Fréttablaðið - 22.06.2015, Síða 22

Fréttablaðið - 22.06.2015, Síða 22
KYNNING − AUGLÝSINGÞvottur MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 20154 Það þarf ekki að setja mikið þvottaefni í vélina til að þvotturinn verði hreinn. Margir gera þau mistök að setja allt of mikið þvottaefni en það er slæmt fyrir vélina ef sápan freyð- ir mikið. Þvotturinn verður ekk- ert hreinni með meiri sápu. Setjið alltaf dök kar f l íkur saman í vélina til að halda litn- um á þeim. Ekki setja svartar gallabuxur í þurrkara. Aldrei skal setja ljósar f l íkur með dökkum. Regla sem allir eiga að kunna. Einnig er gott að muna að betra er að hafa rennilása lokaða í vélinni. Hins vegar eiga skyrtur að vera óhnepptar. Enn ein reglan er sú að setja ekki of mikið í vélina. Ef vélin er of full þvær hún verr auk þess sem fötin geta lyktað illa. Flokkun á þvotti Gott ráð fyrir stórar fjölskyld- ur er að hafa tvær þvottakörfur, aðra fyrir dökkar f líkur og hina fyrir þær ljósu. Ef gott skipulag er á þvottahúsinu verður þvott- urinn miklu auðveldari og mik- ill tími sparast. Síðan getur verið ágætt að hafa eina sérstaka körfu fyrir íþróttafatnað sem þarf að þvo oft. Það er leiðinleg t að raða saman mörgum pörum af sokk- um eftir þvott og svo eru stakir sokkar óþolandi. Ágætt ráð til að bæta úr þessu er að hver fjöl- skyldumeðlimur hafi sitt eigið þvottanet fyrir sokka. Óhrein- ir sokkar fara í netpokann sem fer síðan í þvottavélina og þurrk- ara. Síðan verður það hlutverk eiganda pokanna að brjóta sína sokka saman og ganga frá ofan í skúffu. Það er líka gott að setja sokkabuxur í netpoka. Nauð- synlegt er að setja brjósthaldara í slíkan poka til að koma í veg fyrir að spöngin skemmi þvotta- vélina en margir hafa lent í slík- um vandamálum. Reynið að venja ykkur á að brjóta hreinan þvott saman strax og setja inn í skáp. Það er svo ánægjulegt þegar því starfi er lokið. Heilu staf larnir af hreinu taui á stofuborðinu eru ekki til prýði og f lestum til ama. ATHUGIÐ! Gleymið ekki að tæma alla vasa áður en f líkurnar fara í þvotta- vélar. Margir hafa eyðilagt far- síma í þvottavélum. Þá er ekki skemmtilegt að fá blek úr penna í þvottinn. Algeng mistök við þvottinn Þótt flestum finnist einfalt að þvo þvott er samt ýmislegt sem gæta þarf að. Það er svekkjandi ef dýr fatnaður skemmist í þvottavélinni. Til dæmis er ekki mælt með að nudda blett í fötum, það getur skemmt flíkina. Að þvo þvott er einföld aðgerð í sjálfu sér en vex þó mörgum í augum. Best er að ráðast í verkefnið með jákvæðum augum og klára það samdægurs. Garðhúsgögn láta á sjá eins og aðrir hlutir, jafnvel þótt þau séu tekin inn á veturna. Oft er nóg að þrífa húsgögnin en oftast þarf að bera á þau til að fríska þau upp. Best er að geyma viðarhúsgögn innandyra yfir vetrarmánuði. Það þarf engu að síður að þrífa þau á vorin og af og til yfir sumar- ið. Viðarhúsgögn eru viðkvæm fyrir rigningu, vindum og sól. Með tímanum verður viðurinn grár auk þess sem hann getur sprungið. Ekki spúla viðarhúsgögn með háþrýstivatnsdælu, segja sér- fræðingar, því krafturinn í vatninu getur skemmt viðinn. Notið mjúkan bursta, vatn og mildan þvottalög til að fara yfir húsgögn- in ef þau eru skítug. Oft er nægilegt að nota einungis vatnið úr garðslöngunni. Ef bera á olíu á húsgögnin þurfa þau að vera alveg hrein og þurr. Stundum þarf að nota sérstakan viðarhreinsi. Með góðri meðhöndlun endast húsgögnin lengur. Í raun er best að bera olíu á húsgögnin tvisvar á ári. Ef komnir eru blettir í viðinn þarf að nota sandpappír til að ná þeim burt. Plasthúsgögn þarf líka að þrífa. Hægt er að nota volgt vatn og þvottalög til að þrífa þau. Ef þau eru orðin illa farin getur verið best að nota bílasjampó. Það dugar vel á plastið. Garðhúsgögnin þrifin Garðhúsgögnin þarfnast viðhalds eins og flest annað. Kolalaus og hljóðlát Bosch þvottavél Á fáránlega góðu verði! Bosch WAP 28498SN 8 A Hámarksvinduhraði 1400 sn./mín. h ð á ur k a aus s arn nn m r Si n riv m ð 10 ára á r ð. S rk r nk r d kkur v ur sk r ur í r a a naður m s u k r 1 mín. h ðv rndark r A ðav un andaður v ur viðkv m /si ki u . S á r insandi v a nish . ari P r H að s a mann ða s ara rku á v ak r um án ss að að k mi niður á v ah ni. ið virka da a rá k . 11 18. Tilboð: 119.900 kr. Fullt verð: 157.900 kr. 8 1 5 -0 9 -2 0 1 5 0 9 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 5 -E 1 3 8 1 6 2 5 -D F F C 1 6 2 5 -D E C 0 1 6 2 5 -D D 8 4 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.