Fréttablaðið - 22.06.2015, Síða 20

Fréttablaðið - 22.06.2015, Síða 20
KYNNING − AUGLÝSINGÞvottur MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 20152 Margrét segir að lengi hafi vantað svona bók en það hafi hún fundið í kennslu sinni í Hússtjórnarskólanum. „Ég fann að það vantaði svona leiðbein- ingar. Fólk var alltaf að spyrja mig um hitt og þetta. Bókin nýtist öllum, sérstaklega þeim sem eru að byrja að búa. Það er svo margt sem fólk kann ekki, til dæmis í sambandi við þvottinn. Algengt er að fólk blandi allavega lituðum þvotti saman og allt kemur grátt eða bleikt úr vélinni. Svo eru margir sem kunna ekki að strauja skyrtur,“ segir Margrét. Hún bendir á að í verslunum sé mikið úrval af alls kyns ræstiefn- um og fólk sé ráðvillt þegar kemur að þeim kaupum. „Ég kenni fólki að velja það einfaldasta, ódýrasta og umhverfisvænasta,“ segir hún. „Það er óþarfi að úða sterkum efnum um allt hús.“ Einfaldar reglur Margrét segir að það sé ekkert leiðin legt að þrífa heimilið, eins og sumum finnist. „Það er svo gaman að sjá árangurinn. Þar fyrir utan þarf fólk að vera skipulagt og best að þrífa jafnóðum í stað þess að standa á haus um helgar. Frekar að njóta helganna en þrífa aðra daga. Þegar gengið er frá þvottinum jafn- óðum verður þetta allt miklu ein- faldara. Það er ekkert sniðugt að kaupa fallegt borð í stofuna en svo er það alltaf þakið hreinum þvotti,“ segir hún. Þegar hún er spurð hversu oft þurfi að skúra gólfin, segir hún það misjafnt eftir heimilum og hvern- ig sé gengið um. „Ef maður er með litla stráka sem pissa út fyrir þarf að skúra baðherbergisgólfið mun oftar en þar sem engin börn eru. Einnig þarf að skúra eldhúsgólfið oftar en stofugólfið fyrir utan að maður á ekki mikið að bleyta parkett. Frek- ar að strjúka yfir með rökum klút. Í bókinni auðvelda ég fólki lífið við hreingerningarnar.“ Margt hefur breyst Hreingerningar hafa breyst mikið í áranna rás. „Þegar konur voru heimavinnandi þrifu þær heimilið á meðan eiginmaðurinn vann úti. Þær gerðu miklar hreingerningar fyrir jól og á vorin, skiptu út glugga- tjöldum og allir veggir voru þrifnir hátt og lágt. Allt var tekið út úr skáp- um og viðrað utandyra að minnsta kosti tvisvar á ári. Þetta heyrir sög- unni til. Nú hjálpast hjón að við heimilisþrif, enda bæði útivinn- andi og jólahreingerningar þekkj- ast varla lengur. Allt í drasli Margrét var með vinsæla sjónvarps- þætti, Allt í drasli, á sínum tíma og fékk mikil viðbrögð við þeim. „Það var voða gaman að vera með þessa þætti og yndislegt að geta hjálpað fólki. Stundum verður draslið svo mikið að það verður óyfirstígan- legt. Þess vegna er best að gera þetta jafnóðum og hafa röð og reglu á hlutunum. Þetta er fyrsta bók Margrétar sem gefur lesendum fjölmörg gagn- leg húsráð um leið og hún leiðbein- ir um eitt og annað. „Þetta er fín og sæt bók með teiknuðum myndum,“ segir hún. Margrét léttir fólki heimilisþrifin Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir, skólastjóri Hússtjórnarskólans í Reykjavík, var að senda frá sér bókina Allt á hreinu, sem er leiðbeinandi bók fyrir þá sem vilja ná betri tökum á skipulagi og ræstingum á imilinu. Margrét Sigfúsdóttir, skólastjóri Hússtjórnarskólans, leiðbeinir konum og körlum um allt er viðkemur heimilisþrifum og umgengni í nýrri bók. MYND/ERNIR ÁN OFNÆMISVALDANDI EFNA EINS OG ILM- OG LITAREFNA. MILT FLJÓTANDI ÞVOTTAEFNI NÝTT S VANSVOT TUÐ VA R A Ég kenni fólki að velja það einfaldasta, ódýrasta og umhverfisvænasta. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 0 9 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 5 -6 A B 8 1 6 2 5 -6 9 7 C 1 6 2 5 -6 8 4 0 1 6 2 5 -6 7 0 4 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.