, Kristján Már Ólafs,
Halldóra Sigurlaug Ólafs, Magnea Jónína Ólafs
og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem komu
að aðhlynningu, og sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
KRISTÍNAR MARÍU GRÍMSDÓTTUR
Gullsmára 11, Kópavogi.
Grímur Halldórsson Hildur M. Blumenstein
Guðrún Ellen Halldórsdóttir Guðmundur Kr. Jóhannesson
Ketill Arnar Halldórsson Jóhanna H. Oddsdóttir
Hrafnhildur Halldórsdóttir Smári Ríkarðsson
Halldór G. Björnsson
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
MERKISATBURÐIR
168 f.Kr. Rómverjar sigra Makedóníumenn í orrustunni við
Pydna.
1633 Kaþólska kirkjan neyðir Galíleó Galílei til að afneita sól-
miðjukenningunni.
1906 Sænski fáninn er tekinn í notkun.
1911 Georg fimmti er krýndur konungur Bretlands.
1939 Íslenskt hitamet er sett á Teigarhorni í Berufirði. Hitinn
mælist 30,5°C.
1941 Þýskaland ræðst inn í Sovétríkin í seinni heimsstyrjöld-
inni.
1977 Hópferðabíll veltur í Biskups-
tungum. Enginn slasast alvarlega.
1986 Maradona skorar mark með
„hendi Guðs“ í leik gegn
Englandi á heims-
meistara-
mótinu.
1990 Landamærastöð-
in Checkpoint Charlie í
Berlín er lögð niður.
2002 Jarðskjálfti sem
mælist 6,5 á Richter
verður 261 að bana
í Íran.
Stjörnufræðingurinn James Christie upp-
götvaði Karon, stærsta fylgitungl Plútós,
þennan mánaðardag fyrir 37 árum. Upp-
götvunina gerði hann þegar hann var við
störf í stjörnuathugunarstöð í höfuðborg
Bandaríkjanna, Washington.
Karon er óvenjulega stórt fylgitungl
miðað við dvergreikistjörnuna sem hann
fylgir. Í raun er Karon svo stór að sumir
stjörnufræðingar segja hann mynda
tvídvergreikistjörnu með Plútó.
Plútó hefur fjögur önnur fylgitungl til
viðbótar við Karon. Nix og Hýdru sem
fundust árið 2005, Kerberos sem fannst
2011 og Styx sem fannst 2012.
Bandaríska gervitunglið New Horizons
er nú á leið að Plútós og er reiknað með
að ótrúlegar myndir af yfirborði dverg-
reikistjörnunnar sem og fylgitunglum
hennar muni berast og hefur NASA
sagt spennuna sem ríkir í aðdraganda
komunnar til Plútós svipaða því þegar
fyrstu myndir af yfirborði Mars bárust
árið 1965. - þea
ÞETTA GERÐIST: 22. JÚNÍ 1978
Stærsta fylgitungl Plútós uppgötvað
Vísindaskóli unga fólksins verður sett-
ur í Háskólanum á Akureyri í fyrsta
skipti í dag og stendur yfir fram á
föstudag. Skólinn, sem er áþekkur
Háskóla unga fólksins sem er í umsjón
Háskóla Íslands, er ætlaður börnum
frá ellefu til þrettán ára.
„Skólinn er að byrja á mánudaginn
og allir rosalega spenntir. Kennarar
eru búnir að æfa sig og eru tilbúnir
að taka á móti krökkunum,“ segir Sig-
rún Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
skólans.
Unga fólkið fær að kynnast ýmsum
greinum sem kenndar eru við skólann
og hafa viðbrögðin við skólanum farið
fram úr öllum væntingum. Nemendur
munu fá að sitja fyrirlestra og fram-
kvæma tilraunir.
„Við höfum fengið ótrúlega jákvæð
viðbrögð frá samfélaginu á Akur-
eyri. Það eru allir til í að leggja sitt
af mörkum og hjálpa til. Þetta er með
skemmtilegri verkefnum sem ég hef
unnið,“ segir Sigrún.
Hugmyndin að skólanum er sögð
koma að utan en fjölmargir evrópsk-
ir háskólar bjóða börnum upp á nám
í svipuðu formi og nú verður gert í
Háskólanum á Akureyri.
Áherslan er lögð á að kynna nem-
endum sem flestar námsbrautir
háskólans á lifandi og áhugaverðan
hátt. Með því er ætlunin að opna augu
nemenda fyrir fjölbreytninni sem er
í boði á háskólastigi á Akureyri. Auk
þess er miðað að því að tengja skólann
betur við nærsamfélagið á staðnum.
Alls skráðu áttatíu og fimm börn sig
til náms og fengu færri inngöngu en
vildu. Kynjahlutfall við skólann verð-
ur nokkuð jafnt, fjörutíu og fimm
drengir og fjörutíu stúlkur.
thorgnyr@frettabladid.is
Vísindaskóli unga
fólksins settur í dag
Nú er í fyrsta skipti boðið upp á skólavist í Vísindaskóla unga fólksins sem settur verður
í dag. 85 nemendur eru skráðir í skólann. Áhersla námsins er að kynna ungu nemend-
unum hið fj ölbreytta nám sem býðst við Háskólann á Akureyri.
ÁHUGASÖM Áttatíu og fimm nemendur eru skráðir til náms við Vísindaskóla unga fólksins sem er settur í dag. MYND/HÁSKÓLINN Á AKUREYRI
Við höfum
fengið ótrúlega
jákvæð viðbrögð
frá samfélaginu á
Akureyri. Það eru
allir til í að leggja
sitt af mörkum og
hjálpa til. Þetta er með
skemmtilegri verkefnum sem
ég hef unnið.
Sigrún Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
Vísindaskóla unga fólksins.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
0
9
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
4
-1
F
E
8
1
6
2
4
-1
E
A
C
1
6
2
4
-1
D
7
0
1
6
2
4
-1
C
3
4
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K