Fréttablaðið - 22.06.2015, Side 18
FÓLK|
www.sagamedica.is
Sæktu styrk í íslenska náttúru
Úr heilsubrunni
íslenskrar náttúru
SagaMemo
Angelica Voxis
fyrir minnið
fyrir aukna orku fyrir sáran háls
SagaPro
færri salernisferðir
Púðana vann ég úr gömlum gard-ínum, blúndudúkum og ýmiss konar gömlum tölum sem féllu til.
Ég bæði viða að mér og fæ gefins ýmis-
legt frá vinum mínum, eitthvað sem þeir
annars myndu henda. Mér finnst mikil-
vægt að nýtilegir hlutir fái framhaldslíf,“
segir Hulda Björg Baldvinsdóttir, bókari
og handverkskona.
„Á tímabili tók ég að safna að mér
gallabuxum og saumaði svo úr þeim
svuntur. Nú er ég að sníkja af vinum
mínum aflóga bómullarboli. Mig langar
að klippa þá niður og hekla úr þeim
mottur,“ segir hún og viðurkennir að
henni falli sjaldan verk úr hendi.
„Mig vantar helst tíma til að koma
öllu í framkvæmd sem mér dettur í hug.
Ég hef klippt niður blúndugardínur og
saumað utan um stórar glerkrukkur og
sett kerti ofan í þær og einnig heklað
utan um þær og nýtt þannig afganga af
garni. Ég er tíður gestur í Góða hirð-
inum og hef undanfarið safnað að mér
myndarömmum. Ég ætla að mála þá og
búa mér til fjölskyldumyndavegg. Við
eigum hús fyrir vestan, á Flateyri, og
þar ætla ég að setja upp myndirnar,“
segir hún.
Hulda segir fólk allt of gjarnt á að
henda hlutum og fatnaði sem vel væri
hægt að nýta á einhvern hátt. Sjálf hafi
hún alist upp við að nýta alla hluti.
„Mér finnst ofboðslega mikil sóun
í gangi en þó er fólk að átta sig á því
að jörðin ber okkur ekki með þessu
áframhaldi. Pabbi minn passaði alla tíð
vel upp á alla hluti og ég hef reynt að
gera það líka. Haldið til haga því sem
er nýtilegt. En ég safna þó
ekki fötum af sjálfri mér,
ég gef þau áfram til þess
að hægt sé að nota þau
meðan þau eru nýtileg.
Ég á í ástar-haturs-
sambandi við plast,
tek með mér poka
undir ávextina
út í búð aftur og
aftur og reyni að
grípa með mér
fjölnota poka
þegar ég fer
að versla.
Svo reyni
ég að
setja ekki
plast-
poka
utan um
mat ef
ég get sett
hann í dollur og dósir sem ég á fyrir.
Mér finnst mikilvægt að fólk hendi ekki
því sem enn er nýtilegt heldur gefi það
frekar áfram til einhvers sem getur gert
eitthvað úr því.“
En fer ekki mikið pláss á heimilinu
undir allt þetta handverk?
„Jú, jú, auðvitað, en ég er með rúm-
góða geymslu,“ segir Hulda kankvís.
„Ég fer einnig með mikið af því sem
ég bý til í Handverkshúsið Purrku á
Flateyri. Purrka er opin á sumrin
og ég hef verið að vinna þar
þegar ég er fyrir vestan. Þar
er handverksfólk með ýmiss
konar verk, gler, útskorið tré,
málverk og mikið prjónles.
Fólk sem kíkir við talar sér-
staklega um hve úrvalið sé
fjölbreytt.“
ÓÞARFI AÐ HENDA
HANDVERK Hulda Björg Baldvinsdóttir vill helst ekki sjá á eftir nýtilegum
hlutum í ruslið. Hún endurnýtir gamlar flíkur og muni og gefur þeim nýtt líf.
NÝTT ÚTLIT Gamalt
tréverk fær nýtt líf eftir
yfirhalningu.
GAMLAR BUXUR FÁ NÝTT
HLUTVERK Gallabuxur endur-
nýttar á sniðugan hátt.
ENDURNÝTING Hulda
Björg er tíður gestur
í Góða hirðinum og
leitar uppi hluti sem hún
frískar upp á.
VILL ENGU HENDA Hulda Björg Baldvinsdóttir er mikil handverkskona og er umhugað um endurvinnslu. MYND/VALLI
1
5
-0
9
-2
0
1
5
0
9
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
4
-B
4
0
8
1
6
2
4
-B
2
C
C
1
6
2
4
-B
1
9
0
1
6
2
4
-B
0
5
4
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K