Fréttablaðið - 22.06.2015, Side 21
KYNNING − AUGLÝSING Þvottur22. JÚNÍ 2015 MÁNUDAGUR 3
Meðalending þvottavéla frá Miele eru 10.000 vinnu-stundir. Hálfdán Guð-
mundsson, verslunarstjóri hjá Eir-
vík, segir hönnun vélanna sameina
þrautreynda gæðastaðla og nýj-
ustu tækni sem skili framúrskar-
andi þvottahæfni og áreiðanleika.
„Miele vélarnar eru framleiddar
eins og gert var í gamla daga, það er
að segja, inni í þeim er stálgrind svo
vélarnar eru um 100 kíló að þyngd
og færast ekkert úr stað. Tromlan er
úr ryðfríu stáli og utan um hana er
belgur einnig úr stáli. Það gerir það
að verkum að enginn sveppagróður
og leiðinleg lykt myndast í vélunum
frá Miele.“
Vaxkökmynstur í tromlum
vélanna
„Hjá Eirvík erum við með sjö, átta
og níu kílóa vélar. Í þeim öllum er
vaxkökumynstruð tromla sem fer
afar vel með fötin. Götin á troml-
unni eru lítil svo efnislítill fatn-
aður eins og blússur eða skyrtur
þrýstist ekki út í gegnum götin í
þvotti og slitnar því ekki eins hratt.
Þá myndast vatnsfilma við þeyti-
vindu, líkt og gerist þegar bílar
fljóta ofan á malbiki í rigningu, svo
núningurinn við tromluna verð-
ur minni. Flíkurnar haldast fínar
miklu lengur.“
Sjálfvirk skömmtun á þvottaefni
Sjö kílóa vélin er vinsælust að sögn
Hálfdáns, sígild vél á góðu verði,
með íslensku stjórnborði og íslensk-
um leiðarvísi.
Átta og níu kílóa vélarnar eru
stútfullar af tækninýjungum. Þær
hafa meðal annars sérstök bletta-
hreinsikerfi og forstraujun með
gufu í lok hvers þvottar, svo fatnað-
urinn kemur ekki eins krumpaður
úr vélinni.
Í átta og níu kílóa vélunum er
einnig sjálfvirk skömmtun á þvotta-
efni, Twin Dos kerfi fyrir þvottaefni
í fljótandi formi.
„Magn á þvottaefni fer eftir
vatnshörkunni og hana er hægt að
stilla inn á vélunum,“ segir Hálfdán.
„Á Íslandi er mjúkt vatn, það þarf
að stilla inn og þá tekur vélin inn
minni sápuskammt í samræmi við
það og eins eftir því hversu þvottur-
inn er óhreinn.
Stærri vélarnar eru einnig með
Cap Dos kerfi. Þá eru sérstök sápu-
hylki með sérhæfðum þvottaefnum
sett í sápuhólfið. Hvert hylki er fyrir
einn þvott og í boði er t.d. þvottaefni
fyrir íþróttafatnað, dún, ull o.fl.“
Sérþróað þvottaefni frá Miele
Miele hefur þróað sitt eigið þvotta-
efni í takt við þvottakerfi vélanna
til að ná hámarksárangri. Miele
þvottaefnin innihalda einungis
virk efni og engum fylliefnum er
bætt við. Þau eru ofnæmisprófuð
og umhverfisvæn að sögn Hálfdáns.
„Þetta er hágæða þvottaefni, og
af því þarf minna en af mörgum
öðrum þvottaefnum á markaðnum
til að fá sömu úrlausn. Miele þvotta-
efnin henta allri fjölskyldunni, allt
niður í kornabörn, og þá er mjög lít-
ill ilmur af efninu.“
Í Miele þvottaefnalínunni er duft
fyrir hvítan þvott en í fljótandi formi
fyrir litaðan þvott, ull, silki, dún og
íþróttafatnað.
„Íþróttaþvottaefnið er afar skil-
virkt sérstakalega fyrir Dry Fit fatn-
að og hreinsar burt alla lykt,“ segir
Hálfdán. „Þá eigum við einnig
þvottaefni fyrir Goritexfatnað og
sérstakt vatnsþéttiefni til að setja í
síðasta skolkerfið og lengja þannig
líftíma Goritexefnanna.“
Minna slit og sléttari þvottur
úr þurrkurum frá Miele
Hjá Eirvík fást einnig þurrkarar frá
Miele, sjö, átta og níu kílóa. Meðal-
ending þurrkaranna eru 7.500
vinnustundir. Þeir eru hljóðlát-
ir, með rakaþétti og tímaskjá. Þá
er tromlan hönnuð með svipaðri
tækni og tromlur þvottavélanna.
„Á þvottavélunum snúa horn-
in á sexhyrningnum í vaxköku-
mynstrinu út í tromlunni svo
vatnið komist auðveldlega út en
í þurrkurunum snýr sexhyrning-
urinn út. Þannig myndast loft-
púði sem varnar því að núning-
ur myndist við tromluna,“ útskýr-
ir Hálfdán.
„Átta og níu kílóa þurrkararn-
ir eru útbúnir nýrri tækni, varma-
skipti sem gerir það að verkum
að þeir þurfa minna rafmagn en
sjö kílóa þurrkarinn. Þá eru átta
og níu kílóa þurrkararnir útbún-
ir gufukerfi sem minkar allar
krumpur. Í þeim er einnig sérstakt
kerfi fyrir útivistarfatnað.“
Betri ilm í tauið
„Þar sem vatnið er mjúkt á Íslandi
er ekki þörf á að nota mýkingar-
efni í þvottinn, nema til að fá betri
ilm. Hægt er að er að kaupa ilm-
hylki í Miele þurrkarana en Miele
framleiðir þrjá mismunandi ilmi:
kókos, nature og aqua ilm.“
Nánari upplýsingar má finna á
www.eirvik.is
Miele þvottaefnin
henta allri
fjölskyldunni, allt niður í
kornabörn.
Minna slit og sléttari þvottur
Hálfdán Guðmundsson, verslunarstjóri hjá Eirvík segir Miele þvottavélarnar sameina nýjustu tækni og gamalreynda hönnun.
Ryðfrítt stál varni því að lykt myndist í þvottavélunum og vaxkökumynstruð tromla stuðli að endingarbetri fatnaði. Sérþróað
þvottaefni Miele skili hámarksárangri í hverjum þvotti og sé auk þess ofnæmisprófað og umhverfisvænt.
Miele hefur þróað sitt eigið þvottaefni í takt við þvottakerfi vélanna til að ná hámarksárangri.
Í átta og níu kílóa vélunum er einnig sjálfvirk skömmtun á þvottaefni, TwinDos kerfi fyrir
þvottaefni í fljótandi formi.
Hálfdán Guðmundsson, verslunarstjóri hjá Eirvík, segir Miele þvottavélarnar og þurrkarana skila hámarksárangri. MYND/GVA
1
5
-0
9
-2
0
1
5
0
9
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
5
-C
D
7
8
1
6
2
5
-C
C
3
C
1
6
2
5
-C
B
0
0
1
6
2
5
-C
9
C
4
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K